Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
693. fundur
20. mars 2014
kl.
08:15
-
11:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Kristinn Ingi Valsson
Varamaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármál- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Frá Gásakaupstað ses.; Aðalfundarboð 2014.
Tekið fyrir bréf frá Gásakaupstað ses, dagsett þann 11. mars 2014, þar sem boðað er til aðalfundar fimmtudaginn 27. mars 2014 kl. 12:00 á Akureyri.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fulltrúi Dalvíkurbyggðar í stjórn Hildur Ösp Gylfadóttir sitji fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
3.
Frá 257. fundi sveitarstjórnar; Frá Gásakaupstað; Ósk um stjórnarmann í stjórn Gásakaupstaðar ses.
Á 257. fundi sveitarstjórnar þann 18. mars 2014 var eftirfarandi erindi frá Gásakaupstað ses. vísað til byggðarráðs til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu:Tekið fyrir erindi frá Gásakaupstað ses., bréf dagsett þann 7. mars 2014, þar sem óskað er eftir að Dalvíkurbyggð tilefni nýjan fulltrúa í stjórn félagsins en núverandi fulltrúi, Hildur Ösp Gylfadóttir, hefur tilkynnt að hún láti af stjórnarsetu frá og með aðalfundi félagsins þann 27. mars n.k.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að tilnefna ekki fulltrúa í stjórn Gásakaupstaðar ses fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
4.
Frá Jöfnunarsjóði; Áætluð kostnaðarhlutdeild Jöfnunarsjóðs vegna almennra húsaleigubóta 2014.
Tekið fyrir bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dagett þann 13. febrúar 2014, þar sem gert er grein fyrir stöðu mála hvað varðar innleiðingu á nýju húsaleigubótakerfi og greiðsluflæði til sveitarfélaganna. Fram kemur að áætluð kostnaðarhlutdeild Jöfnunarsjóðs vegna almennra húsaleigubóta árið 2014 er 64%.
Lagt fram til kynningar.
5.
Frá Jóhanni Ólafssyni; Lúpína og kerfill.
Undir þessum lið kom á fund byggðarráðs Valur Þór Hilmarsson, umhverfisstjóri, og Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 9:40.Tekið fyrir erindi frá Jóhanni Ólafssyni, dagsett þann 4. mars 2013, er varðar viðbrögð Dalvíkurbyggðar við útbreiðslu lúpínu og kerfils i sveitarfélaginu.Valur vék af fundi kl. 10:01.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela umhverfisstjóra að leggja fyrir aðgerðaáætlun hvað varðar heftingu á útbreiðslu lúpínu, kerfils og njóla.
6.
Frá 257. fundi sveitarstjórnar; Umsókn um stöðuleyfi fyrir hjólhýsi við Höfða lóð, landnr. 151842.
Á 257. fundi sveitarstjórnar þann 18. mars 2014 var eftirfarandi máli frá 248. fundi umhverfisráðs frá 5. mars 2014 vísað til byggðarráðs til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu:Sigurður Jónsson kt. 150941-3429 og Zohonías Antonsson kt. 220546-2769 óska eftir stöðuleyfi fyrir hjólhýsi samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð felst á að veita stöðuleyfi fyrir hjólhýsið til fimm ára, og leggur áherslu á að gjaldtaka verði í samræmi við sambærilega starfsemi. Börkur Þór gerði grein fyrir forsendum umhverfisráðs hvað varðar veitt stöðuleyfi.
a) Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að þrátt fyrir bókun og afgreiðslu umhverfisráðs þá veitir byggðarráð stöðuleyfi í 12 mánuði og umsókn um stöðuleyfi beri þá að endurnýja að nýju áður en heimildin rennur út.
b) Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að gera drög að reglum sem tekur á veitingu stöðuleyfa vegna atvinnustarfsemi.
b) Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að gera drög að reglum sem tekur á veitingu stöðuleyfa vegna atvinnustarfsemi.
7.
Frá framkvæmdastjórn; Styrktarsjóður EBÍ 2014.
Á 691. fundi byggðarráðs þann 20. febrúar 2014 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 4. febrúar 2014, þar sem fram kemur að umsóknarfrestur í styrktarstjóð EBÍ er til lok apríl n.k. Hvert sveitarfélag getur aðeins sent inn eina umsókn og skulu umsóknir vera vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til framkvæmdarstjórnar til skoðunar. Með fundarboði byggðarráðs fylgdi bréf frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs þar sem fram kemur tillaga framkvæmdastjórnar um að sækja um styrk vegna endurbyggingar á Tungurétt sem er áætlað að ljúki árið 2014.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu framkvæmdastjórnar að sækja um styrk vegna Tunguréttar.
8.
Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisivðs; Beiðni um viðauka vegna samnings um slátt á opnum svæðum.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, bréf dagsett þann 13.mars 2014, þar sem fram kemur að við yfirferð vegna ársreiknings 2013 kom í ljós að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2014 hafa rangar upphæðir legið til grundavallar fyrir slátt og hirðingu opina svæða.Upphæðin sem notuð var kr. 4.892.000 varð í raun 5.386.080 eins og kemur fram í samningi sem reyndar var undirritaður 19. mars 2013.Vegna þessa er óskað eftir viðauka á 11-41-4969 að upphæð kr. 524.000.Börkur Þór vék af fundi kl. 10:49.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu hvað varðar beiðni um viðauka og það verði skoðað þegar lengra er liðið á árið hvort svigrúm sé innan ramma málaflokksins að mæta þessari beiðni.
10.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 813. fundur stjórnar.
Lögð fram til kynningar fundargerð frá 813. fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram.