Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
690. fundur
6. febrúar 2014
kl.
08:15
-
11:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Óskar Óskarsson
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Guðmundur St. Jónsson
Varamaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Félagslegar íbúðir; sala íbúða
Sviðsstjóri félagsmálasviðs kynnti hvaða félagslegu íbúðum væri hægt að bæta á söluskrá. Á söluskrá eru nú 2 íbúðir. Hægt er að bæta við 6 íbúðum á söluskrá og en taka þarf eina íbúð af söluskrá á móti.Eyrún vék af fundi kl. 09:16
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fleiri íbúðir verði ekki settar á söluskrá að sinni og að ein íbúð verði tekin af söluskrá.
6.
Nýtt símakerfi fyrir Dalvíkurbyggð; tilboð frá Símanum.
Í starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014 er gert ráð fyrir innleiðinu á nýju símakerfi fyrir Dalvíkurbyggð; þ.e. allar stofnanir og fyrirtæki.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir tilboði frá Símanum í í IP hýst einkasímakerfi.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ganga til samninga við Símann á grundvelli þeirra forsenda sem kynntar voru á fundinum.
8.
Frá Umhverfisstofnun; Samningur um Friðland Svarfdæla, óundirrituð drög.
Með fundarboði byggðarráðs fylgdi drög að samningi á milli Umhverfisstofnunar og Dalvíkurbyggðar um umsjón og rekstur Friðlands Svarfdæla í Svarfaðardal.Gildistími samnings þessa er 5 ár frá undirritun og staðfestingu umhverfis- og auðlindaráðherra. Hvor samningsaðili um sig getur óskað eftir endurskoðun á samningi þessum hvenær sem er. Þó skal endurskoða samninginn eigi síðar en að 3 árum liðnum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum samninginn eins og hann liggur fyrir og vísar honum til afgreiðslu í sveitarstjórn.
9.
Viðskiptabanki Dalvíkurbyggðar
Á 689. fundi byggðarráðs þann 23. janúar s.l. kom sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðurlands á fund byggðaráðs og kynnti starfsemi sjóðsins. Á 687. fundi byggðaráðs þann 9. janúar s.l. var samþykkt að fara í viðræður við Sparisjóð Norðurlands þar sem kannaður verði áhugi Sparisjóðs Norðurlands um viðskipti við sveitarfélagið.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Sparisjóður Norðurlands verði viðskiptabanki Dalvíkurbyggðar, á meðan annað er ekki ákveðið.
10.
Frá Samfylkingunni; Ályktun frá stjórn Landsamtakana 60+
Tekið fyrir bréf frá Samfylkingunni, dagsett þann 27. janúar 2014, þar sem fram kemur að landssamband 60+ innan Samfylkingarinnar gerir alvarlegar athugasemdir við vaxandi einkavæðingu í rekstri hjúkrunarheimila á Íslandi.
Lagt fram.