Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

684. fundur
5. desember 2013 kl. 08:15 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Óskar Óskarsson Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá innanríkisráðuneytinu; Skil á fjárhagsáætlun 2014 og þriggja ára áætlun.
Málsnúmer 201312003
Tekið fyrir erindi frá innanríkisráðuneytinu, bréf dagsett þann 12. nóvember 2013, þar sem minnt er á að sveitarstjórnir að aflokinni umræðu á tveimur fundum eiga að hafa afgreitt fjárhagsáætlun næstu fjögurra ára fyrir 15. desember n.k.Minnt er einnig á samkomulag innanríkisráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hagstofu Íslands um skil á fjárhagsáætlun næstu fjögurra ára til Hagstofu Íslands.
Lagt fram til kynningar.
2.
Frá innanríkisráðuneytinu; Varðar endurskoðun sveitarfélaga.
Málsnúmer 201311290
Tekið fyrir erindi frá innanríkisráðuneytinu, bréf dagsett þann 25. nóvember 2013, þar sem upplýst er um bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga til endurskoðenda sem höfðu með höndum endurskoðun ársreikninga sveitarfélaga fyrir árið 2012. Meðfylgjandi er ljósrit af bréfi nefndarinnar til upplýsingar fyrir sveitarstjórnir.
Lagt fram til kynningar.
3.
Frá Eyþingi; 249. fundur stjórnar Eyþings.
Málsnúmer 201311078
Lögð fram til kynningar 249. fundargerð stjórnar Eyþings frá 21. nóvember 2013.
Lagt fram.
5.
Fjárhagsáætlun 2013; beiðnir um viðauka.
Málsnúmer 201312009
Á 681. fundi byggðarráðs þann 7. nóvember s.l. var kynnt stöðumat stjórnenda hvað varðar starfs- og fjárhgsáætlun Dalvíkurbyggðar 2013 fyrir janúar - september.Byggðarráð samþykkti að beiðnir um viðauka skv. stöðumati stjórnenda verði skoðaðar í heild sinni síðar á árinu.Með fundarboði byggðarráðs fylgdu erindi frá sviðsstjórum er varðar beiðnir um viðauka við gerð fjárhagsáætlunar 2013.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir og kynnti ofangreindar beiðnir.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar beiðnir um viðauka.  Á næsta fundi byggðarráðs verður lagt fram fjárhagsáætlunarlíkan  2013 með viðaukum.Valdís vék af fundi kl. 10:25 til annarra starfa.
6.
Frá sveitarstjóra; Aukaársþing SSNV vegna málefna fatlaðs fólks.
Málsnúmer 201312014
Sveitarstjóri gerði byggðarráði grein fyrir auka ársþingi SSNV vegna málefna fatlaðs fólks en fundurinn er í dag á Sauðárkróki.
Lagt fram til kynningar.