Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
743. fundur
27. ágúst 2015
kl.
08:15
-
11:08
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varamaður
Heiða Hilmarsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsögn vegna rekstrarleyfis til sölu á gistingu
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, bréf dagsett þann 20. ágúst 2015, þar sem Unnur E. Hafstað Ármannsdóttir, kt. 220275-5669, Böggvisstöðum, 621. Dalvík, sækir um nýtt rekstrarleyfi til sölu heimagistingar að Böggvisstöðum, 621. Dalvík, Flokkur I.Óskað er umsagnar sveitarstjórnar um umsókn þessa.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
2.
Frá PACTA; Lögfræðiþjónusta fyrir Dalvíkurbyggð.
Á 704. fundi byggðaráðs þann 21. ágúst 2014 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá Lögheimtunni ehf. / PACTA lögmönnum, bréf dagsett þann 11. ágúst 2014, þar sem fram kemur að PACTA lögmenn hafa áhuga á því að bjóða Dalvíkurbyggð lögmannsþjónustu. Á 701. fundi byggðarráðs þann 26. júní 2014 var samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að kanna mögulega samstarfsaðila um lögfræðiþjónustu fyrir Dalvíkurbyggð.Lagt fram til kynningar.Málefni mögulegra samstarfsaðila um lögfræðiþjónustu fyrir Dalvíkurbyggð er enn til skoðunar hjá sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.Á 738. fundi byggðaráðs þann 18. júní 2015 var eftirfarandi bókað undir máli 201409059:"Á 707. fundi byggðaráðs þann 11. september 2014 var eftirfarandi bókað í tengslum við erindi frá Sókn lögmannastofu en í erindi þeirra frá 2. september 2014 er óskað eftir því að Sókn lögmannsstofa fái að gera sveitarfélaginu tilboð. Sambærileg erindi hafa borist frá Pétri Einarssyni (201406099), LEX (201406107), Lögmál ehf. (201407036), PACTA (201408018).'Lagt fram til kynningar.Málefni mögulegra samstarfsaðila um lögfræðiþjónustu fyrir Dalvíkurbyggð er enn til skoðunar hjá sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.' Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir verðum í lögmannaþjónustu frá PACTA"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að tilhögun lögmannaþjónustu fyrir Dalvíkurbyggð, dagsett þann 19. ágúst 2015, frá PACTA lögmönnum á Akureyri.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við PACTA lögmenn um lögmannaþjónustu fyrir Dalvíkurbyggð á grundvelli ofangreindar tillögu.
Byggðaráð felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs ofangreint verkefni.
Byggðaráð felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs ofangreint verkefni.
3.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Innkaupareglur Dalvíkurbyggðar, endurskoðun
Á 732. fundi byggðaráðs þann 22. apríl 2015 var eftirfarandi bókað: "727. fundi byggðaráðs þann 26. febrúar 2015 var eftirfarandi bókað: "Á 726. fundi byggðarráðs þann 12. febrúar s.l. var meðal annars eftirfarandi bókað: 'Með fundarboði byggðarráðs fylgdu innkaupareglunum með nokkrum tillögum að breytingum og/eða ábendingum um atriði sem vert er að taka til endurskoðunar. Lagt fram til kynningar og ofangreint verður áfram til umfjöllunar í byggðarráði.' Til umræðu ofangreint. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að leggja fyrir byggðarráð tillögu að breytingum á innkaupareglunum í samræmi við það sem um hefur verið rætt." Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að endurskoðunum innkaupreglum fyrir Dalvíkurbyggð til umræðu í byggðaráði. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna áfram að ofangreindum drögum og meðal annars fá umsögn framkvæmdastjórnar. "Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að endurskoðun innkaupareglna Dalvíkurbyggðar ásamt hugmyndum að viðmiðunarfjárhæðum, annars vegar vegna útboða og hins vegar vegna verðfyrirspurna.Endurskoðun á reglunum hefur verið til umræðu í framkvæmdastjórn á nokkrum fundum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar reglur eins og þær liggja fyrir með smá breytingum á fjárhæðum (rúnun) vegna útboða.
4.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði og Héraðsskjalasafni; Reglur Dalvíkurbyggðar um flokkun, skráningu og geymslu ljósmynda. Tillaga.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að reglum Dalvíkurbyggðar um meðferð og skráningu ljósmynda sem unnið hefur verið af fjármála- og stjórnsýslusviði og Héraðsskjalasafni Svarfdæla í samvinnu við stjórnendur sveitarfélagsins.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar reglur eins og þær liggja fyrir.
5.
Frá Fjármála- og stjórnsýslusviði; Reglur Dalvíkurbyggðar um töku orlofs. Tillaga.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga frá fjármála- og stjórnsýslusviði hvað varðar vinnureglur um töku orlofs. Tillagan hefur fengið umfjöllun á nokkrum fundum framkvæmdastjórnar.
Afgreiðslu frestað.
6.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2015; Stöðumat janúar - júlí 2015. Skil frá stjórnendum.
a) Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðumat stjórnenda Dalvíkurbyggðar fyrir janúar - júlí 2015 hvað varðar starfs- og fjárhagsáætlun 2015.Almennt er staðan metin í lagi með nokkrum undantekningum.b) Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti erindi frá leikskólastjóra Kátakots og Krílakots, dagsett þann 24. ágúst 2015, þar sem óskað er eftir eftirtöldum viðaukum við fjárhagsáætlun 2015:1. vegna veikinda starfsmanna á Krílakoti, kr. 1.892.000. 2. kr. 300.000 vegna ræstinga á Kátakoti og vegna ræstinga á Krílakoti kr. 203.000. Um er að ræða hækkun á þjónustusamningi við verktaka í kjölfar hækkana í kjarasamningum. 3. vegna snjómokstur kr. 130.000 vegna Kátakots og kr. 200.000 vegna Krílakots.Alls kr. 2.725.000.
a) Lagt fram til kynningar.
b) Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
b) Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
7.
Framkvæmdir og viðhald við sundlaug Dalvíkur. Tilnefning í vinnuhóp skv. fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar.
Valdís Guðbrandsdóttir vék af fundi undir þessum lið til annarra starfa, kl. 10:28.Á 741. fundi byggðaráðs þann 6. ágúst 2015 var eftirfarandi bókað:"Lagt fram tilboð frá Píp sf. í framkvæmdir og viðhald við sundlaug Dalvíkur. Tilboð útboðsins voru opnuð þann 9.júlí og barst aðeins eitt tilboð sem reyndist vera 44,2% yfir kostnaðaráætlun. Byggðaráð samþykkir með 3 atkvæðum að fresta framkvæmdum við sundlaug og felur sviðsstjóra að undirbúa nýtt útboð sem haldið yrði fyrir vorið 2016. Byggðaráð felur jafnframt sviðsstjóra að upplýsa tilboðsgjafa um að tilboði hans sem er 44,2% yfir kostnaðaráætlun sé hafnað. Byggðaráð setur saman vinnuhóp (bygginganefnd)sem fyrst, sem undirbýr málið og setur hönnun 2. áfanga af stað. Stefnt er að því að bjóða út 1. og 2. áfanga sameiginlega með það að markmiði að framkvæmdir við 1. áfanga geti hafist vorið 2016. "Samkvæmt fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar er gert ráð fyrir að skipun vinnuhópa sé með eftirfarandi hætti: d) Vinnuhópar vegna nýframkvæmda og endurbóta.Þegar ákveðið er að fara af stað með nýframkvæmd og /eða verulegar endurbætur á fasteignog/eða öðrum fastafjármunum skal setja á laggirnar sérstakan vinnuhóp sem er þannigsamansettur:d.1. Stýrihópur verkefnis (4-5) : Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs þegar það á við,formaður fagráðs eða 1 aðalmaður fagráðs, sveitarstjóri eða 1 aðalmaður úr byggðaráði,sviðsstjóri fagsviðs og/eða viðkomandi stjórnandi.d.2. Rýnihópur verkefnis (5-7): Hafa skal virkt samráð við starfsmenn eða aðrahagsmunaaðila sem koma til með að starfa í og/eða nýta viðkomandi fasteign eðafastafjármun.Skrá skal fundargerðir og þær settar sem mál á dagskrá í viðkomandi fagráðum.Byggðarráð tekur ákvörðun um hvort ástæða sé til þess að skipa vinnuhópa og samsetninguvinnuhópa. Ákvörðun um skipun vinnuhóps þarf að liggja fyrir samhliða ákvörðun umfjárfestingar og framkvæmdir í fjárhagsáætlun. Jafnframt þarf að liggja fyrir hvort vinnuhóparséu launaðir.
Til umræðu skipun í ofangreinda hópa. Afgreiðslu frestað.
8.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 35, frá 19. ágúst 2015.
Til afgreiðslu:Liður 1.Liður 2.