Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1192. fundur
23. september 2026
kl.
13:15
-
15:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Whale Music Festival ehf.; Ósk um samstarf við uppbyggingu tónlistar-, lista- og þekkingarhátíðar
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13:15.
Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindið frá Whale Music Festival ehf., þar sem óskað er eftir samstarfi við uppbyggingu Whale Music Festival á Dalvík fyrir tímabilið 2027-2030. Óskað er eftir fjárframlagi að upphæð kr. 5.000.000 árið 2027 og langtímasamstarfi við Dalvíkurbyggð. Meðfylgjandi er lýsing á verkefninu og áætlaður kostnaður.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað teymis innanhúss, dagsett þann 7. september sl., þar sem lagt er til að byggðaráð óski eftir að fá Frey Antonsson á fund.
Freyr hafði ekki tök á að koma á fundinn í dag og því frekari umfjöllun frestað til næsta fundar.

Frestað.
2.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Kvenfélaginu Tilraun; endurbætur á Tunguseli
Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Kvenfélaginu Tilraun, dagsett þann 13. ágúst sl., þar sem óskað er eftir fjárstuðningi frá Dalvíkurbyggð vegna vinnu við endurbætur á húsnæði félagsins Tunguseli við Tungurétt. Meðfylgjandi er kostnaðaráætlun fyrir verkefnið.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað teymis innanhúss, dagsett þann 7. september sl., þar sem niðurstaðan er að leggja til að styrkja verkefnið um allt að 3,5 m.kr. vegna efniskaupa, ef svigrúm er innan ramma deildar 05810. Greitt yrði þá gegn framvísun reikninga. Varðandi húsnæðið sjálft þarf að benda félaginu á að fara með í réttan farveg og sækja um leyfi, til dæmis ef breyta á útliti.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindri tillögu til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.
3.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Sjómannadeginum í Dalvíkurbyggð; beiðni um styrk vegna Sjómannadags
Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Sjómannadagsnefd Dalvíkurbyggðar, móttekið 10. ágúst sl. þar sem óskað er eftir föstum árlegum fjárstuðningi til Sjómannadagsins fyrir árin 2027-2030. Óskað er eftir kr.1.000.000 í styrk næstu fjögur árin sem og húsaleigu vegna árshátíðar Sjómanna og Landkrabba. Meðfylgjandi er áætlun fyrir verkefnið.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs."
Með fundarboði fylgdi minnisblað teymis innanhúss, dagsett þann 7. september sl., þar sem lagt er til að Sjómannadagurinn fái allt að 1,0 m.kr. í styrk og innifalið í því sé kr. 500.000 beinn styrkur, sbr. fyrri ár, og kr. 500.000 til viðbótar sem er þá upp í húsaleigu vegna Íþróttamiðstöðvar og leigu á klósetti. Varðandi samstarf við Framkvæmdasvið/Eigna- og framkvæmdadeild um lán á búnaði, sbr. fyrri ár, þá er Sjómannadeginum bent á að vera í sambandi við deildarstjóra um tímasetningar og fyrirkomulag.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindi tillögu til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.
4.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Unni Valgeirsdóttur; infrarauðu rklefi
Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Unni Valgeirsdóttur, dagsett þann 25. júní sl, þar sem bent er á lýðheilsulegan ávinning bæjarbúa ef settur yrði upp innfrarauður klefi í Íþróttamiðstöðinni.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað teymis innanhúss, dagsett þann 7. september sl., þar sem lagt er til að þessu erindi verði hafnað að sinni. Töluvert fjármagn hefur farið í Íþróttamiðstöðina á undanförnum árum og mál að setja í kælingu um sinn.
Á 7. fundi fjölskylduráðs þann 22. september sl. var ofangreint tekið til umfjöllunar og samþykkti ráðið að hafna erindinu.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ofangreindar tillögur um að hafna erindinu. Vísað til gerðar 3ja ára áætlunar.
5.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Sundfélaginu Rán; yfirbreiðsla yfir sundlaug Dalvíkur
Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Sundfélaginu Rán, dagsett þann 22. júlí sl., þar sem félagið óskar eftir að Dalvíkurbyggð komi upp yfirbreiðslu fyrir Sundlaug Dalvíkur. Með yfirbreiðslu yfir haust- og vetrartíma myndi hitastig vatns í lauga verða stöðugra og minni vindkæling.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað teymis innanhúss, dagsett þann 7. september sl., þar sem fram kemur að kostnaður við slíka uppsetningu er um 9-10 milljónir króna gróft áætlað og í ljósi þess að miklu fé hefur nú þegar verið varið í íþróttamiðstöðina og sundlaugina á undanförnum árum er ekki talið forsvaranlegt að fara í þessa framkvæmd sem stendur. Önnur verkefni bíða og þyrftu að vera framar í forgangsröðinni. Því er lagt til að hafna þessu erindi.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu um að hafna erindinu.
6.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Ósk um breytingu á starfi Húsvarðar í Dalvíkurskóla
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 19. ágúst sl., þar sem óskað er eftir heimild til að breyta starfi húsvarðar í Dalvíkurskóla/Árskógarskóla og umsýslu vegna Félagsheimilis í Árskógi.
a) Lagt er til að starf húsvarðar í Dalvíkurskóla/Árskógarskóla og Félagsheimili breytist um áramót þannig að húsvörður verður í Dalvíkurskóla, Krílakoti og Kötlukot í Árskógi sem rekin sem deild frá Krílakoti. Þegar grunnskóladeildin fluttist í Dalvíkurskóla frá Árskógarskóla þá breyttust forsendur varðandi að veita félagsheimili í Árskógi forstöðu þar sem að skólastjóri grunnskóla í Árskógi verður ekki lengur til. Ekki kemur til viðbótar kostnaður vegna breytinga.
b) Einnig leggur sviðsstjóri til að starfsemi og rekstur á félagsheimili í Árskógi og tjaldsvæði verður boðið út með sambærilegum hætti og gert er með Rima í Svarfaðardal eða að fá félagasamtök til að sjá um rekstur hússins. Sviðsstjóri hefur farið á fund hjá kvenfélaginu Hvöt á Árskógarströnd þar sem hann viðraði þessa hugmynd sem er í skoðun hjá félaginu.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi gildandi starfslýsing húsvarðar og tillaga að breyttri starfslýsingu ef breytingar verða gerðar samkvæmt því sem lagt er til í lið a) hér að ofan.
Til umræðu ofangreint.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta erindinu og felur sviðssjóra fræðslu- og menningarsviðs að vinna áfram að málinu á milli funda.
7.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Erindi frá Ævari og Bóas ehf.; Ósk um breytingu á kílómetragjaldi í skólaakstri.
Tekið fyrir erindi frá Ævari og Bóas ehf., dagsett þann 25. ágúst sl., þar sem óskað er eftir að hækka verð á hvern kílómeter til að ná réttu hlutfalli á milli bíla vegna breytinga á skólaakstri í Árskógarskóla, þ.e. einn bíll í akstri dottið út. Með fundarboði eru ítarupplýsingar frá Ævari og Bóas ehf., dagsettar þann 16. september sl., þar sem gert er frekari grein fyrir ósk um hækkun á greiðslum, þ.e. það er verið að færa stærri bíl á milli leiða og hætta með litla bílinn sem var að borga upp mismuninn.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað sviðsstjóra, dagsett þann 21. september sl.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að koma með útreikninga og gögn fyrir fund byggðaráðs sem sýna áhrifin á samninginn fyrir og eftir breytingar á skólahaldi í Árskógarskóla.
Afgreiðslu frestað.
Afgreiðslu frestað.
8.
Trúnaðarmál
Gísli vék af fundi kl. 14:07.
Bókað í trúnaðarmálabók.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni, viðauka nr. 32 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 2.373.702 á deild 04210-laun.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.
Frá Kirkjugörðum Dalvíkurprestakalls; Stækkun kirkjugarðs við Dalvíkurkirkju
Á 40. fundi skipulagsráðs þann 12. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Erindi dagsett 27.október 2025 þar sem Steinunn Elfa Úlfarsdóttir f.h. Kirkjugarða Dalvíkursóknar sækir um stækkun kirkjugarðsins á Dalvík.
Fyrirhuguð stækkun markast af lóðamörkum sunnan og norðan við núverandi garð og 25 m til vesturs frá núverandi lóðarmörkum.
Niðurstaða : Skipulagsráð vísar erindinu til yfirstandandi vinnu við nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá formanni Kirkjugarða Dalvíkursóknar, dagsett þann 24. ágúst sl., þar sem formaður sæki um allar þær framkvæmdir við fyrirhugaða stækkun kirkjugarðs við Dalvíkurkirkju sem Dalvíkurbyggð eigi að leggja af hendi samkvæmt lögum.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað sveitarstjóra hvað varðar lagalegar skyldur sveitarfélaga vegna kirkjugarða. Fram kemur m.a. að áður en kostnaður er samþykktur skal liggja fyrir sundurliðuð kostnaðaráætlun, afmörkun á hlutdeild sveitarfélagsins og staðfesting á fjárheimild. Sveitarstjóri óskaði eftir frekari gögnum og upplýsingum frá Kirkjugörðum Dalvíkursóknar, m.a. lýsingu á verkinu,tímaáætlun og sundurliðaðri kostnaðaráætlun fyrir þessari framkvæmd. Í svari formanns, dagsett þann 14. september sl., kemur fram að Dalvíkurbyggð eigi að leggja fram grafartækt land og efni í girðingu kringum garðinn. Varðandi verktíma þá vilji kirkjugarðar Dalvíkursóknar fá þetta gert sem fyrst.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu máli til Framkvæmdasviðs hvað varðar útreikninga á kostnaði sveitarfélagsins miðað við fyrirhugaða staðsetningu.
10.
Slökkvistöð, nýbygging E2301; erindi frá Lögreglunni vegna leiguverðs
Á 1181. fundi byggðaráðs þann 30. apríl sl. var farið yfir nýjustu samskipti sveitarstjóra við Faglausn um verkefnið ásamt teikningum frá Faglausn,
sbr. rafpóstur dagsettur þann 30.04.2026, miðað við staðsetningu við Ólafsfjarðarveg.
Með fundarboði fylgdi:
Umsögn frá Vinnueftirlitinu, dagsett þann 18. maí 2026, hvað varðar teikningar af nýrri slökkvistöð og lögreglustöð á Dalvík við Ólafsfjarðarveg, 464 Dalvík, og gerir ekki athugasemdir við teikningar.
Punktar frá fundi þann 11. september sl., með fulltrúum frá Lögreglunni og Faglausn.
Erindi frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 15. september sl., þar sem lagt er til að gerður verður leigusamningur um 133 m2 sérafnot lögreglu ásamt tillögu að leiguverði sem taka þarf afstöðu til.
Fundur var í gær 22. september sl. með fulltrúum frá HSN vegna sjúkrabíla.

11.
Frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun; Úttekt slökkviliðs
Tekið fyrir erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnuninni, dagsett þann 9. september sl, þar sem fram kemur að þann 21. apríl 2026 sl. framkvæmdi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) úttekt á starfsemi Slökkviliðs Dalvíkur.
Meðfylgjandi er niðurstaða þeirrar úttektar. Er þess farið á leit við sveitarstjórn að niðurstöðurnar verði teknar til umfjöllunar.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Slökkviliðsstjóra að fara yfir úttektina og koma með tillögur og áætlun um úrbætur við athugasemdum HMS fyrir fundi byggðaráðs.
Byggðaráð óskar eftir að Slökkviliðstjóri komi á fund byggðaráðs og fylgi úttektinni eftir, eins og HMS mælist til.

12.
Frá sveitarstjóra; Fyrirspurn um gagnaver í Dalvíkurbyggð; staða máls
Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 5. fundi framkvæmdaráðs þann 13. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:Lögð fram til umræðu fyrirspurn um hugsanlega lóð fyrir gagnaver í Dalvíkurbyggð.Niðurstaða : Lagt fram til kynningar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að afla nánari upplýsinga."
Á fundinum var farið yfir þær upplýsingar sem sveitarstjóri hefur aflað á milli funda og samskipti á milli aðila.
Með fundarboði fylgdu drög að óbindandi viljayfirlýsingu á milli Dalvíkurbyggðar annars vegar og hins vegar framkvæmdaraðila verkefnisins, hvað varðar fyrirhugaða uppbyggingu gagnavers í Dalvíkurbyggð.

Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi og yfirfarin drög af bæjarlögmanni að viljayfirlýsingu. Unnið verði áfram að henni á fundum byggðaráðs fram að sveitarstjórnarfundi þann 20. október nk.
Byggðaráð óskar eftir að fá skipulagsfulltrúa á fund byggðaráðs vegna lóðamála.

13.
Frá Einingu Iðju;Samtal vegna kjarasamninga
Tekið fyrir erindi frá Einingu-Iðju, dagsett þann 30. júní sl., þar sem fram kemur að nú sé vinna og samtal í gangi vegna stöðunnar í þjóðfélaginu. Nú lítur út fyrir að forsendur
kjarasamninga muni ekki halda í haust og því er óskað eftir upplýsingum eða samtali við kjörna fulltrúa Dalvíkurbyggðar. Fram kemur að allir þurfi að leggjast á eitt til að snúa við þróun á vöxtum og verðbólgu til hagsbóta fyrir okkur öll. Það sé ekki gert nema með samhentu átaki og þar skipta sveitarfélögin miklu máli.
Óskað er eftir stefnu sveitarfélagsins hvað varðar gjaldskrár á kjörtímabilinu. Verður lögð áhersla á að sýna ábyrgð varðandi gjaldskrár og aðrar hækkanir hjá sveitarfélaginu?
Því er óskað eftir samtali við kjörna fulltrúa eða fulltrúa sveitarfélagsins þar sem áætlanir í þessum málaflokki verða skýrðar fyrir Einingu-Iðju.

Með því að halda hækkun á gjaldskrá í lágmarki og töluvert undir núverandi verðbólgu og verðbólguvæntingum þá leggur Dalvíkurbyggð sitt lóð á vogarskálarnar að ná verðbólgu niður á næstu misserum. Fyrir árið 2027 er viðmiðið að gjaldskrár Dalvíkurbyggðar hækki ekki meira en um 2,5%.
Vísað til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Vísað til umfjöllunar í sveitarstjórn.
14.
Frá Starfsgreinasambandi Íslands; Erindi um þjóðarsátt um verðstöðugleika
Tekið fyrir erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands, dagsett þann 16. september sl, þar sem meðfylgjandi er áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess um þjóðarsátt um verðstöðugleika. SGS skorar á sveitarfélög landsins að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum og stuðla þannig að því að kjarasamningar haldi.
Eruð þið með?
Óskað er eftir að áskorunin verði lögð fyrir sveitarstjórn og henni komið á framfæri við alla kjörna fulltrúa.
Jafnframt óskar SGS eftir skriflegu svari sveitarfélagsins við erindinu.
Eruð þið með?
Óskað er eftir að áskorunin verði lögð fyrir sveitarstjórn og henni komið á framfæri við alla kjörna fulltrúa.
Jafnframt óskar SGS eftir skriflegu svari sveitarfélagsins við erindinu.
Með því að halda hækkun á gjaldskrá í lágmarki og töluvert undir núverandi verðbólgu og verðbólguvæntingum þá leggur Dalvíkurbyggð sitt lóð á vogarskálarnar að ná verðbólgu niður á næstu misserum. Fyrir árið 2027 er viðmiðið að gjaldskrár Dalvíkurbyggðar hækki ekki meira en um 2,5%.
Vísað til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Vísað til umfjöllunar í sveitarstjórn.
15.
Frá VR; Erindi til sveitarstjórnar 2026
Tekið fyrir erindi frá VR, dagsett þann 14. september sl., þar sem meðfylgjandi er erindi frá VR, LÍV og Fagfélögum til sveitarstjórnar.
Fram kemur m.a. að við gerð kjarasamninga vorið 2024 var lögð rík áhersla á að allir legðu sitt af mörkum til að skapa efnahagslegan stöðugleika. Rauði þráður samninganna var að launafólk, atvinnurekendur og opinberir aðilar væru öll í sama liði í þeirri viðleitni að ná niður verðbólgu og vöxtum og verja kaupmátt heimilanna.
Á þeim forsendum undirgekkst launafólk hóflegar launahækkanir til fjögurra ára. Ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga, undirrituðu sérstaka yfirlýsingu um aðgerðir til að styðja við markmið samninganna.
Óskað er eftir upplýsingum um hvað Dalvíkurbyggð er tilbúin að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður. Sérstaklega óskum við eftir afstöðu sveitarfélagsins til eftirfarandi:
? Mun Dalvíkurbyggð endurskoða fyrirhugaðar eða þegar samþykktar gjaldskrárhækkanir og leita leiða til að lækka gjöld sem hafa mest áhrif á barnafjölskyldur og viðkvæma
hópa?
? Hvaða aðgerðir hyggst Dalvíkurbyggð ráðast í til að tryggja nægilegt framboð lóða og hraðari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis?
? Hvernig hyggst Dalvíkurbyggð leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla?
? Hvaða aðrar aðgerðir telur Dalvíkurbyggð mögulegar til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og styðja við markmið kjarasamninganna um verðstöðugleika?
Fram kemur m.a. að við gerð kjarasamninga vorið 2024 var lögð rík áhersla á að allir legðu sitt af mörkum til að skapa efnahagslegan stöðugleika. Rauði þráður samninganna var að launafólk, atvinnurekendur og opinberir aðilar væru öll í sama liði í þeirri viðleitni að ná niður verðbólgu og vöxtum og verja kaupmátt heimilanna.
Á þeim forsendum undirgekkst launafólk hóflegar launahækkanir til fjögurra ára. Ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga, undirrituðu sérstaka yfirlýsingu um aðgerðir til að styðja við markmið samninganna.
Óskað er eftir upplýsingum um hvað Dalvíkurbyggð er tilbúin að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður. Sérstaklega óskum við eftir afstöðu sveitarfélagsins til eftirfarandi:
? Mun Dalvíkurbyggð endurskoða fyrirhugaðar eða þegar samþykktar gjaldskrárhækkanir og leita leiða til að lækka gjöld sem hafa mest áhrif á barnafjölskyldur og viðkvæma
hópa?
? Hvaða aðgerðir hyggst Dalvíkurbyggð ráðast í til að tryggja nægilegt framboð lóða og hraðari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis?
? Hvernig hyggst Dalvíkurbyggð leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla?
? Hvaða aðrar aðgerðir telur Dalvíkurbyggð mögulegar til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og styðja við markmið kjarasamninganna um verðstöðugleika?
Með því að halda hækkun á gjaldskrá í lágmarki og töluvert undir núverandi verðbólgu og verðbólguvæntingum þá leggur Dalvíkurbyggð sitt lóð á vogarskálarnar að ná verðbólgu niður á næstu misserum. Fyrir árið 2027 er viðmiðið að gjaldskrár Dalvíkurbyggðar hækki ekki meira en um 2,5%.
Vísað til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Vísað til umfjöllunar í sveitarstjórn.
16.
Starfs- og kjaranefnd 2026 - fundargerðir, erindi og samskipti
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir fundargerð starfs- og kjaranefndar frá 16.09.2026 sem og umfjöllun nefndarinnar í júní og ágúst sem leyst var í tölvupósti vegna sumarleyfa starfsmanna.
Lagt fram til kynningar.
17.
Frá BHS ehf.; aðalfundur og ársreikningur 2025
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi aðalfundarboð, dagsett þann 16. september sl., frá BHS ehf., en fundurinn er haldinn miðvikudaginn 23. september 2026 kl. 20.
Meðfylgjandi er einnig ársreikningur 2025 fyrir félagið.
Meðfylgjandi er einnig ársreikningur 2025 fyrir félagið.
Lagt fram til kynningar.
18.
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsögn vegna tækifærisleyfis, Dansleikur Rimar- 2026062775
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 15. september sl., þar sem óskað er umsagnar um umsókn um tækifærisleyfi vegna dansleikjar að Rimum þann 3. október nk.
Með fundaboði byggðaráðs fylgdi jákvæð umsögn slökkiviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 16. september sl.

Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreint leyfi sé veitt, með fyrirvara um umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.
19.
Frá SSNE; Erindi um Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030
Tekið fyrir erindi frá SSNE, dagsett þann 11. september sl., þar sem meðfylgjandi er erindi og gögn vegna Áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027?2030, sem Farsældarráð Norðurlands eystra samþykkti á fundi sínum 9. september sl.
Óskað er eftir að sveitarstjórn taki áætlunina til umfjöllunar og afgreiðslu.
Áætlunin er unnin á grundvelli laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og er liður í lögbundnu hlutverki farsældarráða samkvæmt 5. gr. laganna. Við gerð hennar var byggt á stefnumótun stjórnvalda um farsæld barna, niðurstöðum farsældarþings og víðtæku samráði við sveitarfélög, þjónustuveitendur ríkisins og aðra samstarfsaðila á Norðurlandi eystra.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til Fjölskylduráðs og stjórnenda/starfsmanna Dalvíkurbyggðar sem vinna með málaflokkinn hjá Dalvíkurbyggð.
20.
Frá SSNE; Viðbygging fyrir verknámsaðstöðu VMA; Staðan
Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
Á 1187. fundi byggðaráðs þann 30. júlí sl. var eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði fylgdi tölvupóstur frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, bæjarstjóra á Akureyri. Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá framkvæmdastjóra SSNE, dagsettur þann 14. águst sl., þar sem teknir eru saman punktar varðandi áform um viðbyggingu við VMA.
Meðfylgjandi er einnig samningur frá 17. maí 2024 sem þáverandi barna- og menntamálaráðherra gerði við VMA og sveitarfélögin við Eyjafjörð um viðbyggingu fyrir verknámsaðstöðu við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."
Með fundarboði fylgdu upplýsingar sveitarstjóra um fund MRN, SSNE og fulltrúa sveitarfélaganna við Eyjafjörð þann 15. september sl.
Einnig fylgdi með fréttatilkynning af vef Stjórnarráðsins þar sem fram kemur að Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, undirrituðu þann 18.09.2026 viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA). Með yfirlýsingunni tekur Akureyrarbær að sér umsjón með undirbúningi og framkvæmd verkefnisins
https://www.stjornarradid.is/frettir/grein/naestu-skref-tekin-i-staekkun-verknamshuss-vma/

Lagt fram til kynningar. Byggðaráð fagnar þessum áfanga.
21.
Frá SSNE; Ósk um tilnefningu fulltrúa í fjölmenningarráð SSNE
Tekið fyrir erindi frá SSNE, dagsett þann 12. ágúst sl., þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa í fjölmenningarráð SSNE fyrir komandi kjörtímabil.
Fjölmenningarráð SSNE er samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra sem hefur það hlutverk að efla samráð, miðla þekkingu og styðja við þróun verkefna sem stuðla að inngildingu og virkri samfélagsþátttöku fólks af erlendum uppruna. Á ársþingi SSNE 2021 var samþykkt að stofna fjölmenningarráð til að styðja við sveitarfélögin í inngildingu nýbúa. Ráðið vinnur að því að greina þarfir, koma á framfæri sjónarmiðum og styðja við aðgerðir sem stuðla að jafnari tækifærum og sterkari samfélögum um allt svæðið.
Sveitarfélagið er hvatt til að tilnefna fulltrúa sem hefur áhuga á málefnum fjölmenningar, inngildingar og samfélagsþróunar og getur tekið virkan þátt í starfi ráðsins.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir tillögu frá fjölskylduráði.
22.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, kynning
Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 16. september sl., þar sem kynntar eru glærur um hagsmunagæslu Sambansins og þingmálaskrá 2026/2027. Einnig eru meðfylgjandi glærur um fjárlagafrumvarpið.
Lagt fram til kynningar.
23.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Landsþing 2026 - Stefnumörkun
a)Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 1. september sl., þar sem fram kemur að samkvæmt samþykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga skal á fyrsta landsþingi eftir almennar sveitarstjórnarkosningar vinna að útfærslu á stefnumörkun Sambandsins til næstu fjögurra ára. Stjórn Sambandsins annast svo frekari úrvinnslu stefnumörkunar að loknu landsþingi. Meðfylgjandi eru drög að stefnumörkun næstu fjögurra ára sem rædd verður á landsþingi Sambandsins á Akureyri 23.-25. september næstkomandi.Drög að stefnumörkun sendast hér með sveitarstjórnum til skoðunar svo að þær hafi tækifæri til að ræða efnistök og áherslur við sína landsþingsfulltrúa.
b)Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 9. september sl., þar sem fram kemur að á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldið verður 23.?25. september nk., verða lagðar fram tillögur að breytingum á samþykktum Sambandsins, eins og fram kemur í dagskrá landsþingsins.
Samkvæmt 18. gr. samþykktanna skulu tillögur um breytingar á samþykktum lagðar fyrir stjórn a.m.k. fjórum vikum fyrir landsþing og sendar fulltrúum á landsþingi eigi síðar en tveimur vikum fyrir þingið.
c) Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 11. september sl., þar sem fram kemur að tillaga kjörnefndar að skipan stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga liggur nú fyrir og verður lögð fyrir Landsþing Sambandsins 23.?25. september nk.
Samkvæmt 9. gr. samþykkta Sambandsins skal kjörnefnd, að loknum sveitarstjórnarkosningum, koma saman og gera tillögu til landsþings um kjör stjórnar Sambandsins. Kjörnefnd hefur starfað að undirbúningi tillögunnar í sumar og hefur nú lokið störfum. Í 11. gr. samþykktanna er jafnframt kveðið á um að tillaga kjörnefndar skuli kynnt landsþingsfulltrúum
eigi síðar en viku fyrir setningu landsþings. Tillagan er því nú kynnt landsþingsfulltrúum í samræmi við samþykktir Sambandsins og jafnframt gerð aðgengileg sveitarfélögunum.
d) Tekið fyrir erindi frá SSNE, dagsett þann 17. september sl., þar sem kynntir eru punktar frá Haustþingi SSNE um stefnumótun Sambandsins eins og þeir komu fram í umræðunum.

a) Lagt fram til kynningar.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Lagt fram til kynningar.
d) Lagt fram til kynningar.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Lagt fram til kynningar.
d) Lagt fram til kynningar.
24.
Frá Leiguíbúðum Dalvíkurbyggðar hses; Ársfundur
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi gögn frá ársfundi Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. sem haldinn var 4. september sl.
Lagt fram til kynningar.