Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1200. fundur
11. nóvember 2026 kl. 15:00 - 17:10
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Börkur Þór Ottósson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að bæta við tveimur málum á dagskrá; mál 202606078 - liður 12 og mál 202611072 - liður 13. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030; Á milli umræðna í sveitarstjórn
Málsnúmer 202605002
Á 395. fundi byggðaráðs þann 3. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1199. fundi byggðaráðs þann 29. október sl. var eftirfarandi bókað:
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi frumvarp að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára
áætlun 2028-2030.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu forsendur og niðurstöður.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Niðurstaða : Til máls tók:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri sem gerði grein fyrir helstu forsendum og niðurstöðum fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030.
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun 2027 ásamt þriggja ára áætlun til byggðaráðs á milli umræðna."

Til umræðu mögulegar breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun á milli umræðna í sveitarstjórn.

Með fundarboðið byggðaráðs fylgdi m.a. eftirfarandi vinnugögn innanhúss:
a) Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, uppfærðar forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031.
b) Minnisblað vegna endurnýjunar vatnslagnar yfir Svarfaðardalsá við Bakka, dagsett þann 4.11.2026, sbr. tillaga í fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2027-2030.
c) Starfsáætlun Krílakots fyrir árið 2027.
d) Yfirlit yfir fjárfestingar og framkvæmdir 2026, bókað í samanburði við áætlun.
e) Þverkeyrsla á bókhaldslykla 2026.
f) Rafpóstur frá leikskólastjóra, dagsettur þann 11.11.2026, er varðar fatapeninga og tímabundna viðbót við stöðugildi 2027.
g) Rafpóstur frá verkefnastjóra þvert á svið, dagsettur þann 09.11.2026, er varðar viðauka 2026 og yfirfærslu verkefna á nýtt fjárhagsár.
h)Á fundinum var farið yfir fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2027-2030 og gerðar nokkrar breytingar.






a) Lagt fram til kynnngar.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Visað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar í síðari umræðu.
d) Lagt fram til kynningar.
e) Lagt fram til kynningar.
f) Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum að bæta við áætlun Krílakots samkvæmt erindi leikskólastjóra.
g) Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum að gera breytingar á fjárfestingaáætlun samkvæmt samantekt verkefnastjóra.
h) Samþykkt með 2 atkvæðum fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun eins og hún liggur fyrir, Benedikt Snær greiðir atkvæði á móti.
Benedikt Snær lagði til að færa framkvæmdir við slökkviðstöð um eitt ár til að jafna fjárfestingaáætlun yfir árin og minnka líkur og/eða þörf á lántöku.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun til síðari umræðu í sveitarstjórn með áorðnum breytingum, Benedikt Snær Magússon greiðir atkvæði móti með vísan í 1. lið h) hér að ofan.
2.
Gjaldskrár 2027; fráveita
Málsnúmer 202608079
Á 162. fundi veitu- og hafnaráðs þann 6. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Endurskoðuð gjaldskrá Fráveitu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 lögð fram til umræðu. Lagðar til 2,5% hækkanir líkt og uppleggið er með aðrar gjaldskrár.
Niðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá samhljóða með fimm atkvæðum.
Veitu- og hafnaráð beinir því til Framkvæmdasviðs að samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð verði tekin til endurskoðunar á nýju ári. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að ofangreindri gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2027.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá fráveitu 2027 og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
3.
Gjaldskrá Moltu ehf. 2027
Málsnúmer 202611034
Tekinn fyrir rafpóstur frá Moltu, dagsettur þann 27. október sl., þar sem meðfylgjandi eru ný gjaldskrá og uppfærðir móttökuskilmálar Moltu ehf. sem taka gildi 1. janúar 2027.
Gjöld hækka almennt um 2,5%, en gjald fyrir móttöku á hreinu kurluðu timbri lækkar. Uppfærðir móttökuskilmálar fela í sér skýrari og samræmdari kröfur um hráefni, flokkun, magn farma, flutning og afhendingu til Moltu.
Byggðaráð vísar ofangreindu til framkvæmdasviðs til upplýsingar og skoðunar.
4.
Verbúð, syðri - viðgerð á þaki; beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202610121
Á 162. fundi veitu- og hafnaráðs þann 6. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Hafnarstjóri leggur fram beiðni um viðauka vegna nauðsynlegra viðgerða á þaki syðri verbúðar.
Niðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela sveitarstjóra að óska eftir viðauka í byggðaráði vegna viðgerða á þaki syðri verbúða."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá sveitarstjóra/hafnarstjóra, dagsett þann 2. nóvember sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2027 vegna viðgerðar á þaki á syðri verbúð, verkefni sem nauðsynlegt er að fara í því eftir miklar rigningar nú nýverið þá flæddi vatn inn í geymslur sem eru í útleigu. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr 3.255.111 á lið 41210-4610.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 47 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 3.255.111 á lið 41210-4610. Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
5.
Frá stjórn Dalbæjar; Tillaga að breytingum á skipulagsskrá Dalbæjar
Málsnúmer 202611014
Tekinn fyrir rafpóstur frá hjúkrunarframkvæmdastjóra Dalbæjar, dagsettur þann 22. september sl., þar sem fram kemur að meðfylgjandi er breytingatillaga stjórnar Dalæbjar á gildandi Skipulagsskrá Dalbæjar sem óskað er eftir að sveitarstjórn taki til skoðunar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum meðfylgjandi tillögur að breytingum á Skipulagsskrá Dalbæjar.
6.
Frá Minjastofnun Íslands; Styrkur úr húsafriðunarsjóði 2025 fellur niður fimmtudaginn 31. desember 2026
Málsnúmer 202611026
Á 1143. fundi byggðaráðs þann 27. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 374. fundi sveitarstjórnar þann 19. nóvember sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu byggðaráðs um að þiggja boð Hjörleifs Stefánssonar og Elínu Óskar Hreiðarsdóttur um aðstoð við að sækja um fjárstyrk til Húsafriðunarsjóðs til að kosta vandaða úttekt á næsta ári og til að semja áætlun um viðgerð Sundskálans.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi bréf frá Minjastofnun Íslands, húafriðunarsjóði, dagsett þann 12. mars 2025, þar sem fram kemur að Minjastofnun hefur ákveðið að veita styrk að upphæð kr. 700.000 til verkþáttarins; Heildarúttekt og áætlun um viðgerðir.
Einnig fylgdi með fundarboði upplýsingar um styrkumsóknina, unnin af Hjörleifi Stefánssyni og Elínu Ósk Hreiðarsdóttur. Sótt var um kr. 9.977.000.
Helga Íris vék af fundi kl. 16:23,
Niðurstaða : Byggðaráð þakkar Hjörleifi Stefánssyni og Elínu Ósk Hreiðardóttur fyrir ofangreinda vinnu varðandi umsóknina.
Byggðaráð felur deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar að vinna málið áfram."

Tekið fyrir erindi frá Minjastofnun Íslands, dagsett þann 30. október sl., þar sem vakin er athygli á því að styrkir sem Minjastofnun Íslands veitti úr húsafriðunarsjóði á árinu 2025, og hafa enn ekki verið nýttir,munu falla niður fimmtudaginn 31. desember 2026.
Æskilegt er að lokaskýrslu vegna verkefnisins frá 2025 verði skilað fyrir 15. desember 2026. Í meðfylgjandi viðhengi er eyðublað vegna beiðni um lokagreiðslu styrks frá 2025.
Ef ekki hefur náðst að vinna verkið á þessu ári, þá bendir Minjastofnun Íslands á þann möguleika að sækja um endurúthlutun styrksins fyrir árið 2027, með því að senda inn nýja umsókn. Opnað var fyrir umsóknir um styrki á Ísland.is þann 15. október sl. Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 1. desember 2026.
Lagt fram til kynningar.
7.
Frá sveitarstjóra; Árskógsvirkjun í Þorvaldsdal
Málsnúmer 202401017
Á 370. fundi sveitarstjórnar þann 18. júní 2024 var eftirfarandi bókað:
"Á 1109. fundi byggðaráðs þann 30. maí sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu samningsdrög "Samningur um rannsókna- og nýtingarleyfi milli Árskógsvikjunar ehf sem rétthafa og Dalvíkurbyggð sem landeiganda við Þorvaldsdalsá sem leyfisveitenda. Einnig fylgdi með álit Skipulagsstofnunar um matsáætlun vegna Árskógsvirkjunar í Þorvaldsdalsá, sbr. rafpóstur dagsettur þann 10. maí sl. Viðbrögð framkvæmdaaðila við umsögnum má finna á eftirfarandi slóð; https://www.skipulag.is/umhverfismat- framkvaemda/gagnagrunnur-umhverfismats/nr/1353#alma Niðurstaða:Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við
meðfylgjandi samningsdrög og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
Niðurstaða : Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreind og meðfylgjandi samningsdrög um rannsóknar- og nýtingarleyfi milli Árskógsvirkjunar ehf. sem rétthafa og Dalvíkurbyggðar sem leyfisveitanda sem landeigandi við Þorvaldsdalsá vegna jarðanna Grundar, F2156437, og Hrafnagils, F215479. Samningstíminn er 60 ár að uppfylltum ákveðnum forsendum um framvindu, m.a. að rétthafi skal hafa fengið framkvæmdaleyfi innan 8 ára frá undirritun samnings."

Tekið fyrir erindi frá Jóni Jónssyni, lögmanni Arctic Hydro hf., dagsett þann 3. nóvember sl., þar sem vísað er í fyrri samskipti og samning Dalvíkurbyggðar vegna Árskógsvirkjunar. Staðan er sú að Arctic Hydro hefur nú í um 3 ár verið í viðræðum við Ríkiseignir/FSRE um eignarréttarlegan samning vegna virkjunarinnar. Íslenska ríkið er eigandi vatnsréttinda á 4 af 5 jörðum (þ.m.t. jörðunum sem Dalvíkurbyggð á )og svo eigandi einnar jarðar.
Arctic Hydro hf. telur nú samningaviðræður vera á lokastigum. Í samningi við Dalvíkurbyggð kemur fram að Dalvíkurbyggð njóti betri réttinda, ef samningar við ríkið fela slíkt í
sér. Einnig hefur ríkið komið fram með þá hugmynd að í stað þess að dómkvaddur matsmaður fjalli um skiptingu leigugreiðslna milli landeigenda, þá yrði það hlutverk sérstaks gerðardóms.Ef þetta yrði niðurstaðan þyrfti Dalvíkurbyggð í raun að samþykkja þessa breytingu. Aðalerindið er því að kynna þennan möguleika og kanna hvort Dalvíkurbyggð gæti samþykkt þetta fyrirkomulag, verði þetta niðurstaðan í samningi við íslenska ríkið.

Í minnisblaði sveitarstjóra dagsett þann 9. nóvember sl. kemur m.a. fram að drög að samningi á milli ríkisins og AH munu verða lögð fyrir byggðaráði til umfjöllunar og samþykktar ef þetta verður niðurstaðan.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ef niðurstaðan verður að fara með samninga á milli ríkisins og Arctic Hydro hf. fyrir gerðardóm.
8.
Fundargerðir Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses árið 2026
Málsnúmer 202608117
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses nr. 71 frá 14. október sl.
Lagt fram til kynningar.
9.
Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegsfyrirtækja 2025 og 2026; nr. 99-101
Málsnúmer 202502067
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 99, nr. 100, nr. 101.
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026; nr. 1004-1005.
Málsnúmer 202602001
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 1004 og nr. 1005.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fundargerðir HNE 2026; nr. 252
Málsnúmer 202611039
Tekinn fyrir rafpóstur frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, dagsett þann 4. nóvember sl., þar sem meðfylgjandi er 252. fundur HNE frá 30.10.2026 sem og fjárhagsáætlun HNE fyrir árið 2027.
Byggðaráð vísar ofangreindu og meðfylgjandi til framkvæmdasviðs til upplýsingar og skoðunar.
12.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202606078
Bókað í trúnaðarmálabók.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni,viðauka nr. 45 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 923.588.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
13.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Ósk um að opna leikskóladeild í Árskógi fyrr á morgnana
Málsnúmer 202611072
Tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 10. nóvember sl., þar sem óskað er eftir að fá að opna leikskóladeild Kötlukoti fyrr á morgnanna eða kl.07:30.
Eins og staðan er núna skapi núverandi opnunartími talsvert álag á morgnana fyrir þá foreldra sem þurfa að koma börnum sínum á tvo mismunandi staði í upphafi dags, eða eiga erfitt með að mæta á réttum tíma til vinnu. Með því að færa opnunartímann um 15 mínútur yrði mun auðveldara að samræma fjölskyldulíf og vinnu. Þessi breyting er hugsuð bara fyrir þetta skólaár. Er þessi ósk gerð í samráði við leikskólastjóra Krílakots og starfsfólk Kötlukots. Þetta þýðir viðbótarkostnað á launum fram að áramótum að upphæð kr.113.338.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum heimild til að opna Kötlukot fyrr eða kl. 7:30 í stað 7:45 hvern dag til reynslu fram að sumarlokun 2027.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.