Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
714. fundur
23. október 2014
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Frá Hagstofu Íslands; Beiðni um athugasemdir vegna skiptingar landsins í 40 talningasvæði.
Kristján Guðmundsson kom inn á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 09:46.Tekið fyrir erindi frá Hagstofu Íslands, bréf dagsett þann 14. október 2014, þar sem kynnt er tillaga í meðfylgjandi minnisblaði um skiptingu manntalsins 2011 í 40 talningarsvæði. Ef Dalvíkurbyggð hefur athugasemdir eða ábendingar við þessa landfræðilegu skiptingu á manntalsefninu er óskað eftir að þær berist fyrir 7. nóvember n.k.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð hefur ekki athugasemdir og/eða ábendingar hvað ofangreint varðar.
3.
Frá forsætisráðuneytinu; Upplýsingar um framkvæmd verðhækkana.
Tekið fyrir erindi frá forsætisráðuneytinu, bréf dagsett þann 10. október 2014, þar sem óskað er eftir upplýsingum um framkvæmd verðhækkana. Markmið með þessu erindi er að afla upplýsinga um hvernig staðið sé að verðhækkunum á opinberum gjaldskrám og þjónustusamningum og hvernig þær verðbreytingar eru ákvarðaðar. Sérstök nefnd hefur verið starfandi frá 9. júlí s.l. er fjallar um ofangreint og óskar hún svara eigi síðar en 30. október n.k.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að svara ofangreindu erindi.
5.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 820. fundur stjórnar.
Lögð fram til kynningar 820. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8. október s.l.
Lagt fram.