Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

694. fundur
3. apríl 2014 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Óskar Óskarsson Aðalmaður
Anna Guðný Karlsdóttir Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar; endurskoðun
Málsnúmer 201403021
Á 692. fundi byggðarráðs þann 6. mars 2014 var til umræðu gildandi Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar og mögulegar breytingar á Samþykktunum og ráðum/nefndum. Lagt fram til kynningar. Með fundarboði byggðarráðs fylgdi tillaga að frá sveitarstjóra að breytingum á 46. gr. Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar er varðar fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að breytingum á Samþykktum um stjórn Dalvíkurbyggðar og vísar þeim til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
2.
Skipurit Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201308063
Á 671. fundi byggðarráðs þann 29. ágúst 2013 var til umfjöllunar drög að skipuriti Dalvikurbyggðar í samræmi við nýja Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar. Skipuritið var rætt og ræddar voru hugmyndir og breytingar. Afgreiðslu frestað.Á 691. fundi byggðarráðs þann 20. febrúar s.l. var eftirfarandi bókað:Með fundarboði byggðarráðs fylgdu ný drög að skipuriti fyrir Dalvíkurbyggð. Til umræðu á fundinum. Með fundarboði byggðarráð fylgdu óbreytt drög.Á fundinum var farið yfir drögin.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum skipuritið eins og það liggur fyrir með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum og í samræmi við breytingar í 1. lið hér að ofan.
3.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Ímynd Dalvíkurbyggðar, skv. starfsáætlun 2014.
Málsnúmer 201401050
689. fundi byggðarráðs þann 23. janúar 2014 til umfjöllunar fyrirhuguð verkefnavinna um ímynd Dalvíkurbyggðar, sbr. starfs- og fjárhagsáætlun 2014. Byggðarráð fól upplýsingafulltrúa og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna áfram að málinu og koma með nánari útfærslur á verkefninu.Á 691. fundi byggðarráðs þann 20. febrúar s.l. var eftirfarandi bókað:Með fundarboð byggðarráðs fylgdu drög að verkefnaáætlun til upplýsingar.Lagt fram til kynningar. Undir þessum lið kom á fund byggðarráðs Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, kl. 9:00. Með fundarboði byggðarráðs fylgdi drög að verkferla- og tímaáætlun vegna verkefnisins um Ímynd Dalvíkurbyggðar.Verkefnið skiptist í eftirfarandi áfanga:a) Dalvíkurbyggð sem vinnuveitandi / vinnustaður.b) Dalvíkurbyggð sem þjónustufyrirtæki.c) Dalvíkurbyggð sem samfélag.Gert er ráð fyrir meðal annars að nýta AirOpera aðferð í vinnu með greiningarhópum. Gert er ráð fyrir aðstoð frá Símey og áætlaður kostnaður vegna þess er kr. 153.000Til umræðu ofangreint.Margrét vék af fundi kl. 09:43.
Byggðarráð veitir heimild að unnið verði áfram að verkefninu í samræmi við kynnt gögn og umræður á fundinum.
4.
Frá Náttúrusetrinu á Húsabakka ses., Aðalfundur Náttúrusetursins.
Málsnúmer 201403230
Tekið fyrir rafpóstur frá Náttúrusetrinu á Húsabakka ses., dagsettur þann 31. mars 2014, þar sem boðað er til aðalfundar Náttúrusetursins á Húsabakka á Húsabakka, fimmtudaginn 10. apríl kl 16:00.
a) Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og fari með umboð Dalvíkurbyggðar á fundinum.
b) Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að Valdís Guðbrandsdóttir verði áfram aðalmaður fyrir hönd Dalvíkurbyggðar í stjórninni.
5.
Frá sveitarstjóra; drög að samningi við Náttúrusetrið á Húsabakka ses.
Málsnúmer 201404011
Með fundarboði byggðarráðs fylgdi drög að samkomulagi á milli Dalvíkurbyggðar og Náttúrseturs að Húsabakka um Friðland Svarfdæla.
Lagt fram til kynningar.
6.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 814. fundur stjórnar.
Málsnúmer 201402022
Lögð fram til kynningar 814. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram.