Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
670. fundur
22. ágúst 2013
kl.
08:15
-
12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
1.
Frá Landbyggðin lifir; Aðalfundur 2013.
Tekið fyrir rafbréf, dagsett þann 17. ágúst 2013, þar sem boðað er til aðalfundar Landsbyggðin Lifi laugardaginn 31. ágúst 2013 kl. 14:30 á Brúarásskóla í Jökulsárhlíð í Fljótdalshéraði. Sjá nánar á http://landlif.is
Lagt fram.
2.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
4.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
5.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
6.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
7.
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga; Uppgjör á framlagi vegna lækkaðra fasteignaskattstekna 2013.
Tekið fyrir bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dagsett þann 31. júlí 2013, þar sem fram kemur að úthlutað framlag til Dalvíkurbyggðar vegna lækkaðra fasteignaskattstekna 2013 er kr. 57.388.319.Samkvæmt fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2013 er gert ráð fyrir framlagi vegna lækkaðra fasteignaskattstekna að upphæð kr. 59.155.000. Mismunurinn er því kr. 1.766.681.
Lagt fram.
8.
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014 - 2017:a) Forsendur með fjárhagsáætlun.b) Tillögur að breytingu á Samþykkt um fjárhagsáætlunarferli, varðandi frávik og umbun, gr. 3.3. og gr. 3.4.
Jóhann Ólafsson, áheyrnarfulltrúi, kom á fundinn undir þessum lið kl. 8:27.a) Með fundarboði byggðarráðs fylgdi tillaga (drög) að forsendum með fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 -2017.b) Með fundarboði byggðarráðs fylgdu tillögur hvað varðar breytingu á Samþykkt um fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar er varðar frávik og umbun, gr. 3.3. og gr. 3.4.
a) Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum eftirfarandi breytingar á forsendum fjárhagsáætlunar eins og þær liggja fyrir:a.1.) Fundaþóknun almennra nefndamanna verði sú hin sama og kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn og byggðarráði.a.2.) Áheyrnarfulltrúi í byggðarráði fái 33% álag ofan á fundaþóknun enda hefur áheyrnarfulltrúi ekki skyldu til að mæta á fund.a.3) Fundaþóknun ungmennaráðs verði 50% af fundaþóknunum kjörinna fulltrúa.a.4) Fundaþóknanir starfsnefnda sem samþykktar eru af sveitarstjórn verði þær sömu og til kjörinna fulltrúa.<SPAN style="FONT-FAMILY: " lang=EN-GB Calibri?,?sans-serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-ansi-language: mso-fareast-language: EN-GB; mso-bidi-language: AR-SA?>a. 5) Kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn og byggðarráði skal halda föstum mánaðarlaunum ef hann er tímabundið forfallaður frá störfum sínum vegna slyss eða veikinda gegn framvísun veikindavottorðs, en þó að hámarki í 6 mánuði</SPAN><SPAN style="FONT-FAMILY: " lang=EN-GB Calibri?,?sans-serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-ansi-language: mso-fareast-language: EN-GB; mso-bidi-language: AR-SA?>b) Byggðarráð samþykkir samhljóða tillögu hvað varðar grein 3.3. en felur framkvæmdastjórn að yfirfara tillögur hvað varðar grein 3.4.</SPAN>
9.
Frá skólastjóra Dalvíkurskóla; Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2013 vegna Dalvíkurskóla og Kátakots.
a) Tekið fyrir erindi frá skólastjóra Dalvíkurskóla, Gísla Bjarnasyni, bréf dagsett þann 14. ágúst 2013, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsramma Kátakots að upphæð kr. 2.200.000; annars vegar er um að ræða kr. 1.200.000 vegna launakostnaðar og kr. 1.000.000 vegna niðurgreiðslu á dagvistunargjöldum.b) Tekið fyrir erindi frá skólastjóra Dalvíkurskóla, Gísla Bjarnasyni, bréf dagsett þann 14. ágúst 2013, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun Dalvíkurskóla, deild 04-21, að upphæð kr. 2.657.000 vegna veikinda starfsmanna. Fram kemur að í viðauka við fjárhagsáætlun 2013, sem samþykktur var í sveitarstjórn 18. júní s.l., var bætt við kr. 2.000.000 í tekjur vegna aukinna framlaga frá Jöfnunarsjóði, en skólastjóri hefur ekki heimild til að ráðstafa þeim viðbótartekjum án samþykkis byggðarráðs / sveitarstjórnar.
a)&nbsp;&nbsp;Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu á erindinu.
b)&nbsp;&nbsp;Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að heimila skólastjóra Dalvíkurskóla að ráðstafa aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði að upphæð kr. 2.000.000.&nbsp;&nbsp;Byggðarráð frestar afgreiðslu á erindinu.
10.
Frá fjallskilanefnd Árskógsdeildar; Ósk um að 1. göngum í Árskógsdeild verði frestað um eina viku.
Tekin fyrir fundargerð Fjallskiladeildar Árskógsdeildar, dagsett þann 19. ágúst 2013, þar sem fjallskilanefndin óskar eftir því að 1. göngum í Árskógsdeild verði frestað um eina viku, eða til 13. og 14. september 2013 til samræmis við nágrannasveitarfélagið Hörgársveit og einnig vegna þess hve seint allur gróður var á ferð þetta sumar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu fjallaskiladeildar Árskógsdeildar en að 2. göngur verði óbreyttar.