Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
675. fundur
8. október 2013
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014 - 2017:a) Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs.b) Starfs- og fjárhagsáætlun fjármála- og stjórnsýslusviðs.
a) Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs.Undir þessum lið kom á fund byggðarráðs Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.Hildur Ösp kynnti tillögu að starfsáætlun sviðssins og tillögu að fjárhagsáætlun samkvæmt fjárhagsrömmum, sjá neðangreint.Á fundinum voru kynnt jafnframt eftirfarandi gögn:Bréf frá leikskólastjóra Krílakots og Kátskots varðandi; tölvukaup og nýkaup, skýringar vegna beiðni um viðbót við fjárhagsramma vegna Kátakots, upplýsingar hvað varðar áætlun 2015-2017.Bréf frá skólastjóra Dalvíkurskóla vegna nýkaupa.Bréf frá skólastjóra Árskógarskóla vegna nýkaupa.Skýringar frá sviðsstjóra fræðslu-og menningarsviðs með málaflokkum 04 og 05.Hildur Ösp vék af fundi kl. 10:30.b) Starfs- og fjárhagsáætlun fjármála- og stjórnsýslusviðs.Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, kynnti tillögu að starfsáætlun sviðssins, starfsáætlun upplýsingafulltrúa og tillögu að fjárhagsáætlun sviðsins, sjá neðangreindan samanburð á fjárhagsrömmum og tillögum:Málaflokkur 00; um er að ræða drög en ekki endanlega tillögu.Málaflokkur 28; áætlun þessa málaflokks liggur fyrir síðar samkvæmt fjárhagsáætlunarlíkani.Málaflokkur 32; Tölvubúnaður skv. endurnýjunaráætlun fyrir Dalvíkurskóla. Áætluð innri leiga að upphæð kr. 261.000 sem kæmi þá til viðbótar við deild 04-21 til gjalda og til tekna inn á málaflokka 31.Á fundinum voru einnig kynnt eftirfarandi gögn:Beiðni um nýkaup.Minnisblað varðandi nýtt símakerfi fyrir Dalvíkurbyggð.Minnisblað varðandi uppfærslu / nýja heimasíðu fyrir Dalvíkurbyggð.
<P></P><P></P>