Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
718. fundur
20. nóvember 2014
kl.
08:15
-
12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá félagi byggingafulltrúa; Gæðastjórnunarkerfi fyrir byggingafulltrúa.
Tekið fyrir bréf frá Félagi byggingafulltrúa, dagsett þann 7. nóvember 2014, þar sem fram kemur að samkvæmt ákvæðum Mannvirkjalaga og byggingarreglugerðar er gerð krafa um að frá og með 1. janúar 2015 skuli byggingarfulltrúar, auk hönnuða, iðnmeistara og byggingarstjóra, vera búnir að koma sér upp og innleiða gæðastjórnunarkerfi fyrir störf sín og afgreiðslur.Í gegnum félagið var unnið að sameiginlegri gæðastjórnunarhandbók fyrir alla byggingafulltrúa með rafrænum gögnum.Upplýst var á fundinum að Dalvíkurbyggð tekur þátt í ofangreindu og hefur einnig fest kaup á og innleitt rafrænt gæðastjórnunarkerfi; OneQuality.
Lagt fram til kynningar.
2.
Frá nefndasviði Alþingis; Endurskoðun laga um lögheimili.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 10. nóvember 2014, þar sem fram kemur að allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili, 33. mál. Óskað er umsagnar eigi síðar en 28. nóvember n.k.
Lagt fram.
3.
Frá nefndasviði Alþingis; Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 17. nóvember 2014, þar sem fram kemur að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar umsagar frumvarps til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars), 29. mál. Þess er óskað að umsögn berist eigi síðar en 4. desember n.k.
Lagt fram.
4.
Frá innanríkisráðuneytinu; Skil á fjárhagsáætlun áranna 2015-2018.
Tekið fyrir bréf frá innanríkisráðuneytinu, dagsett þann 10. nóvember 2014, þar sem minnt er á skil og fyrirkomulag skila á fjárhagsáætlun sveitarfélaga fyrir árin 2015-2018 til Hagstofu Íslands að aflokinni síðari umræðu í sveitarstjórn.
Lagt fram.
5.
Ímynd Dalvíkurbyggðar, skv. starfsáætlun 2014. Tilnefning fulltrúa í vinnuhóp vegna áfanga #3.
Undir þessum lið kom á fund byggðarráðs Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, kl. 8:42.Á 691. fundi byggðarráðs þann 20. febrúar 2014 var kynnt drög að verkefnalýsingu og verkefnaáætlun vegna verkefnavinnu um Ímynd Dalvíkurbyggðar.Í ferlinu er nú komið að því að setja saman vinnuhóp vegna áfanga #3; Ímynd Dalvíkurbyggðar sem samfélags. Lagt er til að vinnuhópinn skipi; vinnuhópurinn sem hefur komið að áfanga #1 og #2, 2-3 kjörnir fulltrúar og 2 úr samfélaginu.Þeir sem eru nú í vinnuhópnum eru:Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi.Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálaviðs.Ingvar Kristinsson, umsjónarmaður fasteigna.Óli Þór Jóhannsson, starfsmaður veitu- og hafnasviðs.Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins Hvols.Margrét vék af fundi kl. 08:57.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að auglýsa á www.dalvikurbyggd.is eftir íbúum í ofangreindan vinnuhóp.
6.
Upplýsingamiðstöð; rekstur 2015
Frestað.
8.
Fjárhagsáætlun 2015; Afsláttur fasteignaskatts 2015 til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþegar; endurskoðun reglna.
Með fundarboði byggðarráðs fylgdu reglur Dalvíkurbyggðar um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2014 til endurskoðunar fyrir árið 2015.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að afsláttur skv. 4. gr. hækki samkvæmt launavísitölu miðað við október / október.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að afsláttur verði tekjutengdur og taki breytingum samkvæmt launavísitölu miðað við október / október.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ofangreindar fjárhæðir hækki samkvæmt launavísitölu framvegis nema að annað sé ákveðið.
Að öðru leiti standi reglurnar óbreyttar á milli ára.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að afsláttur verði tekjutengdur og taki breytingum samkvæmt launavísitölu miðað við október / október.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ofangreindar fjárhæðir hækki samkvæmt launavísitölu framvegis nema að annað sé ákveðið.
Að öðru leiti standi reglurnar óbreyttar á milli ára.
10.
Frá 262. fundi sveitarstjórnar þann 28. október 2014; breyting á texta í samþykkt um laun og fundaþóknanir kjörinna fulltrúa.
Gunnþór vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 11:33 og varaformaður tók við fundarstjórn.Á 262. fundi sveitarstjórnar þann 28. október 2014 var samþykkt eftirfarandi tillaga:Með vísan til erindis formanns byggðaráðs vill forseti sveitarstjórnar leggja til að erindinu verði vísað frá. Jafnframt er lagt til, þar sem samþykkt um laun kjörinna fulltrúa frá 18. júní s.l. má misskilja, að byggðaráð taki fyrir þessa samþykkt og geri breytingar án efnisbreytingar en skýri betur í texta hvað felst í henni.Með fundarboði byggðarráðs fylgdi tillaga sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að breyttum texta.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda tillögu.
Gunnþór kom að fundinn að nýju kl. 11:35.
Gunnþór kom að fundinn að nýju kl. 11:35.
11.
Stöðumat janúar - september 2014; skil frá stjórnendum.
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs lagði fram og kynnti skil stjórnenda hvað varðar stöðumat á starfs- og fjárhagsáætlun 2014, janúar - september.Almennt er mat stjórnenda að staða rekstrar og fjárfestinga er í lagi með nokkrum undantekningum. Eitt af því er málefni fatlaðra í málaflokki 02.Með stöðumatinu fylgdi erindi frá sviðsstjóra félagsmálasviðs þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagáætlun 2014, deild 02-11 fjárhagsaðstoð, að upphæð kr. 2.200.000. Einnig óskar sviðsstjóri eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2014, deild 57-30, að upphæð kr. 2.560.000 vegna félagslegar íbúða, og kr. 160.000 vegna deildar 57-40 vegna hússjóða Félagslegra íbúða.Með stöðumati umhverfis- og tæknisviðs fylgdi erindi frá sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 7. nóvember 2014, er varðar beiðnir um tilfærslur á milli deilda í málaflokki 31 er varðar viðhald.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra, sviðsstjóra félagsmálasviðs og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda erindi til Rætur bs. og óska eftir upplýsingum og skýringum í samræmi við umræður á fundinum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að eiga fundi með einstökum stjórnendum um frávik frá heimildum í fjárhagsáætlun eftir því sem við á.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að eiga fundi með einstökum stjórnendum um frávik frá heimildum í fjárhagsáætlun eftir því sem við á.
12.
Verkfall tónlistarskólakennara; upplýsingar.
Til umfjöllunar verkfall tónlistarskólakennara og staða mála.
Lagt fram.
13.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 821. fundur stjórnar.
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 821. fundur.
Lagt fram.
14.
Frá Eyþingi; fundargerðir stjórnar nr. 258, 259 og 260.
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Eyþings nr. 258, nr. 259 og nr. 260.
Lagt fram.