Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

721. fundur
18. desember 2014 kl. 08:15 - 15:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Valdemar Þór Viðarsson Varamaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varamaður
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Frá 21. fundi veitu- og hafnaráðs; Endurnýjun á samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla.
Málsnúmer 201410305
Á 21. fundi veitu- og hafnaráðs þann 3. desember s.l. var eftirfarandi bókað:Þessu erindi var frestað á 20. fundi ráðsins.Á 257. fundi Umhverfisráðs Dalvíkurbyggðar þann 7. nóvember sl., var tekið fyrir ofangreint erindi.Lagður fram til staðfestingar endurnýjaður samstarfssamningur milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla. Á fundi umhverfisráðs var eftirfarandi fært til bókar. "Þar sem greiðslur vegna þessa styrkjar hafa verið greiddar af umhverfisverkefnum veitna undanfarin ár vísar umhverfisráð samningnum til veitu- og hafnaráðs." Veitu- og hafnaráð hafnar erindinu og vísar því til byggðarráðs til afgreiðslu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar í framkvæmdastjórn.

Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir formlegu erindi frá Ferðafélagi Svarfdæla um endurnýjun á samningi ásamt upplýsingum um forsendur á bak við endurnýjun.

Einnig óskar byggðarráð eftir upplýsingum um hlutverk og samþykktir Ferðafélags Svarfdæla.
3.
Frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg; Upplýsingaskjáir fyrir ferðamenn.
Málsnúmer 201412111
Tekið fyrir erindi frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg, rafpóstur dagsettur þann 26. nóvember 2014 þar sem þess er óskað að sveitarfélagið kosti upplýsingaskjá fyrir ferðamenn í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar.Slysavarnarfélaginu Landsbjörg langar að setja upp skjáupplýsingakerfi en óskar eftir að Dalvíkurbyggð fjármagni verkefnið sem er áætlað að kosti kr. 290.000 án vsk. Í þeirri upphæð er innifalið eftirfarandi: sjónvarpið, tölvan og uppsetning á því efni sem þarna verður sett fram og rekstur á kerfinu um aldur og ævi sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg sér um.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fjárveitingu að upphæð kr. 290.000 fyrir utan vsk í ofangreint verkefni. Vísað á lið 47-31-4980; umhverfisverkefni Hituveitu Dalvíkur.
4.
Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Viðbygging við Krílakot.
Málsnúmer 201311112
Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 12. desember 2014 frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs þar sem meðfylgjandi eru í viðhengi nýjustu teikningar af viðbyggingu við Krílakot sem væntanlega verða lokateikningar. Upplýst er að stærð viðbyggingar hefur örlítið stækkað, eða um 7 m2.Næstu skerf eru að fá hönnuði til að fara á fullt í áframhaldandi hönnun.
Lagt fram til kynningar.
5.
Ímynd Dalvíkurbyggðar, skv. starfsáætlun 2014; tilnefning vinnuhóps vegna áfanga #3.
Málsnúmer 201401050
Á 718. fundi byggðarráð þann 20. nóvember 2014 var eftirfarandi bókað:Undir þessum lið kom á fund byggðarráðs Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, kl. 8:42.Á 691. fundi byggðarráðs þann 20. febrúar 2014 var kynnt drög að verkefnalýsingu og verkefnaáætlun vegna verkefnavinnu um Ímynd Dalvíkurbyggðar.Í ferlinu er nú komið að því að setja saman vinnuhóp vegna áfanga #3; Ímynd Dalvíkurbyggðar sem samfélags. Lagt er til að vinnuhópinn skipi; vinnuhópurinn sem hefur komið að áfanga #1 og #2, 2-3 kjörnir fulltrúar og 2 úr samfélaginu.Þeir sem eru nú í vinnuhópnum eru:Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi.Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálaviðs.Ingvar Kristinsson, umsjónarmaður fasteigna.Óli Þór Jóhannsson, starfsmaður veitu- og hafnasviðs.Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins Hvols.Margrét vék af fundi kl. 08:57. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að auglýsa á www.dalvikurbyggd.is eftir íbúum í ofangreindan vinnuhóp. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti um hvað kom út úr auglýsingu sveitarfélagsins eftir áhugasömum íbúum í vinnuhópinn.
Byggðarráð leggur til að Valdemar Viðarsson og Kristján Guðmundsson verði fulltrúar byggðarráðs sem og fulltrúi nr. 3 verði úr atvinnumála- og kynningarráði.

Svanfríður Inga Jónasdóttir hefur gefið kost á sér í vinnuhópinn sem íbúi. Byggðarráð felur einnig sveitarstjóra að finna karlmann í vinnuhópinn sem fulltrúa íbúa.
7.
Frá Greiðri leið ehf; Fundargerðir aðalfundar Greiðrar leiðar.
Málsnúmer 201412119
Til kynningar undirritaðar fundargerðir aðalfundar Greiðrar leiðar 10. júní s.l. og framhaldsaðalfundar 14. ágúst s.l.
Lagt fram til kynningar.