Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
667. fundur
27. júní 2013
kl.
08:15
-
12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Guðmundur St. Jónsson
Varamaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Greiðri leið; Aðalfundarboð 2013.
Tekið fyrir bréf frá Greiðri leið ehf., bréf dagsett þann 12. júní 2013, þar sem boðað er til aðalfundar föstudaginn 28. júní n.k. kl. 13:00.
Lagt fram.
2.
Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Styrktarsjóður EBÍ 2013.
Tekið fyrir bréf frá styrktarsjóði EBÍ, dagsett þann 11. júní 2013, þar sem gefinn er kostur á að senda inn umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir ágústlok n.k. Umsóknir skulu vera vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna og skulu verkefnin falla undir reglur sjóðsins.
Byggðarráð óskar eftir að framkvæmdastjórn taki ofangreint til skoðunar.
3.
Frá slökkviliðsstjórum Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar; Múlagöng - afrit af sameiginlegu bréfi til Vegagerðarinnar.
Tekið fyrir afrit af erindi slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar, dagsett þann 13. júní 2013, til Vegagerðarinnar um Múlagöng.Fram kemur m.a. að vegna fyrirhugaðra endurbóta á Múlagöngum á næstunni þá vona bréfritarar að við þær endurbætur verði staðið þannig að verki að slysahætta verði lágmörkuð eins og hægt er. Vert er að minna Vegagerðina á þeirra ábyrgð gagnvart þeim vegfarendum sem um göngin fara, ef viðbragðsaðilar komast ekki á slysstað vegna skorts á búnaði í göngunum. Á meðan að ástand er svona varðandi öryggismál í göngunum að hálfu Vegagerðarinnar geta slökkviliðsstjórar Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar ekki ábyrgst að slökkviliðin geti staðið að björgunaraðgerðum með góðu móti í göngunum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að senda erindi, í samræmi við umræður á fundinum, til þingmanna kjördæmisins um ofangreint.
4.
Byggðasamlag um málefni fatlaðra; rekstur 2013.
Sveitarstjóri gerði byggðarráði grein fyrir fundi sem hún sótti ásamt formanni félagsmálaráðs miðvikudaginn 19. júní s.l. í Miðgarði. Til umfjöllunar var rekstur Byggðasamlags SSNV um málefni fatlaðra fyrir árið 2013.
5.
Frá menningarráði Dalvíkurbyggðar; Stefnumótun í menningarmálum fyrir sveitarfélög á starfssvæði Eyþings.
Á 38. fundi menningarráðs þann 30. maí 2013 var eftirfarandi bókað:Með fundarboði fylgdu drög að stefnumótun í menningarmálum á starfssvæði Eyþings sem unnin er af menningaráði Eyþings. Stefnan er hluti af svæðisbundinni sóknaráætlun 20/20. Menningarráð gerir ekki athugasemdir en óskar eftir að byggðaráð taki stefnuna til umfjöllunar sér í lagi sjöunda lið stefnunnar.Ofangreint til umræðu á fundi byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu til næsta fundar þannig að tækifæri gefist til að fara yfir fjárhagshliðar málsins.
6.
Frá Helgu Írisi Ingólfsdóttur;Úrsögn úr umsjónarnefnd með Friðlandi Svarfdæla.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Helgu Íris Ingólfsdóttur, dagsettur þann 21. júní 2013, þar sem hún óskar lausnar sem fulltrúi Dalvíkurbyggðar í Umsjónarnefnd með Friðlandi Svarfdæla.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita Helgu Írisi lausn frá störfum og þakkar henni fyrir starfið í nefndinni.
7.
Frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Leiðbeiningar til stjórnenda varðandi beiðni um aðgang að upplýsingum skv. upplýsingalögum- drög.
Með fundarboði byggðarráðs fylgdi tillaga að leiðbeiningum til stjórnenda vegna beiðna um aðgang að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum nr. 140/2012 ásamt tillögu að eyðublaði.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar leiðbeiningar ásamt eyðublaði.
8.
Íbúagátt Dalvíkurbyggðar; Mín Dalvíkurbyggð - kynning á fundinum.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti fyrir byggðarráði íbúagátt Dalvíkurbyggðar, Mín Dalvíkurbyggð, sem fór í loftið í gær 26.06.2013.
9.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 48