Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
725. fundur
29. janúar 2015
kl.
13:00
-
16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Íbúafundur, tillaga frá formanni byggðarráðs.
Undir þessum lið kom Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, á fundinn kl. 13:34.Á 724. fundi byggðarráðs þann 22. janúar 2015 var eftirfarandi bókað:Á fundinum var kynnt tillaga formanns byggðarráðs um að halda íbúafund um almennt málefni sveitarfélagsins. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að móta tillögu að spurningum sem nota mætti í könnun í gegnum Íbúagáttina til að nálgast hvert þema íbúafundar ætti að vera og hvað brennur mest á íbúum sveitarfélagsins. Upplýsingafulltrúi kynnti hugmynd að því hvernig spurning/ar í gegnum Íbúagáttina gætu verið settar upp.Ofangreint til umræðu og ýmsar hugmyndir um framsetningu á fundinum.Margrét vék af fundi kl.13:50
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að koma með tillögu að uppsetningu fundarins og dagsetningu.
3.
Frá Viðlagatryggingu Íslands; Mannvirki sem skylt er tryggja hjá Viðlagatryggingu Íslands.
Tekið fyrir erindi frá Viðlagatryggingu Íslands, bréf dagsett þann 16. janúar 2015, þar sem vakin er athygli á vátryggingarskyldu á mannvirkjum þótt þau séu ekki brunatryggð, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 55/1992 um Viðlagatryggingu Íslands. Um er að ræða eftirtalin mannvirki:1. Hitaveitur, vatnsveitur og skolpveitur í eigu sveitarfélaga eða ríkissjóðs.2. Hafnarmannvirki í eigu sveitarfélaga eða ríkissjóðs.3. Brýr sem eru 50 m eða lengri.4. Raforkuvirki, þar á meðal dreifikerfi, stíflur og veitumannvirki í eigu hins opinbera.5. Síma- og fjarskiptamannvirki í eigu hins opinbera.6. Skíðalyftur.Eigendur mannvirkja sem falla undir ofangreind skulu fyrir 1. mars á hverju ári senda VÍ viðeigandi upplýsingar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs.
4.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; XXIX. landsþing sambandsins.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 22. janúar 2015, þar sem fram kemur að XXIX. landsþing Sambandsins verður haldið föstudaginn 17. apríl í Salnum í Kópavogi.
Lagt fram til kynningar.
5.
Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2014 vegna snjómoksturs.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, rafpóstur dagsettur þann 20. janúar 2015, þar sem fram kemur að kostnaður vegna snjómoksturs- og hálkuvarna fyrir árið 2014 verður kr. 5.334.282, umfram heimild en áður var búið að veita viðauka að upphæð kr. 5.000.000. Áætlun 2014 gerðir ráð fyrir kr. 19.938.000 en bókfærð staða 29.01.2014 er kr. 24.760.529.
Lagt fram til kynningar.
6.
Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Staða bókhalds í samanburði við fjárhagsáætlun, janúar - desember 2014, drög.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðulista bókhalds í samanburði við fjárhagsáætlun 2014, miðað við bókfærða stöðu 29.1.2015. Einnig var kynnt samantekið yfirlit fyrir A- og B- hluta hvað varðar rekstrarniðurstöðu 2014; drög. Vinna við uppgjör, endurskoðun og ársreikning 2014 hófst á árinu 2014 og er í vinnslu.
Lagt fram til kynningar.