Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

776. fundur
12. maí 2016 kl. 13:00 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Stöðumat stjórnenda janúar - mars 2016.
Málsnúmer 201604063
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti skil og mat stjórnenda Dalvíkurbyggðar hvað varðar mat á stöðu bókhalds í samanburði við fjárhagsáætlun 2016, janúar - mars.Heilt yfir eru græn ljós en gul ljós eru við fjárhagsaðstoð, veikindalaun í leikskólum og Dalvíkurskóla, lífeyrisskuldbindingu, rautt ljós við snjómokstur þar sem framlag vegna snjómoksturs fyrir árið er uppurið.Gera þarf viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna launaáætlunar þar sem nýir kjarasamningar liggja fyrir að mestu.
Lagt fram til kynningar.
3.
Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og umhverfisstjóra; Átaksverkefni á opnum svæðum 2016
Málsnúmer 201605075
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og umhverfisstjóra, dagsett þann 10. maí 2016, þar sem óskað er eftir að ráða Jón Arnar Sverrison, garðyrkjufræðing, tímabundið til starfa í sumar, allt að þrjá mánuði, vegna átaksverkefnis á opnum svæðum. Áætlaður kostnaður er um 1,6 m.kr. Fram kemur að svigrúm er á lið 11410-4396 til að mæta þessum kostnaði.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi.
4.
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Húsabakki, umsókn um rekstrarleyfi
Málsnúmer 201605014
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, bréf dagsett þann 29. apríl 2016, þar sem fram kemur að Auðunn Bjarni Ólafsson sækir um sem forsvarsmaður fyrir Húsabakka ehf., kt. 540312-1170, endurnýjun á rekstrarleyfi til sölu gistinga og veitingu í Húsabakka, Svarfaðardal, 621. Dalvík. Sótt er um rekstrarleyfi gististaður; flokkur V.Meðfylgjandi eru umsagnir slökkviliðsstjóra og byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn.
5.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Uppbygging ferðamannastaða
Málsnúmer 201605072
Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 2. maí 2016, þar sem fram kemur að Samband íslenskra sveitarfélaga og Stjórnstöð ferðamála hafa komist að samkomulagi um að sambandið vinni að því, í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið og verkefnisstjórn, sem skipuð verður á grundvelli laga um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, að tryggja yfirsýn um ástand og uppbyggingarþörf á ferðamannastöðum um land allt.Til að samstarfið milli sambandsins og sveitarfélaga gangi sem best er þess óskað að hvert sveitarfélag tilnefni tengilið sem taki að sér að safna saman upplýsingum fyrir þessa áætlanagerð. Fram kemur að sambandið hefur ráðið sérfræðing, Örn Þór Halldórsson, arkitekt, til að sinna verkefninu af þess hálfu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, verði tengiliður Dalvíkurbyggðar í þessu verkefni.
6.
Frá Tækifæri; Aðalfundur Tækifæris 2016.
Málsnúmer 201605044
Tekið fyrir erindi frá Tækifæri hf., dagsett þann 3. maí 2016, þar sem fram kemur að aðalfundur verður haldinn þriðjudaginn 17. maí n.k. á Akureyri og hefst fundurinn kl. 14:00.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn f.h. Dalvíkurbyggðar.
7.
Frá Málræktarsjóði; Aðalfundur Málræktarsjóðs 2016
Málsnúmer 201605056
Tekið fyrir erindi frá Málræktarsjóði, dagsett þann 6. maí 2016, þar sem fram kemur að aðalfundar sjóðsins verður haldinn föstudaginn 3. júní n.k kl. 15:00 á Hótel Sögu í Reykjavík. Dalvíkurbyggð hefur rétt að tilnefna fulltrúa í fulltrúaráðið. Tilnefningar þurfa að berast eigi síðar en 23. maí n.k.
Lagt fram.
8.
Frá Flokkun ehf.; Aðalfundur Flokkunar 2016
Málsnúmer 201604145
Tekið fyrir erindi frá Flokkun Eyjafjörður ehf., dagsett þann 27. apríl 2016, þar sem boðað er til aðalfundar Flokkunar Eyjaförður þriðjudaginn 17. maí n.k. kl. 13:00 á Hótel Kea á Akureyri.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn f.h. Dalvíkurbyggðar.
9.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; fundargerð stjórnar nr. 838
Málsnúmer 201603022
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 838 frá 29. apríl 2016.
Lagt fram til kynningar.