Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
673. fundur
12. september 2013
kl.
08:15
-
12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
1.
Frá Skíðafélagi Dalvíkur; Umsókn vegna framkvæmda á lóð Brekkusels og í Böggvisstaðarfjalli.
Undir þessum lið komu á fund byggðarráðs Sigurgeir Birgisson, framkvæmdastjóri Skíðafélags Dalvíkur, og Jón Halldórsson, formaður Skíðafélags Dalvíkur. Einnig sat fundinn undir þessum lið Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.Til umræðu umsókn vegna framkvæmda á lóð Brekkusels og í Böggvisstaðarfjalli, sbr. erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur, bréf dagsett þann 31. júlí s.l. sem tekið var fyrir á 341. fundi umhverfisráðs þann 4. september s.l. og eftirfarandi bókað:Fyrir hönd Skíðafélags Dalvíkur óska Sigurgeir Birgisson framkvæmdastjóri og Jón Halldórsson formaður eftir leyfi til framkvæmda á svæði skíðafélagsins. Umhverfisráði hafnar framkvæmdum á lið 1 vegna jarðrasks.Liður 2. Þar sem þessi liður fellur að hluta undir lið 1. ( Jarðrask) óskar ráðið eftir tillögu sem er minni að umfangi.Liður 3. Frestað til frekari umræðu.Liður 4. Ráðið hafnar stækkun á bílastæðinu en gerir ekki athugasemd við að olíutankur verði færður.Liður 5. Samþykkt.Liður 6. Hafnað ( fellur undir lið 1, jarðrask).Liður 7. Samþykkt.Liður 8. Samþykkt.Liður 9. Hafnað ( fellur undir lið 1, jarðrask ).Björgvin Hjörleifsson sat hjá við þessa afgreiðslu. Einnig var til umræðu á fundi byggðarráðs staða mála hvað varðar starfsemi á skíðasvæðinu og rekstur Skíðafélags Dalvíkur.Sigurgeir og Jón viku af fundi kl. 09:28.
Ofnagreint til umræðu og lagt fram.
3.
Fjárhagsáætlun 2014 -2017; Álagning fasteignagjalda 2014.
Á 672. fundi byggðarráðs þann 5. september s.l. var eftirfarandi bókað:Til umræðu forsendur vegna álagningar fasteignagjalda fyrir árið 2014 vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2014-2017.Fram komu nokkrar hugmyndir sem verða skoðaðar áfram.
Ofangreint til umræðu.
4.
Frá garðyrkjustjóra; Listaverkið Aldan.
Tekið fyrir erindi frá garðyrkjustjóra, bréf dagsett þann 6. september 2013, er varðar listaverkið Ölduna. Fram kemur að garðyrkjustjóri hefur verið í viðræðum við fulltrúa eigenda listaverksins, bæði um staðsetningu og kostnað, en hægt er að leysa uppsetninguna á bæði ódýran og smekklegan hátt.Lengi vel hefur verið rætt um að vel færi á því að koma listaverkinu fyrir á grænu tungunni milli Hafnarbrautar og Goðabrautar, utan við runnana. Hugmyndin er að þar verði sett undir listaverkið stórgrýti sem valið er og fengið úr höfninn á Dalvík. Síðan yrði kösturum komið fyrir á tveimur ljósastaurum sem fyrir eru. Ef grjótið fæst ókeypis þá er annar kostnaður við uppsetningu áætlaður kr. 400.000. Óskað er eftir að Dalvíkurbyggð leggi kr. 200.000 til verksins á móti kr. 200.000 frá Sparisjóði Norðurlands. Markmiðið er að koma verkinu upp nú í haust.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreint erindi og vísar kostnaði að upphæð kr. 200.000 á deild 05-58; kaup og viðhald listaverka.
5.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Fjármálaráðstefna 2013.
Tekið fyrir rafbréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 10. september 2013, þar sem fram kemur að fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2013 verður haldin dagana 3. og 4. október n.k. á Hiltion Reykjavík Nordica hóteli. Skráningu lykur mánudaginn 30. september n.k.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að samkvæmt venju sæki byggðarráð, áheyrnarfulltrúi, sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs ráðstefnuna.
6.
Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Ágóðahlutagreiðsla 2013.
Tekið fyrir bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags íslands, dagsett þann 6. september 2013, þar sem fram kemur að hlutdeild Dalvikurbyggðar í Sameignarsjóði EBÍ er 1,684% og greiðsla ársins þann 15. október n.k. verður hlutfall af kr. 150 milljónum eða kr. 2.526.000.Í fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2013 er gert ráð fyrir ágóðahlutagreiðslu að upphæð kr. 1.684.000.
Lagt fram til kynningar.