Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1187. fundur
30. júlí 2026 kl. 13:15 - 14:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Bessi Ragúels Víðisson varamaður
Börkur Þór Ottósson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Styrkbeiðni frá Ferðafélagi Svarfdæla
Málsnúmer 202603164
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Júlíus Magnússon, formaður Ferðafélags Svarfdæla.Á 1183.fundi byggðaráðs þann 11.júní sl., var eftirfarandi bókað:Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir að fá forsvarsmenn Ferðafélags Svarfdæla á fund byggðaráðs þar sem til umræðu yrði að setja framlög sveitarfélagsins í formlegan samning við félagið.Fjölskylduráð samþykkti á 2.fundi sínum þann 12.maí sl., með fimm atkvæðum að veita 430.000 kr. styrk úr sjóði Heisueflandi samfélags.Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar um að Ferðafélag Svarfdæla hefur verið að fá greitt á undanförnum árum kr. 500.000 í framlag af málaflokki umhverfismála og kr. 200.000 á undanförnum árum frá málaflokki íþrótta- og æskulýðsmála vegna gönguferða félagsins á miðvikudögum. Greiðslur til félagsins frá 2012 er um 8,2 m.kr.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum bókun fjölskylduráðs á 2.fundi sínum þann 12.maí sl.og samþykkir að veita kr. 430.000 styrk. Jafnframt samþykkir byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að útbúa samning við Ferðafélag Svarfdæla.

Júlíus vék af fundi kl. 13:35
2.
Útboð - Böggvisbraut suður, endurnýjun götu
Málsnúmer 202607016
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:45Þann 27.júlí sl., voru opnuð tilboð í "Útboð, Böggvisbraut suður, endurnýjun götu". Tvö tilboð bárust frá eftirtöldum: Dalverk ehf. og Steypustöðin Dalvík ehf. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað frá bæjarlögmanni, álit á mati tilboða.Eftir yfirferð og mat á tilboðum er lagt til að gengið verði til samninga við Steypstöðina á Dalvík.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við Steypustöðina á Dalvík á grundvelli tilboðs þeirra.
3.
Útboð - Birkihólar, gatnagerð
Málsnúmer 202607015
Þann 27.júlí sl., voru opnuð tilboð í "Útboð, Birkihólar, gatnagerð". Tvö tilboð bárust frá eftirtöldum: Dalverk ehf. og Steypustöðin Dalvík ehf. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað frá bæjarlögmanni, álit á mati tilboða. Eftir yfirferð og mat á tilboðum er lagt til að gengið verði til samninga við Steypstöðina á Dalvík. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við Steypustöðina á Dalvík á grundvelli tilboðs þeirra.

Helga Íris vék af fundi kl. 13:50
4.
Viðbygging fyrir verknámsaðstöðu VMA; samningur
Málsnúmer 202312065
Með fundarboði fylgdi tölvupóstur frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, bæjarstjóra á Akureyri.
Lagt fram til kynningar.
5.
Arctic Sea Tours - umsókn um leyfi fyrir útitónleika
Málsnúmer 202607095
Arctic Sea Tours ehf. óskar eftir leyfi landeiganda til þess að loka frá ferjubryggju að Bakkanum vegna fyrirhugaðra úti tónleika þann 8.ágúst nk., sbr. meðfylgjandi afstöðumynd.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita leyfi fyrir tónleikum að umræddu svæði. Jafnframt samþykkir byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum að veita sveitarstjóra heimild til þess að veita jákvæða umsögn til Sýslumannsins á Norðurlandi eystra vegna umsóknar Arctic Sea Tours ehf. um tækifærisleyfi svo fremi sem liggi fyrir jákvæðar umsagnir þeirra aðila sem sýslumaður óskar sérsaklega eftir.
6.
Samningur um þjónustu loftræstikerfa; Blikkrás ehf.
Málsnúmer 202607026
Fyrir fundinum liggja drög að þjónustusamningi við Blikkrás ehf., varðandi þjónustu við loftræstikerfi Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samning við Blikkrás ehf.
7.
Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits; lög um hollustuhætti og mengunarvarnir
Málsnúmer 202607143
Forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar hefur óskað eftir fundi með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra vegna fyrirhugaðra breytinga í tengslum við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra. Um er að ræða breytingar á reglugerðum til einföldunar eftirlits, málið er í samráðsgátt stjórnvalda til 17.ágúst nk.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi yfirlit yfir þau verkefni sveitarfélaga sem verða hjá sveitarfélögunum frá og með 1.janúar 2027.
Lagt fram til kynningar.
8.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202607162
Bókað í trúnaðarmálabók.
9.
Karlsrauðatorg 5
Málsnúmer 202607012
Á 1186.fundi byggðaráðs þann 9.júlí sl., var eftirfarandi bókað:Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram.Sveitarstjóri gerði grein fyrir samskiptum við fasteignasala varðandi verðmyndun á eignina.
Helgi Einarsson leggur fram þá tillögu að gert verði tilboð í eignina að fjárhæð kr. 3.000.000. Samþykkt með 2 atkvæðum Helga Einarssonar og Moniku Margrétar Stefánsdóttir.

Bessi Ragúels Víðisson greiðir atkvæði á móti og leggur fram eftirfarandi bókun: Mér finnst illa farið með almannafé að kaupa íbúð án þess að vera með áætlun, einkaframtakið getur hæglega gripið þennan bolta.
Börkur Þór Ottósson leggur fram eftirfarandi bókun: Ég legg til að Dalvíkurbyggð kaupi ekki þessa eign. Bæði er þessi eign ekki hluti af miðbæ og eins er þessi eign tvær fasteignir í dag.
10.
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, kynningarbréf
Málsnúmer 202607034
Með fundarboði fylgdi kynningarbréf frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem stjórn óskar eftir að það verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn.Þess er vinsamlegast óskað að meðfylgjandi skjöl verði send öllum sveitarstjórnarfulltrúum og jafnframt lögð fyrir þær nefndir eða ráð sveitarfélagsins sem fara með málaflokka er tengjast sjávarútvegi.Dalvíkurbyggð er aðili að Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga.
Sveitarstjóri mun senda kynningabréfið til allra sveitarstjórnarfulltrúa Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
11.
Samtök orkusveitarfélaga, kynning til sveitarfélaga
Málsnúmer 202607088
Með fundarboði fylgdu tvö skjöl frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga sem stjórn samtakanna óskar eftir að verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarfélaginu.Dalvíkurbyggð er ekki aðili að Samtökum orkusveitarfélaga.
Sveitarstjóri mun senda kynningabréfið til allra sveitarstjórnarfulltrúa Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með þrem atkvæðum að kanna kosti og galla þess að ganga í Samtök orkusveitarfélaga.
12.
Fundargerðir SSNE 2026
Málsnúmer 202601071
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar SSNE nr. 82 frá 24.mars sl., nr. 83 frá 7.maí sl. og 84. frá 30.júní sl.
Lagt fram til kynningar.
13.
Umsókn um leyfi fyrir fjallahjólaferðir innan marka Dalvíkurbyggðar.
Málsnúmer 202605031
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi umsókn um leyfi fyrir fjallahjólaferðir innan marka Dalvíkurbyggðar.