Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
759. fundur
19. nóvember 2015
kl.
13:00
-
16:05
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá sviðsstjóra félagsmálasviðs; Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2015 vegna fjárhagsaðstoðar
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, kl. 13:00.Guðmundur St. Jónsson kom inn á fundinn undir þessum lið kl. 13:16.Á 758. fundi byggðaráðs þann 12. nóvember 2015 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra félagsmálasviðs, bréf dagsett þann 2. nóvember 2015, þar sem óskað er eftir viðauka #2 við fjárhagsáætlun 2015 vegna deildar 02110; fjárhagsaðstoð. Óskað er eftir tilfærslu á milli liða kr. 2.470.000 og viðbót við fjárhagsramma að upphæð kr. 2.960.000; alls kr. 5.430.000. Heimild deildar 02110 er kr. 12.798.000. Bókfærð staða þann 10. nóvember er kr. 18.043.091. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu á framlögðu erindi og óskar eftir því að sviðsstjóri félagsmálasviðs komi á fund byggðaráðs um feril fjárhagsaðstoðar og hver þróunin hefur verið á undanförnum árum til samanburðar við önnur sveitafélög."Sviðsstjóri félagsmálasviðs fór yfir feril fjárhagsaðstoðar og þróunina á undanförnum árum til samanburðar við önnur sveitarfélög.Til umræðu ofangreint.Eyrún vék af fundi kl. 14:05.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun 2015, deild 02110, að upphæð kr. 1.500.000 til að dekka áætlaða fjárhagsaðstoð sem eftir er ársins. Viðaukanum er mætt með lækkun á handbært fé.
5.
Frá Hestamannafélaginu Hringi; Umsókn um styrk til svæðislýsingar við Hringsholt.
Tekið fyrir erindi frá Hestamannafélaginu Hringi, dagsett þann 9. nóvember 2015, þar sem óskað er eftir styrk frá Dalvíkurbyggð við að koma svæðislýsingu við Hringsholt til betri vegar. Meðfylgjandi er samantekt á núverandi lýsingu, tillaga að endurbótum og kostnaðaráætlun, unnin af Níelsi Sveinssyni, rafvirkja.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindri beiðni um styrk.
Byggðaráð bendir á að frestur til að senda inn erindi vegna fjárhagsáætlunar 2016 var 1. september s.l.
Byggðaráð bendir á að frestur til að senda inn erindi vegna fjárhagsáætlunar 2016 var 1. september s.l.
6.
Frá 271. fundi umhverfisráðs þann 11.11.2015; Endurnýjun á samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla.
Á 271. fundi umhverfisráðs þann 11. nóvember 2015 var eftirfarandi bókað:"Til afgreiðslu endurnýjaður samstarfssamningur milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla. Umhverfisráð leggur til við byggðarráð að fyrirliggjandi samningur verði samþykktur."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi drög að samningi með þeirri breytingu í 1. gr. að samningurinn gildi til 3ja ára og sé með 3ja mánaðar uppsagnarfresti sem miðist við mánaðarmót. Endurskoðunarákvæði detti því út.
7.
Frá 271. fundi umhverfisráðs þann 11.11.2015; Auðlindastefna Dalvíkurbyggðar.
Á 271. fundi umhverfisráðs þann 11. nóvember 2015 var eftirfarandi bókað:"Á 273. fundi sveitarstjórnar þann 27. október 2015 samþykkti sveitarstjórn tillögu veitu- og hafnaráðs að sveitarstjórn feli umhverfisráði að huga að auðlindastefnu fyrir Dalvíkurbyggðar. Umhverfisráð leggur til við byggðaráð að þverfaglegur vinnuhópur fjögurra fagráða verði settur á laggirnar. Lagt er til að vinnuhópurinn verði skipaður sem hér segir: Einn fulltrúi úr Umhverfisráði, einn fulltrúi úr Atvinnumála- og kynningaráði, einn fulltrúi úr Veitu- og hafnaráði, einn fulltrúi úr Landbúnaðaráði. Einnig starfi starfsmenn viðkomandi fagráða með vinnuhópnum; Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, upplýsingafulltrúi og sveitarstjóri. Umhverfisráð leggur til að skoðað verði hvort huga ætti að því að samtvinna vinnu við Auðlindastefnu við vinnu við Atvinnustefnu sem þegar er hafin. Umhverfisráð bendir á að taka þarf ákvörðun um hvort greiða á kjörnum fulltrúum fyrir vinnuna og að ekki er gert ráð fyrir þeim kostnaði í fjárhagsáætlun 2015 og 2016. "
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela atvinnumála- og kynningaráði að halda utan um ofangreinda vinnu, í samvinnu við önnur ofangreind fagsvið og fagráð, og að það sé skoðað hvort það falli saman að vinna eina sameiginlega atvinnu- og auðlindastefnu í stað tveggja stefna.
Byggðaráð leggur til að starfsmenn ráðanna ásamt sveitarstjóra myndi vinnuhópinn og vinnan við stefnurnar verði til umfjöllunar í fagráðunum.
Byggðaráð leggur til að starfsmenn ráðanna ásamt sveitarstjóra myndi vinnuhópinn og vinnan við stefnurnar verði til umfjöllunar í fagráðunum.
10.
Frá 198. fundi fræðsluráðs þann 11.11.2015; Þjóðarsáttmáli um læsi
Á 198. fundi fræðsluráðs þann 11. nóvember 2015 var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði fylgdu greinargerðir stjórnenda leik- og grunnskóla Dalvíkurbyggðar, sömu og lágu fyrir síðasta fundi. Samkvæmt þeim rúmast kostnaður vegna sáttmálans innan fjárhagsramma Árskógarskóla nema til komi aukning á þörf fyrir sérfræðiþjónustu sem ekki er fyrirséð í dag. Dalvíkurskóli þarf viðbótarfjárveitingu upp á 6.700.000 krónur á ári vegna launakostnaðar til að bæta þjónustu við börn af erlendum uppruna. Innan fjárhagsramma rúmast 450.000 krónur vegna fræðslu starfsmanna. Leikskólarnir Krílakot og Kátakot þurfa 2.500.000 á ári vegna 50% aukningar í sérkennslu, 300.000 kr. til kaupa á málörvunarefni á næsta ári og 500.000 vegna Söguskjóða og námskeiða fyrir foreldra barna af erlendum uppruna. Ekkert af þessu rúmast innan núverandi fjárhagsramma. Fræðsluráð vísar þörf fyrir viðbótarfjármagn áfram til afgreiðslu í Byggðaráði Dalvíkurbyggðar."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta ofangreindu og felur nýjum sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að taka málið til skoðunar á nýju ári.
11.
Frá sveitarstjóra; Viðræður á milli Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar og Hafnasamlag Norðurlands; upplýsingar um stöðu mála.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála hvað varðar viðræður á milli Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar og Hafnasamlags Norðurlands um samstarf og/eða sameiningu.Á fundi veitu- og hafnaráðs þann 25. mars 2015 var lagt til að Pétur Sigurðsson og Óskar Óskarsson verði fulltrúar Dalvíkurbyggðar í viðræðuhópi sem hefur það verkefni að taka saman gögn sem gæfi glögga mynd af hugsanlegri sameiningu.
Lagt fram til kynningar.