Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

742. fundur
20. ágúst 2015 kl. 13:00 - 15:48
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Málefni Húsabakka
Málsnúmer 201503150
Á 741. fundi byggðaráðs þann 6. ágúst s.l. var eftirfarandi bókað:"Lagt fram minnisblað undirritað af sveitarstjóra og framkv.stjóra Húsabakka ehf. auk þess lagt fram svar fjármálaráðuneytis vegna fyrirspurnar Dalvíkurbyggðar um eignarhluta ríkisins og ýmis praktísk atriði. Niðurstaða Byggðaráð felur sveitarstjóra að fylgja málinu áfram gagnvart ríkinu og Húsabakka ehf. í samræmi við umræður á fundinum. "Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
2.
Fjárhagsáætlun 2016-2019; Forsendur með fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 201508033
a) Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti samantekt er inniheldur forsendur Dalvíkurbyggðar vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2016-2019, almennar og sértækar forsendur, sem er hluti af vinnugögnum með starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar.b) Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti erindi frá íþrótta - og æskulýðsfulltrúa, móttekið þann 19. ágúst 2015, er varðar tillögu að breyttu skráningarfyrirkomulagi Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar. Lagt er til að kostnaður við 60% af kostnaði við vinnuskóla (þ.e. laun nemenda og flokkstjóra) verði seldur út til þeirra aðila sem njóta þjónustu vinnuskólans. Þar eru opin svæði stærsti aðilinn. Hin 40% er hugsað sem kostnaður við skólann, námskeið flokkstjóra, nemenda sem og starfsþjálfun nemenda. Skipting á 60% hluta stofnana og opinna svæða (8.460.000) yrði þá eftirfarandi og gera þarf á viðeigandi tilfærslur á samþykktum fjárhagsramma fyrir árið 2016:Kátakot1,5% 126.900 Krílakot1,5% 126.900 Tónlistarskóli1,0% 84.600 Sundlaug2,0% 169.200 Hvoll1,0% 84.600 Árskógarskóli 1,5% 126.900 Dalvíkurskóli1,5% 126.900 Opin svæði90,0% 7.614.000
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum forsendur með fjárhagsáætlun eins og þær liggja fyrir með þeirri breytingu að laun kjörinna fulltrúa vegna funda og ráðstefna vegna heils dags verða kr. 25.000 og laun vegna 1/2 dags verða kr. 15.000. Framvegis taki þessi liður hækkun skv. launavísitölu eða fyrst frá 1.1.2017.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa eins og hún liggur fyrir.
3.
Frá íþrótta - og æskulýðsfulltrúa; Ósk um heimild til sölu á Mitsubishi L200 biðfreið Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201508017
Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, bréf dagsett þann 12. ágúst 2015, þar sem óskað er eftir leyfi og umboði til að selja Mitsubishi L200 bifreið vinnuskólans með fastanúmerinu YG-203. Bifreiðin hefur verið tekin úr notkun og númer lögð inn. Bifreiðin er árgerð 1991 og hefur ekki verið notuð síðan haust 2014. Ef heimild fæst yrði bifreiðin auglýst til sölu á heimasíðu Dalvíkurbyggðar og óskað eftir tilboðum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita íþrótta- og æskulýðsfulltrúa heimild og umboð til að auglýsa og selja ofangreinda bifreið.
4.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Leiðbeiningar varðandi gjafir til fyrirtækja og félaga.
Málsnúmer 201406080
Á 732. fundi byggðaráðs þann 22. apríl 2015 var eftirfarandi bókað:"Á 1. fundi atvinnumála- og kynningaráðs þann 10. júlí 2014 var eftirfarandi bókað: "Að gefnum tilefnum kom til umræðu hvort ástæða væri til að Dalvíkurbyggð setti sér vinnureglur varðandi gjafir til fyrirtækja og félaga, t.d. vegna stórafmæla. Sviðsstjóri upplýsti að almennt virðist vera að sveitarfélög hafi ekki sett sér slíkar reglur með formlegum hætti. Til umræðu ofangreint. Frekari umfjöllun frestað til næsta fundar. " Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að móta drög að reglum hvað varðar viðmið áfangagjafa til fyrirtækja og félaga og hafa til hliðsjónar það sem tíðkast hefur í þessum efnum á undanförnum árum. "Með fundarboði byggðaráðs fylgdi drög að leiðbeiningum hvað varðar gjafir til fyrirtækja og félaga.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar leiðbeiningar eins og þær liggja fyrir.
5.
Frá Myntu ehf.; Kynning á innheimtuhugbúnaði
Málsnúmer 201506110
Tekið fyrir bréf frá viðskiptastjóra hjá Myntu innheimtuhugbúnað og þjónustu, dagsett þann 13. ágúst s.l., þar sem óskað er eftir því að kynna fyrir Dalvíkurbyggð þær þjónustleiðir sem standa til boða til hagræðingar og sveigjanleika fyrir sveitarfélagið.
Lagt fram til kynningar.
6.
Umhverfisráð - 266, frá 06.08.2015.
Málsnúmer 1507003F