Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

710. fundur
7. október 2014 kl. 15:00 - 18:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Varamaður
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
3.
Hlutabréf í Tækifæri hf.
Málsnúmer 201312024
Á 710. fundi byggðarráðs þann 3. október 2014 var eftirfarandi bókað:7. 201312024 - Hlutabréf í Tækifæri hf.Á 685. fundi byggðarráðs þann 12. desember 2013 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá Tækifæri hf., bréf dagsett þann 3. desember 2013, þar sem fram kemur að KEA svf. hefur gert tilboð í eignarhluta fjögurra hluthafa í hluthafahópi Tækifæris hf. og nemur greiðslufjárhæð fyrir eignarhlutina 49,5% af nafnviðri þeirra. Dalvíkurbyggð er hér með boðið að nýta forkaupsrétt sinn að hlutabréfum Íslandsbanka hf., Arion banka hf., LBI hf og Glitnis hf. í hlutfalli við hlutafjáreign í félaginu.Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að nýta sér ekki forkaupsréttinn.Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að ræða við Tækifæri hf. um vilja byggðarráðs um sölu á eignarhlut sínum í Tækifæri hf. Eignarhluti Dalvíkurbyggðar að nafnvirði er kr. 6.897.040. Bókfært virði eignarhuta Dalvíkurbyggðar samkvæmt ársreikningi 2013 er kr. 12.178.000.Fyrir liggur að KEA er nú tilbúið að ganga frá kaupum á eignarhluta Dalvíkurbyggðar í Tækifæri á ofangreindum forsendum eða á kr. 3.414.035. Dalvíkurbyggð þyrfti því að afskrifa kr. 8.763.965.Afgreiðslu frestað.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ganga ekki að ofangreindu tilboði KEA í hlutfjárbréfaeign Dalvíkurbyggðar í Tækifæri hf, og leggur til við sveitarstjórn að Dalvíkurbyggð eigi hlut sinn áfram.
4.
Frá Landsbyggðin lifir; Beiði um styrk vegna aðalfundar.
Málsnúmer 201409102
Tekið fyrir erindi frá Landbyggðin lifir, Björgvini Hjörleifssyni, er barst sveitarstjóra dagsett þann 15.09.2014. Óskað er eftir kr. 15.000 styrk vegna súpu og brauðs vegna aðalfundar sem haldinn var á Árskógsströnd 28. september s.l. Kostnaður við fundinn er áætlaður kr. 260.000, þarf af veitingar kr. 45.000.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi.
5.
Frá 255. fundi umhverfisráðs þann 19.09.2014; Grundargata, 15 á Dalvík vegna sandfoks úr fjörunni.Varðar seinni málsgrein í samþykkt umhverfisráðs er snýr að árinu 2014.
Málsnúmer 201306068
Á 255. fundi umhverfisráðs þann 19. september 2014 var eftirfarandi bókað:Með innsendu erindi dags. 27. ágúst 2014 óska eigendur Grundargötu 15, Dalvík þau Ari Jón Kjartansson og Elín Ása Hreiðarsdóttir eftir varanlegri lausn á því sandfoki sem er við húsið. Umhverfisráð leggur til við byggðarráð að fjármunir verði tryggðir til verksins svo hægt verði að flytja sjóvarnargarð við Sandskeið utar í áföngum næstu árin.Ráðið leggur til að þeir fjármunir sem ætlaðir eru á þessum lið verði nýttir til flutnings á sandi af umræddu svæði.
Afgreiðslu frestað og byggðarráð óskar eftir nánari upplýsingum frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs um ofangreinda framkvæmd og gildi hennar sem hluti af varanlegri lausn.
6.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2014; heildarviðauki II
Málsnúmer 201409069
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti drög að heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2014, sett fram í fjárhagsáætlunarlíkani. Heildarviðaukinn er í samræmi við þá viðauka sem samþykktir hafa verið í byggðarráði eftir 18. júní s.l.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2014, með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa heildarviðaukanum til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
7.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 818. fundur stjórnar.
Málsnúmer 201402022
Lögð fram til kynningar 819. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24. september 2014.
Lagt fram.