Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
753. fundur
15. október 2015
kl.
13:00
-
16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Heiða Hilmarsdóttir
Varamaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá 71. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs; Framtíðarrekstur Tjaldsvæða í Dalvíkurbyggð.
Á 71. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 6. október 2015 var eftirfarandi bókað:"Íþrótta- og æskulýðsráð ræddi möguleikann á að bjóða út rekstur tjaldsvæða í Dalvíkurbyggð. Íþrótta- og æskulýðsráð telur ekki heppilegt að bjóða út reksturinn að svo stöddu og leggur til að reksturinn verði með óbreyttu sniði næsta sumar. "
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að beina því til íþrótta- og æskulýðsráðs að hugað verði að útboði á tjaldsvæðum Dalvíkurbyggðar á árinu 2016 með því markmiði að þessu verkefni verði útvistað á árinu 2017.
2.
Frá 71. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs; Laun nemenda Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar 2016.
Á 71. fundi íþrótta - og æskulýðsráðs þann 6. október 2015 var eftirfarandi bókað en þessu máli var vísað úr sveitarstjórn þann 15. september 2015 til ráðsins aftur til skoðunar: "íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti samanburð launa vinnuskóla við önnur sveitarfélög. Laun eru í sumum tilfellum hærri og sumum lægri. Íþrótta- og æskulýðsráð stendur við fyrri bókun og leggur til að laun nemenda Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar hækki um 3% fyrir árið 2016."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hækkun launa Vinnuskóla 2016 verði 6,95% sem er hækkun á launavísitölu yfir 12 mánaða tímabil.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hækka fjárhagsramma Vinnuskóla, deild 06-27, um kr. 186.000 vegna þessa.
Byggðaráð beinir því til íþrótta- og æskulýðsráðs að laun Vinnuskóla verði framvegis tengd ákveðnum viðmiðum, s.s. þróun á launavísitölu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hækka fjárhagsramma Vinnuskóla, deild 06-27, um kr. 186.000 vegna þessa.
Byggðaráð beinir því til íþrótta- og æskulýðsráðs að laun Vinnuskóla verði framvegis tengd ákveðnum viðmiðum, s.s. þróun á launavísitölu.
5.
Boð á stofnfund Soroptimistaklúbbs Tröllaskaga
Frestað.
6.
Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Ágóðahlutagreiðsla 2015.
Frestað.
7.
Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Fundargerð fulltrúaráðs EBÍ 2015.
Frestað.