Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

745. fundur
10. september 2015 kl. 13:00 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
2.
Frá veitu- og hafnasviði; Fjárhags- og starfsáætlun 2016 - fyrirspurn um gjaldskrárhækkanir.
Málsnúmer 201508034
Á 36. fundi veitu- og hafnasviðs þann 2. september 2015 var eftirfarandi bókað:"Á fundinum voru kynntar tillögur að gjaldskrá fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar, Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar, Hitaveitu Dalvíkur og Fráveitu Dalvíkurbyggðar. Í þeim er gert ráð fyrir að þær taki breytingum byggingarvísitölu frá 1. september 2014 til 1. september 2015 samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar frá árinu 2014. Að auki voru kynnt ýmis vinnugögn sem tengjast vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun næsta árs. Veitu-og hafnaráð vekur athygli á því að byggingarvísitala hefur hækkað umtalsvert að undanförnu. Að framansögðu varpar þeirri fyrirspurn til byggðarráðs hvort fara eigi eftir þeirri forskrift sem samþykkt var á síðasta ári hvað varðar hækkanir á gjaldskrám sveitarfélagsins. "Samkvæmt forsendum með fjárhagsáætlun 2016-2019 liggur fyrir sú ákvörðun byggðaráðs að hækka skal allar tillögur að gjaldskrá fyrir árið 2016 samkvæmt vísitölum nema að annað sé ákveðið.Upplýst var á fundinum að á 37. fundi byggðaráðs þann 9. september 2015 samþykkti veitu- og hafnaráð tillögur að gjaldskrám fyrir vatnsveitu, fráveitu og hitaveitu með vísitöluhækkunum í samræmi við þær leiðbeiningar sem sveitarstjórn og byggðaráð hefur áður samþykkt.
Lagt fram til kynningar.
3.
Frá velferðarráðuneytinu; Móttaka flóttafólks og sveitarfélög.
Málsnúmer 201509018
Á 190. fundi félagsmálaráðs þann 8. september 2015 var eftirfarandi bókað:"7. 201509018 - Móttaka flóttafólks og sveitarfélögFélagsmálastjóri lagði fram erindi dags. 1. september 2015 frá Velferðarráðuneytinu. Í erindi ráðuneytisins segir að málefni flóttafólks hafi verið áberandi síðustu daga og vikur og hefur fjöldi sveitarfélaga lýst yfir í fjölmiðlum áhuga á að kanna forsendur þess að taka á móti flóttafólki. Móttaka flóttafólks er samstarfsverkefni ríkis, viðkomandi sveitarfélags og Rauða kross Íslands. Flóttamannanefnd starfar samkvæmt viðmiðunarreglum flóttamannanefndar um mótttöku og aðstoð við hóp flóttafólks. Við val á sveitarfélögum skal taka mið af aðstæðum öllum, þar með talið félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, atvinnuástandi, menntunarmöguleikum, möguleikum á húsnæði og öðru sem eftir atvikum skiptir máli hverju sinni. Enn fremur skal flóttafólki tryggð heilbrigðisþjónusta, íslenskukennsla og samfélagsfræðsla. Velferðarráðuneytið óskar því eftir upplýsingum um áhuga sveitarfélaganna við að taka á móti flóttafólki. Félagsmálaráð telur afar brýnt að staðið sé mjög vel að mótttöku flóttamanna. Til þess að aðlögun þeirra í samfélaginu gangi vel þarf öll grunn- og stoðþjónusta að vera til staðar og hefur ráðið meðal annars áhyggjur af húsnæði, atvinnumálum, túlka- og sálfræðiþjónustu og annarri sérfræðiþjónustu sem þarf að vera til staðar. "Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
4.
Frá forsætisráðuneytinu; Lög um verndarsvæði í byggð - innleiðing.
Málsnúmer 201509061
Tekið fyrir bréf frá forsætisráðuneytinu, dagsett þann 3. september 2015, þar sem fram kemur að síðast liðið vor samþykkti Alþingi lög um verndarsvæði í byggð, nr. 87/2015. Er lögunum ætlað að stuðla að vernd og varðveislu byggða sem hafa sögulegt gildi og ná þau til þéttbýlis og byggðarkjarna utan þéttbýlis sem ástæða er til að varðveita vegna svipmóts, menningarsögu eða listræns gildis. Í ljósi þess að sveitarfélögum er ætlað mikilvægt hlutverk í lögunum boða forsætisráðuneytið og Minjastofnun Íslands til kynningarfunda um hin nýsamþykktu lög víða um landið og er meðal annars fundur á Akureyri 16. september n.k. kl. 9:00.
Lagt fram til kynningar og sveitarstjóri sendir ofangreint á kjörna fulltrúa í menningaráði og umhverfisráði til upplýsingar.
6.
Frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu; Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016.
Málsnúmer 201509068
Guðmundur St. Jónsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 15:04.Tekið fyrir erindi frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, bréf dagsett þann 2. september 2015, þar sem ráðuneytið gefur bæjar- og sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2015/2016 á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum. Umsóknarfrestur er til 30. september n.k. Ráðuneytið hvetur sveitarstjórnarmenn að kynna sér innihald reglugerða um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga og úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa, frá 3. júlí 2015.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra að sækja um byggðarkvóta fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.

Guðmundur St. Jónsson kom inn á fundinn að nýju kl. 15:14.