Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
680. fundur
24. október 2013
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Guðmundur St. Jónsson
Varamaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014 - 2017; fjárhagsáætlunarlíkan.
Valdís Guðbrandsdóttir, aðalmaður, sat einnig fundinn undir þessum lið.Formaður bar undir fundinn hvort gerð sé athugasemd um að bæði aðalmaður og varamaður sitji fundinn undir þessum lið. Engar athugasemdir voru gerðar. Á fundinum lagði sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fram fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014-2017 í fjárhagsáætlunarlíkani, sem innheldur samandregið tillögur stjórnenda, fagráða og byggðarráðs.Sveitarstjóri og sviðsstjóri fóru yfir helstu niðurstöður.Valdís vék af fundi kl. 9:00.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014-2017 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
2.
Fjárhagsáætlun 2014 -2017; Álagning fasteignagjalda 2014; tillaga.
Með fundarboði byggðarráðs fylgdi tillaga að álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2014.
Afgreiðslu frestað.Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að tillagan verði skoðuð nánar og óskar eftir útskýringum á hækkunum umfram vísitölu þar sem það á við.
3.
Stefna Dalvíkurbyggðar hvað varðar auglýsingar í heimamiðlum
Kristján E. Hjartarson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis.Á 660. fundi byggðarráðs þann 11. apríl s.l. var eftirfarandi samþykkt:Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra og upplýsingafulltrúa að leggja fyrir byggðarráð drög að auglýsingasamningum við Norðurslóð og DB-blaðið.Með fundarboði byggðarráðs fylgdu drög að auglýsingasamningum við Norðurslóð og DB blaðið.
Byggðarráð samþykktir með 2 atkvæðum drög að auglýsingasamningum og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
4.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
5.
Frá Ungmennafélaginu Atla; Umsókn um lækkun fasteignagjalda.
Tekið fyrir erindi frá Ungmennafélaginu Atla, rafpóstur dagsettur þann 14. október 2013, þar sem sótt er um lækkun fasteignagjalda vegna samkomuhússins Höfða í Svarfaðardal.
Byggðarráð hafnar erindinu en bendir á að Dalvíkurbyggð hefur síðast liðin ár auglýst eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. reglum sveitarfélagsins þar um en sækja þarf um fyrir 1. júní ár hvert, á sérstöku umsóknareyðublaði. Einnig þarf að fylgja með umsókn ársreikingur sl. rekstrarárs, lög félags og greinargerð um starfsemina.
6.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Nýsköpunarverðlaun 2013; tilnefningar Dalvíkurbyggðar.
Á 665. fundi byggðaráðs þann 6. júní s.l. var samþykkt að vísa til framkvæmdastjórnar til skoðunar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem fram kemur að nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu verða veitt í þriðja skiptið 29. janúar 2014.Með fundarboði byggðarráðs fylgdu tillögur um að tilnefna 2 verkefni.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framkomnar tillögur.