Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1193. fundur
1. október 2026
kl.
13:15
-
16:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Börkur Þór Ottósson
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Rekstur tjaldsvæðisins á Dalvík - Verðfyrirspurn 2026
Tekið fyrir minnisblað frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 21. september sl., þar sem fram kemur að í mars 2026 auglýsti Dalvíkurbyggð eftir aðila sem hefði áhuga á að taka að sér rekstur tjaldsvæðisins á Dalvík árin 2026 - 2028. Tvö tilboð bárust í reksturinn en ekki varð að samningum við hvorugan aðilann.
Í framhaldinu sýndi Nutris ehf., Árni Júlíusson sem er jafnframt rekstraraðili hótelsins á Dalvík, áhuga á því að reka tjaldsvæðið sumarið 2026 og var gert samning um Nutris ehf. um reksturinn 2026.
Sumarið gekk vel, þrátt fyrir knappann tímaramma í undirbúning, og hefur deildarstjóri ekki heyrt annað en góða hluti um umsjón tjaldsvæðisins í sumar.
Nú hefur Árni Júlíusson fyrir hönd Nutris ehf. boðið Dalvíkurbyggð að taka að sér rekstur tjaldsvæðisins til næstu þriggja ára /sumra ef viji er til þess.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar að vinna málið áfram samkvæmt umræðum á fundinum.
2.
Frá Markaðsstofu Norðurlands; Ósk um stuðning við Flugklasann Air 66N
Tekið fyrir erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett þann 22. septmeber 2026, þar sem óskað er eftir áframhaldandi stuðningi við Flugklasann Air 66N.
Fram kemur m.a. að óvissa ríkir um áframhald á fjármögnun Flugklasans. Hjá ráðuneyti ferðamála er í gangi vinna við að endurskoða með hvaða hætti staðið er að kynningarmálum og markaðssetningu Íslands fyrir ferðaþjónustu. Í ljósi óvissu um framlög ríkisins er fjárhagslegur stuðningur sveitarfélaganna við Flugklasann enn nauðsynlegur. Markaðsstofa Norðurlands óskar því hér með eftir stuðningi frá Dalvíkurbyggð að upphæð 500 kr. á hvern íbúa á ári til næstu þriggja ára (2027-2029).
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir að í tillögu að fjárhagsáætlun 2027 er gert ráð fyrir áframhaldandi stuðningi við Flugklasann, kr. 500 á hvern íbúa.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn áframhaldandi stuðningi við Flugklasann Air 66N.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.
3.
Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga; gögn
Tekið fyrir erindi frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga, dagsett þann 23. september sl., þar sem boðað er til aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga miðvikudaginn 7. október nk. kl. 13:00 -14:30.
Með fundarboðinu fylgir einnig:
Fjárhagsáætlun 2027-2028.
Tillaga að árgjöldum.
Tillaga að ályktun aðalfundar.
Með fundarboðinu fylgir einnig:
Fjárhagsáætlun 2027-2028.
Tillaga að árgjöldum.
Tillaga að ályktun aðalfundar.
Lagt fram til kynningar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að beina því til Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga að endurskoða tillögu að hækkun aðildargjalda.

4.
Frá innviðaráðuneytinu; Þátttakendur í minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa - 15. nóvember 2026
Tekið fyrir erindi frá innviðráðuneytinu dagsett þann 15. september sl., þar sem fram kemur að Alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 15. nóvember 2026. Dagurinn er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert og tileinkaður minningu þeirra sem hafa lótist í umferðarslysum.Að þessu sinni verður kastljósinu beint að ungum vegfarendum í umferðinni.
Lagt fram til kynningar.
5.
Kjördæmavika 2026
Fulltrúar Dalvíkurbyggðar sóttu fund, sem var boðið upp á með þingmönnum kjördæmisins, á mánudaginn sl. í kjördæmaviku.
Til umræðu þær áherslur sem voru lagðar fyrir þingmennina á þeim fundi.
Til umræðu þær áherslur sem voru lagðar fyrir þingmennina á þeim fundi.
Lagt fram til kynningar.
6.
Frá 7. fundi fjölskylduráðs þann 22.09.2026; Endurskoðun á innritunarreglum í leikskóla
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Elvý Guðríður Hreinsdóttir, leikskólastjóri, og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13:58.
Á 7. fundi fjölskylduráðs þann 22. september sl. var eftirfarandi bókað:
"Innritunarreglur teknar til endurskoðunnar
Niðurstaða : Innritunarreglur teknar fyrir í fjölskylduráði. Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum innritunarreglur og vísa reglum til frekari vinnslu inn í Byggðaráð."
Til umræðu tillögur að breytingum á innritunarreglum leikskóla.

Afgreiðslu frestað.
7.
Gjaldfrjáls leikskóli
Á 1190. fundi byggðaráðs þann 27. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
"Stjórnendur leikskóla fara yfir hvernig hafi gengið með gjaldfrjálsan leikskóla og fara yfir hvað margir eru að nýta sér hann.
Tekið fyrir minnisblað frá formanni fjölskylduráðs og sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs, þar sem að lagt er til að ekki verði rukkað fyrir skráningadaga fyrir þau börn sem ekki eru í gjaldfrjálsum leikskóla.
Niðurstaða : Monika Margrét Stefánsdóttir og Helgi Einarsson leggja til að þessu máli verði frestað og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar ásamt vinnu við endurskoðun á innritunarreglum og gjaldskrá.
Benedikt Snær Magnússon leggur fram eftirfarandi bókun:
"Ég tek undir bókun Birtu Dísar og minni á að skráningardagar eru fyrir þá sem nauðsynlega þurfa. Með því að skráningardagar verði innifaldir í leikskólagjöldum fyrir þá foreldra sem greiða þau er aftur verið að auka álag á leikskólastarfsmenn á þeim tímum sem þeir hafa verið að taka styttingu og með auknum fjölda barna gæti skipulag á mönnun á leikskólunum sett töku þeirra á styttingardögum í uppnám. Ef af verður gæti þurft að hafa leikskólana lokaða fremur en skráningardaga, og þar með verið að veikja tilgang skráningardaganna með skertri þjónustu við þá foreldra barna sem þurfa nauðsynlega að nýta vistun á þessum skráningardögum. Gjaldinu fyrir skráningardaga í Dalvíkurbyggð hefur verið stillt í hóf, en það má nefna að í samanburði við gjaldið í öðrum sveitarfélögum er gjaldið hóflegt."
Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að fresta afgreiðslu, Benedikt Snær greiðir atkvæði á móti."
Til umræðu gjaldfrjáls leikskóli og ýmis atriði í tengslum við útfærsluna.
Elvý vék af fundi kl. 15:09.

8.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Endurskoðun á samningi við Daga vegna ræstinga
Tekið fyrir minnisblað frá Gísla Bjarnasyni, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 28.09.2026; þar sem lagt er til að nýtt verði heimild í samningi við Daga um að framlengja samningnum um eitt ár.
Gísli vék af fundi kl. 15:13.
Gísli vék af fundi kl. 15:13.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að samningur við Daga um ræstingar verði framlengdur um eitt ár og hugað verði að því undirbúa útboð í starfs- og fjárhagsáætlun 2027.
9.
Slökkvistöð, nýbygging E2301
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs María Markúsdóttir, skipulagsfulltrúi, kl. 14:30.
Á 1192. fundi byggðaráðs þann 23. september sl., var eftirfarandi bókað:
"Á 1181. fundi byggðaráðs þann 30. apríl sl. var farið yfir nýjustu samskipti sveitarstjóra við Faglausn um verkefnið ásamt teikningum frá Faglausn, sbr. rafpóstur dagsettur þann 30.04.2026, miðað við staðsetningu við Ólafsfjarðarveg.
Með fundarboði fylgdi:
Umsögn frá Vinnueftirlitinu, dagsett þann 18. maí 2026, hvað varðar teikningar af nýrri slökkvistöð og lögreglustöð á Dalvík við Ólafsfjarðarveg, 464 Dalvík, og gerir ekki athugasemdir við teikningar.
Punktar frá fundi þann 11. september sl., með fulltrúum frá Lögreglunni og Faglausn.
Erindi frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 15. september sl., þar sem lagt er til að gerður verður leigusamningur um 133 m2 sérafnot lögreglu ásamt tillögu að leiguverði sem taka þarf afstöðu til.
Fundur var í gær 22. september sl. með fulltrúum frá HSN vegna sjúkrabíla.
Niðurstaða : Afgreiðslu frestað."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi nýjustu upplýsingar frá Faglausn hvað varðar grunnmynd og skýrslu sem sýnir hlutfallsskiptingu á milli Slökkviliðs Dalvíkur, HSN vegna sjúkrabíla og Lögreglunnar á Norðurlandi Eystra.
Einnig fylgdi með rafpóstur HSN, dagsettur þann 28. 09.2026.
Til umræðu skipulagsmálin, staða þeirra vegna þessa verkefnis og tímalína.
Einnig rætt um lóðamál.

10.
Fyrirspurn um gagnaver í Dalvíkurbyggð
Á 1189. fundi byggðaráðs þann 23. september sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
Á 5. fundi framkvæmdaráðs þann 13. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:Lögð fram til umræðu fyrirspurn um hugsanlega lóð fyrir gagnaver í Dalvíkurbyggð.Niðurstaða : Lagt fram til kynningar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að afla nánari upplýsinga.
Á fundinum var farið yfir þær upplýsingar sem sveitarstjóri hefur aflað á milli funda og samskipti á milli aðila.
Með fundarboði fylgdu drög að óbindandi viljayfirlýsingu á milli Dalvíkurbyggðar annars vegar og hins vegar framkvæmdaraðila verkefnisins, hvað varðar fyrirhugaða uppbyggingu gagnavers í Dalvíkurbyggð.
Niðurstaða : Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi og yfirfarin drög af bæjarlögmanni að viljayfirlýsingu. Unnið verði áfram að henni á fundum byggðaráðs fram að sveitarstjórnarfundi þann 20. október nk.
Byggðaráð óskar eftir að fá skipulagsfulltrúa á fund byggðaráðs vegna lóðamála"
Með fundarboð byggðaráðs fylgdi uppfærð viljayfirlýsing eftir yfirferð framkvæmdaaðila frá síðasta fundi byggðaráðs.
Til umræðu staðsetning og lóðamál.
María vék af fundi kl. 15:32.

11.
Mánaðarlegar skýrslur 2026; janúar - ágúst 2026
Frestað.
Frestað.
12.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Til umræðu skipulag á yfirferð á skilum og tímasetningar á aukafundum vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að aukafundur vegna fjárhagsáætlunar verði þriðjudaginn 6. október og þriðjudaginn 13. október.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga er dagana 8. - 9. október nk. og því ekki hefðbundinn fundur byggðaráðs þá vikuna.

13.
Fjárhagsáætlun 2027; Ósk um samstarf við uppbyggingu tónlistar-, lista- og þekkingarhátíðar
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Freyr Antonsson og Friðjón Árni Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi,kl. 15:34.
Á 1192. fundi byggðaráðs þann 23. september sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13:15.

Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
Tekið fyrir erindið frá Whale Music Festival ehf., þar sem óskað er eftir samstarfi við uppbyggingu Whale Music Festival á Dalvík fyrir tímabilið 2027-2030. Óskað er eftir fjárframlagi að upphæð kr. 5.000.000 árið 2027 og langtímasamstarfi við Dalvíkurbyggð. Meðfylgjandi er lýsing á verkefninu og áætlaður kostnaður.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað teymis innanhúss, dagsett þann 7. september sl., þar sem lagt er til að byggðaráð óski eftir að fá Frey Antonsson á fund.
Freyr hafði ekki tök á að koma á fundinn í dag og því frekari umfjöllun frestað til næsta fundar.
Frestað."
Freyr Antonsson gerði grein fyrir ofangreindu verkefni og hugmyndir um samstarf.
Freyr vék af fundi kl. 15:59.
Friðjón vék af fundi kl. 16:08.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til vinnu við fjárhagsáætlun 2027.