Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
765. fundur
21. janúar 2016
kl.
13:00
-
16:05
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Frá umhverfis- og tæknisviði; Endurbætur á rými nr. 3 á 2. hæð.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, bréf dagsett þann 19. janúar 2016, þar sem óskað er eftir viðauka vegna endurbóta á rými nr. 3 á annarri hæð Ráðhúss Dalvíkur. Um er að ræða rými sem Sýslumaður á Norðurlandi eystra hefur ákveðið að taka á leigu. Þær endurbætur sem þarf að gera eru áætlaðar að kosti kr. 1.500.00 og óskað er eftir að mæta þeim kostnaði með flutningi fjármagns annars vegar af 31350-4610 (Ráðhús sameign) og kr. 750.000 og hins vegar 31800-4610 (Sameiginlegur kostnaður eignasjóðs) kr. 750.000 á 31300-4610 (Ráðhús 2. hæð).Til upplýsingar fylgdu einnig drög að leigusamningi á milli Dalvíkurbyggðar og Sýslumannsins á Norðurlandi eystra.Byggðaráð fór í vettvangsskoðun í húsnæðið á gangi á 2. hæð.Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs kom inn á fundinn kl. 14:10 undir þessum lið. Til umræðu ofangreint.Börkur Þór vék af fundi kl. 14:23.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum beiðni um viðauka allt að kr. 700.000 á deild 31300 og á móti er skorið niður viðhald af deildum 31350 og 31800, lykill 4610.
4.
Málefni Húsabakka.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson vék af fundi undir þessu máli vegna vanhæfis kl. 14:43.Varaformaður, Kristján Guðmundsson, tók við fundarstjórn.Á 764. fundi byggðaráðs þann 14. janúar 2016 var eftirfarandi bókað:"Á 763. fundi byggðaráðs þann 7. janúar 2016 var meðal annars eftirfarandi bókað: "Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við stjórn Húsabakka ehf. á grundvelli draga að samkomulagi um lok leigusamningsins og á grundvelli greinargerðar sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og veitu- og hafnasviðs. Stefnt skuli að því að málið verði tekið fyrir að nýju á næsta fundi ráðsins." Sveitarstjóri gerði grein fyrir símafundi með framkvæmdastjóra Húsabakka ehf. þann 12. janúar s.l. en þann fund sátu einnig sviðsstjórar umhverfis- og tæknisviðs og veitu- og hafnasviðs, en framkvæmdastjóri og stjórn Húsabakka ehf. hafa fengið til sín drög að samkomulagi um lok á leigusamningi sem og yfirferð sviðsstjóranna á þeim viðhaldsframkvæmdum sem gerðar hafa verið á leigutímanum, byggt á gögnum frá Húsabakka ehf. annars vegar og hins vegar úr bókhaldi Dalvíkurbyggðar, málakerfi sveitarfélagsins og upplýsingum frá starfsmönnum. Sveitarstjóri gerði einnig grein fyrir samskiptum við forsvarsmenn Húsabakka ehf. eftir símafundinn sem og að gert er ráð fyrir fundi í næstu viku með forsvarsmönnum Húsabakka ehf. til að ræða ofangreint með því markmiði að ná samkomulagi. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sviðsstjórar veitu- og hafnasviðs og umhverfis- og tæknisviðs og Guðmundur St. Jónsson sitji ofangreindan fund ásamt sveitarstjóra. "Sveitarstjóri og Guðmundur St. Jónsson gerðu grein fyrir fundi með forsvarsmönnum Húsabakka ehf. 20. janúar s.l. um ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra að koma með tillögu að tilboði til Húsabakka ehf. í samræmi við umræður á fundinum og í samráði við lögmann sveitarfélagsins.
5.
Heimsóknir byggðaráðs í stofnanir og fyrirtæki Dalvíkurbyggðar; a) Krílakot og b) Kátakot, kl. 14:50.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson kom inn á fundinn að nýju undir þessu máli kl. 15:05.Byggðaráð fór ásamt sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í heimsókn í leikskólann Krílakot og leikskólann Kátakot. Einnig var nýr sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs með í för.
Lagt fram til kynningar.