Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

705. fundur
28. ágúst 2014 kl. 08:15 - 12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Félagslegar íbúðir; Leiga og sala á íbúðum í eigu Dalvíkurbyggðar; staða mála.
Málsnúmer 201408041
Undir þessum lið kom á fund byggðarráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, kl. 8:15.Til umræðu staða mála hvað varðar útleigu og sölu á íbúðum í eigu Dalvíkurbyggðar.Sveitarfélagið á nú 18 íbúðir á Dalvík og 13 íbúðir á Árskógsströnd eða alls 31 íbúð. Allar íbúðirnar eru í útleigu nema ein á Árskógsströnd.Stefnt hefur verið á til lengri tíma að sveitarfélagið eigi 4 íbúðir til ráðstöfunar á Dalvík, þar að auki eru 2 fyrir aldraða í Kirkjuvegi og 1 íbúð í Skógarhólum vegna Skammtímavistunar. Á Árskógsströnd er gert ráð fyrir að eiga 3 íbúðir til lengri tíma. Alls 10 íbúðir. Eyrún vék af fundi kl. 08:51.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að stefna að því að fækka íbúðum í eigu Dalvíkurbyggðar um um það bil helming á næstu 3 árum. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá faglegt verðmat á öllum íbúðum í eigum Dalvikurbyggðar. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að koma með tillögu að sölu íbúða.
2.
Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa; endurskoðun í upphafi kjörtímabils.
Málsnúmer 201408022
Á 704. fundi byggðarráðs þann 21. ágúst 2014 var eftirfarandi bókað:Með fundarboði byggðarráðs fylgdu gildandi siðareglur kjörinna fulltrúa í Dalvíkurbyggð. Samkvæmt 9. lið reglnanna skulu siðareglur þessar teknar til umræðu í bæjarstjórn í upphafi hvers kjörtímabils og endurskoðaðar ef þörf þykir.Byggðarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að uppfæra reglurnar þannig að bæjarfulltrúi verði sveitarstjórnarfulltrúi.Reglurnar komi fyrir byggðarráð að nýju. Með fundarboði byggðarráðs fylgdu uppfærð drög í samræmi við ofangreint.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að siðareglum fyrir kjörna fulltrúa í Dalvíkurbyggð eins og þær liggja fyrir og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
3.
Frá slökkviliðsstjóra; Beiðni um viðbótarfjárveitingu til smíði á slöngulagnabíl.
Málsnúmer 201408050
Tekið fyrir erindi frá slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar, bréf dagsett þann 26. ágúst 2014, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2014 vegna slöngulagnabíls. Á gildandi fjárhagsáætlun er heimild fyrir kr. 5.000.000. Heildarkostnaður við bílinn er í dag orðinn kr. 4.523.603 og óskað er eftir kr. 1.500.000 til viðbótar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu og óskar eftir nánari upplýsingum.
4.
Frá 253. fundi umhverfisráðs; Frá Helgu Björk Eiríksdóttur; Umsókn um endurnýjun á byggingarleyfi.
Málsnúmer 201408008
Á 704. fundi byggðarráðs þann 21. ágúst 2014 var frestað afgreiðslu á eftirfarandi lið frá 253. fundi umhverfisráðs frá 8. ágúst 2014,8. liður, og samþykkt að óska frekari upplýsinga.201408008 - Umsókn um endurnýjun á byggingarleyfiMeð rafpósti dags. 01. ágúst 2014 óskar Logi Már Einarsson fyrir hönd lóðarhafa Hamars lóð B3 eftir endurnýjun á byggingarleyfi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.Umhverfisráð samþykkir með fjórum atkvæðum og felur sviðsstjóra að ganga frá endurnýjun á leyfinu þegar tilskilin gögn hafa borist. Kristín Dögg Jónsdóttir situr hjá.Formaður byggðarráðs upplýsti að nýtt deiliskipulag hefur ekki tekið gildi.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs og umsókn um endurnýju á byggingarleyfi.
5.
Frá Ríkisútvarpinu; Þátttaka í spurningaþættinum Útsvari.
Málsnúmer 201408040
Tekið fyrir erindi frá Ríkisútvarpinu, rafpóstur dagsettur þann 25. ágúst 2014, þar sem fram kemur að Útsvar verður á dagskrá áttunda veturinn í röð og óskar eftir staðfestingu á þátttöku sem allra fyrst.Óskað er jafnframt eftir nöfnum, símanúmerum og netföngum keppenda sem allra fyrst.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð taki þátt og felur upplýsingafulltrúa auglýsa eftir tilnefningum á heimasíðu sveitarfélagsins og halda utan um.
7.
Fjárhagsáætlun 2015; Álagning fasteigna- og þjónustugjalda.
Málsnúmer 201408033
Til umfjöllunar álagning fasteigna- og þjónustugjalda fyrir árið 2015 í tengslum við vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2015-2018.
Lagt fram.
8.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 15
Málsnúmer 1408002F
9.
Heimsókn byggðarráðs í Byggðasafnið Hvol kl. 11:00.
Málsnúmer 201408052
Eftir fund byggðarráðs fór byggðarráð ásamt sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í heimsókn í Byggðasafnið Hvol. Forstöðumaður og sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs buðu sveitarstjórn og menningarráði.
Lagt fram.