Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

709. fundur
2. október 2014 kl. 08:15 - 12:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
3.
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga; Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2014.
Málsnúmer 201409147
Tekið fyrir bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dagsett þann 18. september 2014, þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga miðvikudaginn 8. október n.k. kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
4.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2014.
Málsnúmer 201409175
Tekið fyrir rafbréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 29. september 2014, þar sem kynnt er dagskrá fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2014. Ráðstefnan er haldin 9. og 10. október n.k. á Hilton Hótel Nordica.
Að venju mun byggðarráð, sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs sækja ráðstefnuna.
5.
Frá Flokkun Eyjafjörður ehf.; Aðalfundur Flokkunar 2014.
Málsnúmer 201409138
Tekið fyrir erindi frá Flokkun Eyjafjörður ehf., bréf dagsett þann 19. september 2014, þar sem boðað er til aðalfundar Flokkunar Eyjafjörður ehf., mánudaginn 6. október n.k. kl. 14:00 á Hótel KEA á Akureyri.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitastjóri sæki fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og fari með umboð Dalvíkurbyggðar á fundinn.
7.
Hlutabréf í Tækifæri hf.
Málsnúmer 201312024
Á 685. fundi byggðarráðs þann 12. desember 2013 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá Tækifæri hf., bréf dagsett þann 3. desember 2013, þar sem fram kemur að KEA svf. hefur gert tilboð í eignarhluta fjögurra hluthafa í hluthafahópi Tækifæris hf. og nemur greiðslufjárhæð fyrir eignarhlutina 49,5% af nafnviðri þeirra. Dalvíkurbyggð er hér með boðið að nýta forkaupsrétt sinn að hlutabréfum Íslandsbanka hf., Arion banka hf., LBI hf og Glitnis hf. í hlutfalli við hlutafjáreign í félaginu. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að nýta sér ekki forkaupsréttinn.Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að ræða við Tækifæri hf. um vilja byggðarráðs um sölu á eignarhlut sínum í Tækifæri hf. Eignarhluti Dalvíkurbyggðar að nafnvirði er kr. 6.897.040. Bókfært virði eignarhuta Dalvíkurbyggðar samkvæmt ársreikningi 2013 er kr. 12.178.000.Fyrir liggur að KEA er nú tilbúið að ganga frá kaupum á eignarhluta Dalvíkurbyggðar í Tækifæri á ofangreindum forsendum eða á kr. 3.414.035. Dalvíkurbyggð þyrfti því að afskrifa kr. 8.763.965.
Afgreiðslu frestað.
8.
Frá Landbyggðin lifir; Beiðni um styrk vegna aðalfundar.
Málsnúmer 201409102
Frestað.
9.
Frá 255. fundi umhverfisráðs þann 19.09.2014; Grundargata, 15 á Dalvík vegna sandfoks úr fjörunni. Varðar seinni málsgrein í samþykkt umhverfisráðs er snýr að árinu 2014.
Málsnúmer 201306068
Frestað.
10.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2014; heildarviðauki II.
Málsnúmer 201409069
Frestað.
11.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 818. fundur stjórnar.
Málsnúmer 201402022
Frestað.