Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
750. fundur
8. október 2015
kl.
13:00
-
16:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
4.
Fjárhagsáætlun 2016; Frá Leikfélagi Dalvíkur; Erindi vegna fjárhagsáætlunar 2016.
Undir þessum lið sat fundinn Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs.Kristján Guðmundsson vék af fundi kl. 15:55 vegna vanhæfis.Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi sem vísað var til umhverfisráðs á 744. fundi byggðarráðs frá Leikfélagi Dalvíkur, ódagsett en móttekið þann 15. júlí 2015, er varðar neðri hæðina í Ungó. LD leggur til við Dalvíkurbyggð að félagsmenn leikfélagsins taki á sig alla vinnu við að gera upp neðri hæðina og Dalvíkurbyggð myndi greiða efniskostnaðinn. Umhverfisráð leggur til að kostnaður við efniskaup vegna viðhalds á kjallara Ungó verði greiddur af eignasjóði ( 31). Sviðsstjóra falið að hafa umsjón og eftirlit með verkinu." Fyrir liggur gróf kostnaðaráætlun frá AVH að upphæð kr. 10.544.695 vegna vinnu og efnis vegna endurnýjunar kjallara, snyrtingar, eldhúskróks og búningsherbergis.Gróf skipting annars vegar á efniskostnaði og vinnukostnaði hins vegar er 48% / 52%,þ.e. efni áætlað kr. 5.061.454.Kristján kom inn á fundinn að nýju kl. 15:59.Börkur Þór vék af fundi kl. 16:00
Lagt fram til kynningar.