Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

766. fundur
28. janúar 2016 kl. 08:15 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Málefni Húsabakka
Málsnúmer 201408038
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson vék af fundi undir þessum lið kl. 09:27 vegna vanhæfis og varaformaður, Kristján Guðmundsson, tók við fundarstjórn.Sveitarstjóri gerði grein fyrir tillögu til Húsabakka ehf., Samkomulag um lok leigusamnings milli Dalvíkurbyggðar og Húsabakka ehf. um húsnæði að Húsabakka, Svarfaðardal.Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
3.
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra;Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar og/eða veitingu veitinga
Málsnúmer 201601120
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson kom inn á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 09:52 og tók við fundarstjórn að nýju.Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, rafbréf dagsett þann 21. janúar 2016, þar sem óskað er umsagnar sveitarstjórnar um umsókn Grzegorz Tomasz Maniakowski, kt. 091162-2029, Bárugötu 3, 620 Dalvík, sem sækir um sem forsvarsmaður fyrir Gregdalvík ehf. kt. 691111-0910, endurnýjun á rekstrarleyfi til sölu veitingu veitinga á Gregors PUB, Goðabraut 3, 620 Dalvík. Um er að ræða flokk II.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn.
4.
Frá allsherjar- og mennamálanefnd Alþingis; Fundarboð - fimmtudaginn 28. janúar kl. 9:40
Málsnúmer 201601124
Sveitarstjóri vék af fundi kl. 09:57 til annarra starfa.Tekinn fyrir rafpóstur frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dagsettur þann 21. janúar 2016, þar sem fram kemur að formaður nefndarinnar óskar eftir að Dalvíkurbyggð komi á fund nefndarinnar fimmudaginn 28. janúar kl. 9:40.Fundarefnið er:Mál. 16, Styrking leikskóla og fæðingarorlofs http://www.althingi.is/altext/145/s/0016.htmlSveitarstjóri upplýsti að Dalvíkurbyggð tekur þátt í fundinum í gegnum símafund. Fulltrúar Dalvíkurbyggðar eru sveitarstjóri og sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.
Lagt fram til kynningar.
6.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði.Leiðrétting launa skv. nýjum kjarasamningum 2015
Málsnúmer 201601135
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar frá fjármála- og stjórnsýlusviði hvað varðar leiðréttingu launa vegna nýrra kjarasamninga. Um er að ræða leiðréttingu að upphæð kr. 22.462.605 vegna starfsmanna sem eru í Kili, Einingu-Iðju, Félagi leikskólakennara og Félagi leikskólastjórnenda.Áður var búið að leiðrétta laun árið 2015 vegna nýrra kjarasamninga sem hér segir:Starfsmat, starfsmenn í Kili og Einingu-Iðju, kr. 10.510.000. (Viðauki)Félags tónlistarkennara og Félag skólastjóra í grunnskóla, kr. 8.690.000. (Viðauki).Alls kr. 41.662.605.Ósamið er við eftirtalin félög:BHM félögLandssamband sjúkra- og slökkviliðsmannaTæknifræðingafélag Íslands.Félag tónlistarkennara.Félag grunnskólakennara er með lausa samninga 1.6.2016.
Lagt fram til kynningar
7.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Stöðumat janúar - desember 2015.
Málsnúmer 201601136
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi til upplýsingar bókfærð staða málaflokka og deilda þann 26. janúar 2016 í samburði við fjárhagsáætlun, janúar - desember 2015.
Lagt fram til kynningar.