Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
664. fundur
23. maí 2013
kl.
08:15
-
12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
sviðstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Kynningar- og markaðsmál Dalvíkurbyggðar; hvernig er hægt að nýta meðbyrinn og hvað er framundan ?
Undir þessum lið kom á fund byggðarráðs Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi.Til umræðu kynningar- og markaðsmál Dalvíkurbyggðar almennt og hvað er framundan í sumar.Upplýsingafulltrúi gerði grein fyrir þeim verkefnum sem eru í vinnslu sem og hvaða línur hafa verið lagðar fyrir árið samkvæmt starfs- og fjárhagsáætlun 2013.Til umræðu ofangreint.Margrét vék af fundi.
2.
Ljósleiðarakerfi
Undir þessum lið komu á fund byggðarráðs Friðrika Marteinsdóttir frá Verkfræðistofu Norðurlands hf. og Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs.Með fundarboði byggðarráðs fylgdi skýrsla frá Verkfræðistofu Norðurlands hf., dagsett í apríl 2013; Ljóðsleiðarakerfi, forhönnun og kostnaðarmat, sem unnin var fyrir Dalvíkurbyggð.Friðrika kynnti skýrsluna ásamt viðaukum.Til umræðu ofangreint.Friðrika og Þorsteinn viku af fundi.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðstjóra veitu- og hafnasvið að afla nánari upplýsingar í samræmi við umræður á fundinum.
3.
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014 - 2017
Á 663. fundi byggðarráðs þann 16. maí 2013 voru til umræðu áherslur, markmið og stefna í rekstri og framkvæmdum sveitarfélagsins vegna undirbúnings fjárhagsáætlunar 2014-2017.Tímarammi var lagður fyrir byggðarráð og var hann samþykktur.Þann 21. maí s.l. var haldinn fundur í stjórnsýslunefnd þar sem fjallað var um verkefni og áherslur í rekstri sveitarfélagsins. Með fundarboði byggðarráðs fylgdi samantekt yfir þau helstu atriði sem fram komu á fundinum.Til umræðu forsendur fjárhagsáætlunar vegna vinnu við fjárhagsramma 2014-2017.