Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
685. fundur
12. desember 2013
kl.
08:15
-
10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Óskar Óskarsson
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra; Nýtt byggðasamlag um málefni fatlaðs fólks.
Tekið fyrir erindi, rafpóstur dagsettur þann 9. desember 2013, frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er varðar stofnun á nýjum byggðasamlegi um málefni fatlaðs fólks.Fram kemur að í samræmi við aukaþing SSNV sem haldið var 5. desember s.l. og fund undirbúningsstjórnar sendir framkvæmdastjóri SSNV tillögu að bókun sem sveitarstjórnir geta tekið fyrir í því skyni að gerast aðilar að nýju byggðasamlagi um málefni fatlaðs fólks. Það er eindregin ósk til allra sveitarfélaga sem ætla að gerast aðilar að byggðasamlaginu að bókun verði afgreidd af sveitarstjórnum nú í desember.Meðfylgjandi eru drög að samþykktum fyrir byggðasamlagið og hugleiðingar um fulltrúafjölda.Tillaga að bókun:,,Sveitarstjórn samþykkir að gerast aðili að byggðasamlagi um málefni fatlaðs fólks á grundvelli 94. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Aðilar að byggðasamlaginu eru: Akrahreppur, Blönduósbær, Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Sveitarfélagið Skagaströnd. Miðað er við að stofnfundur byggðasamlagsins verði haldinn fyrir lok janúar 2014. Sveitarstjórn veitir sveitarstjóra umboð til þess að sækja stofnfundinn og staðfesta aðild sveitarfélagsins með undirritun samþykkta sem eru stofnskjal byggðasamlagsins, skv. 94. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Umboðið nær einnig til áritunar stofnefnahags, með fyrirvara um breytingar sem kunna að verða á því skjali."
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að bókun og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
2.
Frá Tækifæri hf.; Hlutabréf í Tækifæri hf.
Tekið fyrir erindi frá Tækifæri hf., bréf dagsett þann 3. desember 2013, þar sem fram kemur að KEA svf. hefur gert tilboð í eignarhluta fjögurra hluthafa í hluthafahópi Tækifæris hf. og nemur greiðslufjárhæð fyrir eignarhlutina 49,5% af nafnviðri þeirra. Dalvíkurbyggð er hér með boðið að nýta forkaupsrétt sinn að hlutabréfum Íslandsbanka hf., Arion banka hf., LBI hf og Glitnis hf. í hlutfalli við hlutafjáreign í félaginu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að nýta sér ekki forkaupsréttinn.Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að ræða við Tækifæri hf. um vilja byggðarráðs um sölu á eignarhlut sínum í Tækifæri hf.
3.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
5.
Fjárhagsáætlun 2013; beiðnir um viðauka.
Á 684. fundi byggðarráðs þann 5. desember 2013 var eftirfarandi bókað:Á 681. fundi byggðarráðs þann 7. nóvember s.l. var kynnt stöðumat stjórnenda hvað varðar starfs- og fjárhgsáætlun Dalvíkurbyggðar 2013 fyrir janúar - september.Byggðarráð samþykkti að beiðnir um viðauka skv. stöðumati stjórnenda verði skoðaðar í heild sinni síðar á árinu.Með fundarboði byggðarráðs fylgdu erindi frá sviðsstjórum er varðar beiðnir um viðauka við gerð fjárhagsáætlunar 2013.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir og kynnti ofangreindar beiðnir. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar beiðnir um viðauka. Á næsta fundi byggðarráðs verður lagt fram fjárhagsáætlunarlíkan 2013 með viðaukum.Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynntu tillögu að viðaukum við fjárhagsáætlun 2013 í fjárhagsáætlunarlíkani.Um er að ræða viðauka sem hafa verið til umfjöllunar og afgreiðslu á fundum byggðarráðs, bæði í sérstökum erindum og í greinargerðum stjórnenda í stöðumötum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum eftirfarandi varðandi ofangreint:<UL><LI>Að farið verði yfir beiðnir um viðauka í samræmi við umræður á fundinum, sérstaklega hvað varðar veitu- og hafnasviðs.</LI><LI>Að verðbólga verði 3,7% í stað 4,1% í áætlunarlíkani.</LI><LI>Að Dalvíkurskóli fá heimild til þess að nota vænt aukaframlag frá Jöfnunarsjóði vegna skólaaksturs á móti beiðni um viðauka vegna veikindalauna.</LI></UL><P>Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitastjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna viðauka við fjárhagsáætlun 2013 að nýju í samræmi við ofangreint sem fari til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar 17. desember n.k.</P>
6.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Ályktanir sveitarsjórnavettvangs EFTA.
Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, rafpóstur þann 9. desember 2013, þar sem kynntar eru ályktanir Sveitarstjórnarvettvangs EFTA um endurskoðun evrópska reglna um úrgangsmál og tilskipunar um endurnýtingu opinberra upplýsinga.
Lagt fram.
7.
Kynning á starfsemi Bergmanna ehf; Jökull Bergmann kemur í heimsókn.
Undir þessum lið kom á fund byggðarráðs Jökull Bergmannm, kl. 9:30, sem kynnti starfssemi Bergmanna efh.Jökull vék af fundi kl. 10:17.
Lagt fram.