Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
681. fundur
7. nóvember 2013
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá leikskólastjóra Krílakots; Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2013 vegna veikinda.
Á 665. fundi byggðarráðs þann 6. júní 2013 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá leikskólastjóra Krílakots, dagsett þann 6. maí 2013, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 697.676 við fjárhagsáætlun skólans vegna veikinda starfsmanna.Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fresta afgreiðslu um beiðni um viðauka.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til skoðunar í heild sinni með öðrum beiðnum um viðauka.
2.
Frá forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns; Beiðni um viðbótartillag vegna launa.
Á 665. fundi byggðarráðs þann 6. júní 2013 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns, bréf dagsett þann 30. maí 2013, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun safnanna vegna veikinda og breytinga í starfsmannamálum safnanna. Að frádregnu framlagi frá Vinnumálastofnun er óskað eftir viðauka að upphæð kr. 1.942.590 fyrir söfnin.Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fresta afgreiðslu um beiðni um viðauka.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til skoðunar í heild sinni með öðrum beiðnum um viðauka.
3.
Frá sviðsstjóra félagsmálsviðs; Fjárhagsáætlun 2013; beiðni um viðauka vegna málaflokks 02.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra félagsmálasviðs, Eyrúnu Rafnsdóttur, bréf dagsett þann 12. október 2013, þar sem hún óskar eftir aukafjárveitingu við deild 02-11; fjárhagsaðstoð að upphæð kr. 4.000.000 þannig að sá liður hækki úr 7,6 m.kr. í 11,6 m.kr.Gert er einnig grein fyrir að launakostnaður vegna deildar 02-15;heimilishjálp mun ekki standast áætlun en sviðsstjóri hefur svigrúm innan rammans að mæta því.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til skoðunar í heild sinni með öðrum beiðnum um viðauka.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014 - 2017; á milli umræðna í sveitarstjórn.
Frumvarp að starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014-2017 var tekið til fyrri umræðu í sveitarstjórn þann 29. október s.l. og var samþykkt samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu í sveitarstjórn.Þann 30. október s.l. bárust nýjar upplýsingar um áætluð framlög Jöfnunarsjóðs 2014, sbr. gögn með fundarboði byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að tekjuáætlun vegna framlaga frá Jöfnunarsjóði verði endurskoðuð sem og tekjuáætlun vegna álagningu fasteignagjalda þegar allar gjaldskrár liggja endanlega fyrir úr fagráðum.
5.
Frá leikskólastjóra Krílakots; Viðbygging við Krílakot.
Tekið fyrir erindi frá leikskólastjóra Krílakots og Kátakots, bréf dagsett þann 5. nóvember 2013, þar sem leikskólastjóri vísar til frumvarps að starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014-2017 þar sem gert er ráð fyrir að viðbyggingu við Krílakot verði dreift á árin 2016 og 2017. Leikskólastjóri vonar að ákvörðun varðandi viðbyggingu við Krílakot verði tekin að mjög svo ígrunduðu máli og verði ekki breytt heldur frekar lögð áhersla á að hefja undirbúning árið 2015 og halda fyrri áætlun um byggingu árið 2016. Í starfsáætlun fræðslu- og menningarsviðs með tillögu að fjárhagsáætlun 2014-2017 segir; Sameining Káta- og Krílakots, stefnt er að viðbyggingu við Krílakot árið 2016 og að húsnæði Kátakots verði selt. Fagleg samræming á starfi, námskrám og öðrum gögnum mun eiga sér stað á tímabilinu þar til þetta verður einn og sami skólinn.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til skoðunar hjá umhverfis- og tæknisviði, í samvinnu við leikskólastjóra, þ.e. hvað varðar þá möguleika að framkvæmdin rúmist innan eins árs.
6.
Frá 244. fundi umhverfisráðs þann 16. október s.l.: Ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga 2013; bókun.
Á 244. fundi umhverfisráðs þann 16. október 2013 var eftirfarandi bókað um ofangreint:Umhverfisráð hefur kynnt sér málið og hvetur Dalvíkurbyggð til að taka þátt í umhverfis-og náttúruverndar málum í framtíðinni. Ráðið vill minna á að gera þarf ráð fyrir fjármunum til þessara mála.
Lagt fram til kynningar.
7.
Upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar; minnisblað frá verkefnahópi.
Með fundarboði byggðarráðs fylgdi minnisblað frá verkefnahópi Upplýsingamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar; upplýsingafulltrúa, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs.Með tilvísun í bókun og afgreiðslu byggðarráðs frá 660. fundi er gert grein fyrir í minnisblaðinu starfsemi Upplýsingamiðstöðvar og tillögur varðandi rekstur hennar í framhaldinu. Í tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun 2014-2017 er gert ráð fyrir að Upplýsingamiðstöðin verði með óbreyttu sniði nema að gert er ráð fyrir starfsmanni á deild 13-70 í 100% starfi yfir sumarið í stað deild 06-50.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar verði í Bergi frá og með 1.1.2014 og að starfsmaður upplýsingamiðstöðvar heyri undir fjármála- og stjórnsýslusvið.Jafnframt samþykkir byggðarráð með 3 atkvæðum að hugað verði að því að útvista rekstri á tjaldsvæðinu á Dalvík.
8.
Sala íbúða; Kauptilboð í Klapparstíg 1.
Á fundinum var lagt fram og kynnt undirritað kauptilboð, dagsett þann 24. október 2013, í Klapparstíg 1, fastanúmer 215-6673, frá Eyþóri Antonssyni, kt. 280180-5489, að upphæð kr. 10.000.000.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint kauptilboð og sölu á Klapparstíg 1.
9.
Samráðsfundur með Fjallabyggð
Sveitarstjóri gerði byggðarráði grein fyrir samráðsfundum sem fulltrúar Dalvíkurbyggðar hafa átt með fulltrúum Fjallabyggðar hvað varðar hugmyndir um samstarfsverkefni.
10.
Frá Eyþingi; 247. fundur stjórnar Eyþings.
Lögð fram til kynningar ofangreind fundargerð.
11.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fundargerðir Sambandsins 2013, frá 804. - 809.
Lagðar fram til kynningar ofangreindar fundargerðir.
12.
Heimsóknir í stofnanir og fyrirtæki Dalvíkurbyggðar; Heimsókn í Dalvíkurskóla kl. 10 - kl. 11.
Jóhann Ólafsson vék af fundi kl. 10:00 til annarra starfa.Byggðarráð fór ásamt sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í heimsókn í Dalvíkurskóla, kl. 10:00.