Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1186. fundur
9. júlí 2026
kl.
13:15
-
15:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Bessi Ragúels Víðisson
varamaður
Börkur Þór Ottósson
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Endurnýjun á gólfefni í sal Íþróttamiðstöðvar
Á 387. fundi sveitarstjórnar þann 17. febrúar sl. var samþykkt sú tillaga að bæta við fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun á árinu 2026 50 m.kr. vegna endurnýjunar á gólfefnum á sal Íþróttamiðstöðvar. Gert var ráð fyrir verkefninu á árinu 2027.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 7. júlí sl., þar sem fram kemur að lagt er til að skipta út núverandi dúk fyrir parketgólf sem stenst allar þær kröfur sem gerðar eru til íþróttagólfefnis. Núverandi dúkur er upphaflegt gólfefni sem lagt var á salinn árið 2010 með áætlaðan líftíma 15 ár.Það er jafnframt samdóma álit þeirra sem til þekkja að ekki sé æskilegt að nýta undirbyggingu núverandi dúks undir nýtt parket, heldur sé æskilegra að skipta öllu út fyrst verið er að þessu á annað borð. Eftir samtöl og öflun upplýsinga frá aðilum sem hafa veirð í svipuðum eða álíka verkefnum er niðurstaðan að leggja til að fengið verði fyrirtækið Horn í horn ehf. í verkefnið. Tilboð í allan pakkann, þ.e. kaup á gólfefni í allan salinn (sem er 1.100 fermetrar), lista og lok, undirgrind, lökkun á línum, flutning til Dalvíkur auk allrar vinnu við lagningu, hljóðar upp á kr. 65.472.000 með vsk. Miðað er við parket frá Aacerflooring sem Álfaborg flytur inn, fyrsta flokks hlynur. Inni í þessu er ekki upprif og förgun á núverandi gólfefni og er það óvissuþáttur. Deildarstjóri sér fyrir sér að óska sérstaklega eftir tilboði í þann verkþátt. Verktími yrði ágúst og september. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 16.000.000 vegna þessa verkefnis á lið 32200-11603 með flutningi af verkefni vegna saunaklefa á lóð Íþróttamiðstöðvar. Á áætlun vegna saunaklefa er gert ráð fyrir 26,3 m.kr. en áætlaður kostnaður við saunaklefa er kr. 9.700.000. Eftir standa þá kr. 10.300.000 vegna saunaklefa.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verð til samninga við Horn í horn ehf. á grundvelli ofangreinds tilboðs um kaup og lagningu á nýju gólfefni í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 29 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingaáætlun vegna endurnýjunar á gólfefni hækki um kr. 16.000.000 og á móti lækki fjárfestingaáætlun vegna saunaklefa um sömu upphæð, breytingin er innan 32200-11603.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 29 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingaáætlun vegna endurnýjunar á gólfefni hækki um kr. 16.000.000 og á móti lækki fjárfestingaáætlun vegna saunaklefa um sömu upphæð, breytingin er innan 32200-11603.
2.
Frá sveitarstjóra; Staðfesting frá Dalvíkurbyggð á stofnframlagi, Brák íbúðafélag hses.
Á 1185. fundi byggðaráðs þann 2. júlí sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), dagsett þann 26. júní sl., þar sem fram kemur að borist hefur umsókn frá Brák íbúðafélagi hses. í úthlutun 2026-2 um stofnframlag ríkisins á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016. Sótt er um vegna byggingar á 8 íbúðum á Dalvík fyrir tekju- og eignalága. Með erindiþessu er óskað eftir staðfestingu sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar á stofnframlagi sveitarfélags vegna kaupanna. Í því samhengi er bent á að það er forsenda fyrir veitingu stofnframlags ríkisins að sveitarfélag þar sem almenn íbúð verður staðsett veiti umsækjanda jafnframt stofnframlag sveitarfélags, sbr. 7. mgr. 11. gr. laga nr. 52/2016.Ef sveitarfélagið hyggst veita stofnframlag sitt til verkefnisins er jafnframt óskað eftir upplýsingum um form stofnframlags og sundurliðun á fjárhæð þess, sbr. viðhengt skjal,einnig er óskað eftir fundarbókun byggðaráðs. Umsókn verður ekki afgreidd fyrr en staðfesting sveitarfélags liggur fyrir og því er óskað eftir staðfestingu sem fyrst.Á 392. fundi sveitarstjórnar þann 23. júní sl. var samþykkt samhljóða að verða við umsókn frá Brák íbúðafélagi um stofnframlag að upphæð kr. 46.920.000 í ofangreint verkefni og sveitarstjóra falið að undirbúa viðaukabeiðni til byggðaráðs varðandi stofnframlagið.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að útfæra stofnframlag Dalvíkurbyggðar ogsundurliðun fjárhæðar þess í samræmi við meðfylgjandi skjal frá HMS sem og að leggja fyrir viðaukabeiðni til byggðaráðs sem endurspeglar útfærsluna á stofnframlaginu".Með fundarboði byggðaráðs fylgdi:Tillaga að sundurliðun stofnframlags Dalvíkurbyggðar til Brákar íbúðafélags um stofnframlag að upphæð kr. 46.920.000.Tilaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna stofnframlagsins.
a) Með vísan í reglur Dalvíkurbyggðar um stofnframlög samþykkir byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi útfærslu á stofnframlagi Dalvíkurbyggðar til Brákar íbúðafélags hses. Kr. 19.688.910 eru í formi gjalda til sveitarfélagsins vegna gatnagerðar, tengigjalda veitna og byggingaleyfisgjalda. Kr. 25.805.326 eru í formi beins framlags.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð áskilur sér þann rétt að krefjast endurgreiðslu stofnframlags í samræmi við 5. mgr. 14. gr. laga nr. 52/2016 og reglur Dalvíkurbyggðar.
c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 30 þannig að liður 29200-22122 hækki um kr. 45.494.237. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé að upphæð kr. 25.805.326 og áætlaðra tekna að upphæð kr. 19.688.910.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð áskilur sér þann rétt að krefjast endurgreiðslu stofnframlags í samræmi við 5. mgr. 14. gr. laga nr. 52/2016 og reglur Dalvíkurbyggðar.
c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 30 þannig að liður 29200-22122 hækki um kr. 45.494.237. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé að upphæð kr. 25.805.326 og áætlaðra tekna að upphæð kr. 19.688.910.
3.
Frá sveitarstjóra; Vatnstankur Upsa - tillaga að erindisbréfi vinnuhóps.
Á 392. fundi sveitarstjórnar þann 23. júní sl. var sveitarstjóra falið að gera erindisbréf fyrir vinnuhóp vegna nýs vatnstanks í Upsa.Með fundarboði fylgdi tillaga að erindisbréfi.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að erindisbréfi.
4.
Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum 2026-2029; samningsdrög
Á 1185. fundi byggðaráðs þann 2. júlí sl. var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl.13:15.Á 390. fundi sveitarstjórnar þann 12. maí sl. voru fyrirliggjandi útboðsgögn vegna útboðs á snjómokstri og hálkuvörnum 2026-2029 samþykkt samhljóða.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra, dagsett þann 30. júní sl., þar sem farið er yfir ferli útboðsins. Útboð á Vetrarþjónustu fyrir Dalvíkurbyggð var auglýst frá 19. maí með tilboðsfrest til 22. júní 2026.Útboðinu var skipt í tvo samningshluta, annars vegar þjónusta á Dalvík (samningshluti 1) og hins vegar þjónusta áHauganesi og Árskógssandi (samningshluti 2). Ráðgjafi hjá Consensa sá um vinnu við útboðsgögn og að auglýsa útboðið. Ráðgjafi Consensa tók einnig á móti og opnaði tilboð og sá um mat á tilboðum í samvinnu við deildarstjóraEigna- og framkvæmdadeildar. Tvö tilboð bárust í Samningshluta 1 frá EB ehf. og Steypustöðinni á Dalvík. Fjögur tilboð bárust í Samningshluta 2 frá EB ehf., G. Hjálmarssyni hf., Kötlu ehf., og Steypustöðinni á Dalvík.Eftir yfirferð og mat á tilboðum er lagt til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda sem er Steypustöðin á Dalvík um framkvæmd Vetrarþjónustu í Dalvíkurbyggð 2026 - 2029 á grundvelli tilboða, bæði í Samningshluta 1 og Samningshluta 2.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu og samþykkir að gengið verði til samninga við Steypustöðina á Dalvík á grundvelli tilboðs bæði um Samningshluta 1 og Samningshluta 2 vegna Vetrarþjónustu íDalvíkurbyggð 2026-2029."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að samningum á milli Dalvíkurbyggðar og Steypustöðvarinnar Dalvík ehf. um Vetrarþjónustu á Dalvík annars vegar og Vetrarþjónustu fyrir Hauganes og Árskógssand hins vegar í samræmi við ofangreint.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samningsdrög á milli Dalvíkurbyggðar og Steypustöðvarinnar Dalvík ehf. um Vetrarþjónustu á Dalvík.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samningsdrög á milli Dalvíkurbyggðar og Steypustöðvarinnar Dalvík ehf. um Vetrarþjónustu á Hauganesi og Árskógsssandi.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samningsdrög á milli Dalvíkurbyggðar og Steypustöðvarinnar Dalvík ehf. um Vetrarþjónustu á Hauganesi og Árskógsssandi.
5.
Ráðhús; endurbætur á skrifstofum - hönnun og útlit - Kollgáta
Á 1178. fundi byggðaráðs þannn 24. mars sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar um tilboð frá Kollgátu arkitektarstofu varðandi tíma- og verkáætlun vegna fyrirhugaðara endurbóta á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar, alls um 7,2 m.kr með vsk. Gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði tilbúin til auglýsingar 1. september.Einnig er gert ráð fyrir aðkomu verkfræði- og ráðgjafastofunnar Lotu sem eru sérfræðingar í innivist.Niðurstaða : Lagt fram til kynningar"Með fundarboði byggðaráðs fylgdu tillögur frá Kollgátu hvað varðar frumhönnun og hugmyndaþróun.
Lagt fram til kynningar.
6.
Tölvu- og netöryggisvarnir sveitarfélagsins - endurnýjun á samningi við SecureIT
a) Samningur vegna BlackPointSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti samningsdrög sem er framhald á þjónustu á milli Dalvíkurbyggðar og SecureIT um BlackPoint. Gert er grein fyrir innihaldi samningsins í minnisblaði. Samningstíminn eru 3 ár.b) Samningur vegna HeimdalSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti samningsdrög sem er framhald á þjónustu á milli Dalvíkurbyggðar og SecureIt um Heimdal. Gert er grein fyrir innihaldi samninggsins í minnisblaði. Samningstíminn eru 3 ár.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnis minnisblað sem gerir grein fyrir hver er munurinn á þessum tveimur lausnum.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samningsdrög á milli Dalvíkurbyggðar og SecureIt um BlackPoint.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samningsdrög á milli Dalvíkurbyggðar og SecureIt um Heimdal.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samningsdrög á milli Dalvíkurbyggðar og SecureIt um Heimdal.
7.
Frá Lagaskilum ehf.; Karlsrauðatorg 5 -tilboð um kaup
Tekið fyrir erindi frá Lagaskilum ehf., dagsett þann 3. júlí sl., þar sem Dalvíkurbyggð er boðið að kaupa fasteignina við Karlsrauðatorg 5 á Dalvík.Sveitarstjóri gerði grein fyrir samskiptum við skiptastjóra dánarbúsins.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram.
8.
Frá Akureyrarbæ; Þjónustusamningur, starf byggingafulltrúa -
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi svarbréf frá Akureyrarbæ við erindi sveitarstjóra, dagsett þann 2. júlí sl., þar sem eftirfarandi er bókað:"Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 27. janúar 2026 frá Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar, varðandi samstarf um embætti byggingarfulltrúa. Bæjarráð tók erindið fyrir 26. febrúar sl. og var bæjarlögmanni, sviðsstjóra skipulagssviðs og sviðsstjóra fjársýslusviðs falið að vinna málið áfram.Pétur Ingi Haraldsson sviðsstjóri skipulagssviðs, Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fund bæjarráðs undir þessumlið.Bæjarráð þakkar Dalvíkurbyggð fyrir erindið og þann áhuga sem þar kemur fram á samstarfi.Að teknu tilliti til núverandi verkefnastöðu og forgangsröðunar verkefna hjá Akureyrarbæ sér bæjarráð sér ekki fært að verða við erindinu."
Lagt fram til kynningar.
9.
Frá fræðslu- og menningarsviði; Málefni Safna og Menningarhúss.
Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Dominique Gyða Sigrúnardóttir, starfandi forstöðumaður safna og menningarhúss, kl. 13:15.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi starfandi forstöðumanns, dagsett þann 9. júní sl., er varðar greiningu á stöðu Menningarhússins Bergs og safna Dalvíkurbyggðar; mannauður, stöðugildi og leiga á sal. Í greinargerðinni er lagt til að fjölga stöðugildum um 2 við söfn og Menningarhús.Einnig þurfi að skýra verkferla og samvinnu innanhúss, umsjón með húsinu, skýra tilgang og stefnu Menningarhússins, þar með talið útleigu. Meðfylgjandi fundarboði er tillaga sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að uppfærðum reglum varðandi útleigu á sal í Menningarhúsinu Bergi sem og greinargerð starfandi verkefnastjóra Menningarhúss.Til umræðu ofangreint.Dominique vék af fundi kl. 13:41.Niðurstaða : Unnið verður að málinu áfram og aflað verður frekari gagna á milli funda."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu gögn sem aflað hefur verið frá 1183. fundi byggðaráðs og send einnig til byggðaráðs á milli funda.
a) Varðandi tillögu sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að uppfærðum reglum varðandi útleigu á sal í Menningarhúsinu Bergi þá felur byggðaráð sveitarstjóra að vinna málið áfram með sviðsstjóra og koma með tillögu sem tekur eins og hægt er til allra sjónarmiða.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að stöðugildi við söfn og Menningarhús verði aukið sem nemur 100% stöðugildi, án tímabundinna átaksverkefna, sem tilraun til og með 31.12.2027. Breytingin er þá nettó 50% stöðugildi miðað við stöðugildisheimild 2026. Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs og starfandi forstöðumanni er falið að koma með tillögu að útfærslu til byggðaráðs.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að stöðugildi við söfn og Menningarhús verði aukið sem nemur 100% stöðugildi, án tímabundinna átaksverkefna, sem tilraun til og með 31.12.2027. Breytingin er þá nettó 50% stöðugildi miðað við stöðugildisheimild 2026. Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs og starfandi forstöðumanni er falið að koma með tillögu að útfærslu til byggðaráðs.
10.
Frá Tónlistarskólanum á Akureyri; varðar umsókn utanbæjarnemanda.
Tekið fyrir erindi frá Tónlistarskólanum á Akureyri, dagsett þann 10. júní sl. vegna umsóknar í Tónlistarskólann á Akureyri frá nemanda með lögheimili í Dalvíkurbyggð. Erindið snýr að því að sveitarfélagið greiði kennslukostnað að fullu.Gildandi reglur Dalvíkurbyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum.https://www.dalvikurbyggd.is/cdn/documents/reglur-um-tonlistarnam-utan-logheimilissveitarfelags.pdf?v=1778514142Bókað að öðru leiti í trúnaðarmálabók.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi Tónlistarskólans á Akureyri.
11.
Frá skólastjóra grunnskóla; Viðaukabeiðni vegna fartölvukaupa
Tekið fyrir erindi frá skólastjóra Dalvíkurskóla, dagsett þann 22. júní sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til að kaupa 10 fartölvur í tölvukennslu í skólanu, heildarkostnaður er kr. 1.900.000. Fram kemur að undanfarin misseri hefur tölvukennsla breyst í skólanum og ekki er þörf fyrir borðtölvur og fasta kennslustofu undir tölvubúnað, áfram er þörf fyrir tölvur sem nota Microsoft stýrikerfi. Á sama tíma hefur þörf fyrir rými fyrir stoðþjónustu aukist og mikilvægt að finna rými til þess að þjónusta nemendur í námsveri. Með kaupum á fartölvuveri verður hægt að breyta tölvustofu í námsver og færa tölvubúnað og tölvukennslu í náttúrufræðistofu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi.
12.
Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Heildarviðauki I við fjárhagsáætlun 2026
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2026, br. meðfylgjandi gögn.Samkvæmt meðfylgjandi minnisblaði er gert grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á fjárhagsáætlunarlíkani frá upprunalegri fjárhagsáætlun 2026.a) Heildarviðaukinn felur í sér alla viðauka sem samþykktir hafa verið á árinu, nr. 1-28.b) Búið er að uppfæra vísitölu miðað við verðbólguspá skv. Þjóðhagsspá í vor.c) Áætlun um fjölda íbúa í árslok hefur verið uppfærð m.v. upplýsingar á vef Hagstofu.Helstu niðurstöður:Samantekið A- og B- hluti kr. 139.296.000 með jákvæðan afgang.A- hluti með kr. 131.413.000 jákvæðan afgang.Engin lántaka áætluð fyrir samstæðuna.Áætlaðar fjárfestingar fyrir Samantekið A- og B- hluta er kr. 844.176.000.Handbært fé frá rekstri er kr. 479.902.000 fyrir samstæðuna.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2026 eins og hann liggur fyrir með viðaukum nr. 1-28 og með afleiddum breytingum, s.s. á vöxtum, á afskriftum.
13.
Frá SSNE; Erindi vegna þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga
Tekið fyrir erindi frá SSNE, dagsett þann 3. júlí 2026, er varðar verkefnið "Rafrænt og sjálvirkt losunarbókhald fyrir rekstur sveitarfélaga innan SSNE" og er hluti af gildandi sóknaráætlun og loftlagsstefnu landshlutans.Markmið verkefnisins er að innleiða sjálfvirka lausn fyrir losunarbókhald frá rekstri allra sveitarfélaga innan SSNE. Lausnin nefnist KOLKA og er þróuð af Advania, sem hefur nú sameinað krafta sína með Laufinu og saman eru þessir aðilar með rafrænt kolefnismælaborð, sóunargreiningar og sjálfvirkar skýrslugerðir fyrir sveitarfélög.Uppsetning Kolku mun spara sveitarfélögunum umfangsmikla vinnu við flokkun og útreikninga á kolefnisspori frá rekstri. Verkefnið er fjármagnað af Sóknaráætlun Norðurlands eystra til eins árs og er því ekki gert ráð fyrir beinum kostnaði fyrir sveitarfélögin á því tímabili. Áður en tímabilinu lýkur er áætlað að meta árangurinn af verkefninu og í kjölfarið taka ákvörðun um framhaldið í samráði við sveitarfélögin.
Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að Dalvíkurbyggð taki þátt í þessu verkefni á reynslutímanum án kostnaðar fyrir sveitarfélagið, Bessi Ragúels Víðisson greiðir atkvæði á móti.
14.
Frá Félagi eldri borga Dalvíkurbyggðar; Skýrsla stjórnar og ársreikningur Félags eldri borgara 2025
Lögð fram til kynningar skýrsla stjórnar Félags eldri borgara og ársreikningur fyrir árið 2025, sbr. bréf dagsett þann 30.06.2026.Í ofangreindu bréfi kemur fram að Félag eldri borgara segir upp gildistíma styrktarsamningsins á milli Dalvíkurbyggðar og félagsins hvað varðar árin 2027 og 2028 og treystir því að samningurinn verði endurskoðaður við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Lagt fram til kynningar.
15.
Ársreikningur 2025; Samtök sjávarútvegssveitarfélaga
Tekið fyrir erindi frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga, dagsett þann 30. júní sl., þar sem ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga fyrir árið 2025 er kynntur.
Lagt fram til kynningar.
16.
Frá Innviðaráðuneytinu; Erindi til allra sveitarfélaga vegna stefnumótunar í málaflokknum
Tekið fyrir erindi frá Innviðaráðuneytinu, dagsett þann 6. júlí sl., þar sem fram kemur að Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið.Í grænbók birtist stöðumat á helstu lögbundnu verkefnum og öðrum viðfangsefnum sveitarfélaga og greining áskorana og tækifæra, sem lagt verður til grundvallar endurskoðun stefnu og aðgerðaáætlunar í málaflokknum.Óskað er eftir því að sveitarfélögin veiti upplýsingar inn í þessa vinnu og svari meðfylgjandi spurningum fyrir 21. september nk. Ekki verður vitnað í einstaka svör sveitarfélaga í grænbókinni heldur er hvert innlegg mikilvægur þáttur í því að draga fram heildarmynd um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins.Óskað er eftir að umfjöllunin sé greinargóð en hnitmiðuð og byggi á tiltækum upplýsingum, reynslu og framtíðarsýn sveitarfélagsins.Loks er vakin athygli á því að sveitarfélögum mun gefast fleiri tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótunina, m.a. með umsögnum um grænbók og síðar hvítbók/drög að stefnu í samráðsgátt stjórnvalda.
Lagt fram til kynningar.
17.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 158
Fundargerðin er í 9 liðum.Liður 17.6. er sér mál á dagskrá, mál 202601009.Liður 17.8. er sér mál á dagskrá; mál 202601074.Liður 17.9. er sér mál á dagskrá; mál 202605162.
Lagt fram til kynningar.