Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1199. fundur
29. október 2026
kl.
13:15
-
16:06
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og sjtórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá sviðsstjóra fræðslu-og menningarsviðs og forstöðumanna safna og menningarhúss; Reglur varðandi leigu á sal í Menningarhúsinu Berg
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðurmaður safna og menningarhúss, kl. 13:15.
Á 1190. fundi byggðaráðs þann 31. ágúst var eftirfarandi bókað undir máli nr. 202605077; "Varðandi tillögu sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að uppfærðum reglum varðandi útleigu á sal í Menningarhúsinu Bergi þá felur byggðaráð sveitarstjóra að vinna málið áfram með sviðsstjóra og koma með tillögu sem tekur eins og hægt er til allra sjónarmiða."
Með fundarboði byggðaráðs þá fylgdi:
Minnisblað er varðar skýringar með gjaldskrá fyrir Menningarhúsið Berg vegna breytinga á útleigu fyrir einkasamkvæmi sem hafa áhrif á gjaldskrá.
Drög að útleigusamningi og reglum, dagsett þann 26.10.2026.
Helgi Einarsson kom inn á fundinn undir þessum lið kl. 13:48 og tók við fundarstjórn af varaformanni.
Til umræðu ofangreint.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela forstöðumanni safna og menningarhúss og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að gera lokatillögu til byggðaráðs og sveitarstjórnar að samningsdrögum og reglum vegna útleigu á sal í menningarhúsinu.
Einnig að tillaga að gjaldskrá vegna menningarmála fyrir árið 2027 verði yfirfarin að teknu tilllti til ofangreinds.

2.
Menningarmál 2026 - almennt
Almennt til umræðu menningarmál.
Með fundarboði byggðaráðs fylgir minnisblað frá forstöðumanni safna og menningarhúss, dagsett þann 28. október sl., þar sem kemur fram tillaga um að stofnskrá og söfnunarstefna verði endurskoðuð hið fyrsta í ljósi
breyttra aðstæðna hugsanlega samhliða endurskoðun á Menningarstefnu og/eða
framtíðarsýn í menningarmálum.
Björk vék af fundi kl. 13:58.

Frestað.
3.
Frá Gísla, Eiríki og Helga ehf.; Ungó - kaffihús Bakkabræðra
Tekið fyrir erindi frá forsvarsmönnum Gísla, Eiríks og Helga ehf., þar sem komið er á framfæri áhuga um að fá til langtímaleigu, eða eftir atvikum, kaupa Ungó, Hafnarbraut
29.
Fyrirtækið hefur undanfarin 13 ár rekið kaffihús Bakkabræðra í aðliggjandi húsnæði og er innangengt á milli þessara tveggja húsa. Starfsemin hefur vaxið og dafnað og á ákveðnum tímum ársins er aðsóknin orðin það mikil að núverandi húsnæði annar ekki lengur þörfinni á ákveðnum tíma dags á háannatíma. Standa forsvarsmenn fyrirtækisins því frammi fyrir raunverulegri þörf fyrir aukið rými og sjá mikil tækifæri í því að nýta Ungó sem viðbót við núverandi starfsemi.
Hugmyndin þó ekki eingöngu að hafa aðgengi að viðbótarplássi, heldur jafnframt að skapa fallegan, lifandi og fjölnota samkomustað þar sem menning,náttúrufræðsla og veitingastarfsemi gætu farið saman
Helstu áhersluþættir í erindinu:
1. Ósk um langtímaleigu og breytingar á húsnæðinu.
2. Friðland fuglanna ? sýningin fái nýtt líf.
3. Ósk um að möguleg sala húsnæðisins verði tekin til umræðu.
Gísli vék af fundi kl. 14:01.

Lagt fram til kynningar.
4.
Frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun; Úttekt slökkviliðs
Undir þessum lið koma á fund byggðaráðs Vilhelm Anton Hallgrímsson, slökkviliðsstjóri, kl. 14:02.
Á 1192. fundi byggðaráðs þann 23. september sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnuninni, dagsett þann 9. september sl, þar sem fram kemur að þann 21. apríl 2026 sl. framkvæmdi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) úttekt á starfsemi Slökkviliðs Dalvíkur.
Meðfylgjandi er niðurstaða þeirrar úttektar. Er þess farið á leit við sveitarstjórn að niðurstöðurnar verði teknar til umfjöllunar.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Slökkviliðsstjóra að fara yfir úttektina og koma með tillögur og áætlun um úrbætur við athugasemdum HMS fyrir fundi byggðaráðs.
Byggðaráð óskar eftir að Slökkviliðstjóri komi á fund byggðaráðs og fylgi úttektinni eftir, eins og HMS mælist til."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað slökkviliðsstjóra, dagsett þann 28. október 2026, þar sem leitast er við að skýra þau atriði sem betur mættu fara og viðbrögð við þeim.
Villi vék af fundi kl. 14:33.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
Erla vék af fundi kl. 14:42 til annarra starfa.

5.
Mánaðarlegar skýrslur 2026; janúar - ágúst.
Mánaðarlegar skýrslur fyrir janúar - ágúst 2026 voru á dagskrá byggðaráðs þann 1. október sl. en var þá frestað.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir:
Samanburður á bókhaldi janúar - ágúst við heimildir í fjárhagsáætlun fyrir sama tímabil.
Samanburður á launakostnaði janúar- ágúst við heimildir í launaáætlun fyrir sama tímabil.

6.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum beiðni um viðauka, viðauka nr. 34 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 2.865.907 vegna veikindalauna.
Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórnar.

7.
Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Tillaga að viðaukum vegna breytinga á bókhaldslyklum skv. reglugerð
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að 6 viðaukum vegna breytinga á reglugerð um bókhalds, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga, nr. 1212/2015.
Breytingareglugerðin er nr. 145 / 2026 og tók gildi afturávirkt frá 1.1.2026.
Um er að ræða tilfærslur á milli málaflokka og deildar og þvi´eru heildaráhrifin 0 á fjárhagsáætlun.
Viðauki nr. 37 vegna málefna fatlaðra.
Viðauki nr. 38 vegna heilbrigðismála/fræðslumála.
Viðauki nr. 39 vegna hreinlætismála,
Viðauki nr. 40 vegna skipulags- og byggingamála.
Viðauki nr. 41 vegna umferðar- og samgöngumála.
Viðauki nr. 42 vegna atvinnumála.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar tillögur að viðaukum nr. 37, 38, 39, 40, 41, 42 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
8.
Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Tillaga að viðauka vegna framlaga úr Jöfnunarsjóði 2026
Tekin fyrir tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2026 þar sem lagt er til að áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði 2026 lækki nettó um kr. 52.720.620.
00100-0121 - þjónustuframlag hækki um kr. 24.282.160.
00100-0141 - grunnskólaframlag hækki um kr. 8.211.730.
00100-0151. framlag vegna málefna fatlaðra lækka um kr. -85.626.873.
00100-0190. Önnur framlög samtals hækka um kr. 412.363

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að viðauka, viðauka nr. 43 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að deild 00100 lækki um kr. 52.720.620 nettó samkvæmt ofangreindri sundurliðun.
Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.
Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Tillaga að viðauka vegna staðgreiðslu 2026
Tekin fyrir tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2026 þar sem lagt er til að áætluð staðgreiðsla / útsvar til sveitarfélagsins hækki um kr. 65.077.409 þannig að liður 00010-0021 verði kr. -1.698.433.249.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að viðauka, viðauka nr. 44 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 65.077.409 á lið 00010-0021.
Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
10.
Heildarviðauki II við fjárhagsáætlun 2026
Með fundarboði byggðráðs fylgdi tillaga að heildarviðauka II við fjárhagáætlun 2026 þar sem búið er að setja inn alla viðauka á árinu nr. 1-44. Heildarviðauki I innihélt viðauka nr. 1-28.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi:
Málaflokkayfirlit 2026 með viðaukum.
Rekstraryfirlit 2026 með viðaukum.
Yfirlit yfir viðauka 2026.
Yfirlit yfir samstæðuna fyrir og eftir viðauka.
Yfirit úr fjárhagsáætlunarkerfi yfir viðauka 1-44.
Rekstrarniðurstaða Samstæðu A- og B- hluta er áætluð kr. 146.731.000 afgangur.
Rekstarniðurstaða A- hluta er áætluð kr. 138.838.000 afgangur.
Áætlaðar fjárfestingar og framkvæmdir samstæðunnar eru kr. 844.175.270.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2026 til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
11.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030; frumvarp úr fjárhagsáætlunarlíkani.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi frumvarp að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu forsendur og niðurstöður.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
12.
Loftbrú - nýtt fyrirkomulag
Tekið fyrir fréttatilkynning frá Innviðaráðuneytinu, dagsett þann 23. október sl., þar sem fram kemur að ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verða framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi (40%). Upphæðin verður 7.000 kr. fyrir hvern fluglegg eða 14.000 kr. fyrir ferð fram og til baka. Engar aðrar breytingar eru gerðar á Loftbrú. Íbúar landsbyggðarinnar með lögheimili innan sama skilgreinda svæðis eiga því áfram kost á lægri flugfargjöldum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingar munu einnig áfram geta nýtt afsláttarkóða í alls sex flugleggjum.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeim breytingum sem boðaðar
hafa verið á Loftbrú og áhrifum kílómetragjalds á íbúa landsbyggðarinnar.
Íbúar Dalvíkurbyggðar, líkt og aðrir íbúar landsbyggðarinnar, þurfa vegna búsetu sinnar að
ferðast um langan veg, meðal annars til að sækja sérhæfða heilbrigðisþjónustu, ásamt því að
stjórnsýsla er að stórum hluta staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Aðgengi að hagkvæmum
samgöngum er því mikilvæg forsenda jafnræðis íbúa og raunhæfs búsetufrelsis.
Byggðaráð telur mikilvægt að horft sé heildstætt á kostnað íbúa vegna samgangna. Á sama
tíma og kostnaður við akstur eykst með innleiðingu kílómetragjalds er óheppilegt að skerða
stuðning við flugsamgöngur í gegnum Loftbrú. Saman geta slíkar breytingar aukið verulega
kostnað þeirra sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu og þar með haft neikvæð áhrif á
búsetuskilyrði og samkeppnishæfni landsbyggðarinnar.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar skorar á stjórnvöld að tryggja Loftbrú nægilegt fjármagn þannig
að markmið úrræðisins um jöfnun ferðakostnaðar verði áfram tryggt og að fallið verði frá
breytingum sem fela í sér verulega skerðingu á stuðningi við íbúa landsbyggðarinnar.
Jafnframt verði við framkvæmd og áframhaldandi þróun kílómetragjalds tekið sérstakt tillit
til aðstæðna íbúa í dreifðum byggðum, þar sem langar akstursvegalengdir eru ekki val heldur
óhjákvæmilegur fylgifiskur búsetu og aðgengis að þjónustu.
Byggðaráð leggur áherslu á að breytingar á opinberum gjöldum og stuðningskerfum sem hafa
mismunandi áhrif eftir búsetu verði metnar með tilliti til byggðasjónarmiða og jafnræðis íbúa
landsins.

13.
Frá SSNE; Hluthafafundur Greiðrar leiðar
Tekinn fyrir rafpóstur frá Greiðri leið ehf., dagsettur þann 15. október Hluthafafundur í einkahlutafélaginu Greiðri leið ehf., kt.: 420403-2670, verður haldinn föstudaginn 23.
október nk. Fundurinn verður fjarfundur á Teams og hefst kl 12:00
október nk. Fundurinn verður fjarfundur á Teams og hefst kl 12:00
Lagt fram til kynningar.
14.
Til umsagnar 88. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Tekinn fyrir rafpóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dagsettur þann 13. október sl., þar sem óskað er umsagnar um 88. mál; tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október sl.

Lagt fram til kynningar
15.
Til umsagnar 59. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Tekinn fyrir rafpóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dagsettur þann 13. október sl., þar sem óskað er umsagnar 59. máli; frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október sl.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október sl.
Lagt fram til kynningar.
16.
Til umsagnar 202. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Tekinn fyrir rafpóstur frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dagsettur þann 15. október sl., þar sem óskað er umsagnar um 202. mál - Loftslagslög.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október nk.