Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1175. fundur
19. febrúar 2026
kl.
13:15
-
15:19
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Freyr Antonsson
varaformaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Slökkvistöð, nýbygging
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:15 og frá Faglausn í gegnum TEAMS Almar Eggertsson, kl. 13:15.Á fundi sveitarstjórnar þann 17. febrúar sl. var samþykkt að leggja niður vinnuhóp í tengslum við húsnæðismál Slökkviliðs Dalvíkur og málið unnið áfram í gegnum byggðaráð.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillöguteikning; grunnmynd af Slökkvistöð, dagsett þann 17.02.2026.Almar vék af fundi kl. 13:51.Helga Íris vék af fundi kl. 14:08.
Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.
2.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur; niðurstaða útboðs
Þann 8. janúar sl. voru útboðsgögn vegna útboðs á nýjum Vatnstanki í Upsa tekin til umfjöllunar og afgreiðslu. Útboðsgögnin voru samþykkt og samþykkt að auglýsa útboðið.Með fundarboði byggðaráðs var meðfylgjandi opnunarskýrsla vegna ofangreinds útboðs, dagsett þann 13. febrúar sl., þar sem fram kemur að 3 tilboð bárust í verkið. Eftir er að fara yfir útboðin.
Lagt fram til kynningar.
3.
Frá 313. fundi fræðsluráðs þann 11.02.2026; Ísat kennsla í Krílakoti - nýtt stöðugildi og viðauki.
Á 313. fundi fræðsluráðs þann 11. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:"Á leikskólanum Krílakoti eru það 44,7% nemenda sem þörf er á að veita einhverskonar stuðning í námi. Til þess að skólinn geti komið til móts við þarfir nemenda óskar leikskólastjóri eftir heimild til þess að ráða sérkennara í 75% starfshlutfall, svo hægt sé að þjónusta betur þennan hóp nemenda, upp á framhaldið þegar þau fara í grunnskólann.Niðurstaða : Valgerður Inga Júlíusdóttir fór yfir skipulag og aukna þörf fyrir sérkennslu á Krílakoti. Fræðsluráð samþykkir samhljóða 5 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að samþykkja 75% stöðugildi sérkennara með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti. Valgerður fór af fundi kl. 8:30Una kom til fundar kl. 8:39"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá leikskólastjóra Krílakots, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 6.583.199 vegna ráðningu í ofangreint starf miðað við frá 16. mars nk.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu.
4.
Mánaðarlegar skýrslur 2026; janúar
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti eftirfarandi skýrslur:Staða bókhalds í janúar 2026 í samanburði við fjárhagsáætlun fyrir sama tímabil.Staða launakostnaðar í janúar 2026 í samanburði við launaáætlun fyrir sama tímabil.Staða stöðugilda í janúar 2026 í samanburði við heimildir fyrir sama tímabil.
Lagt fram til kynningar.
5.
Frá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu; Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum
Til umfjöllunar tillögur að breytingum á eftirliti með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum, sbr. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga með framkvæmdastjórum sveitarfélaga og landshlutasamtaka þann 13. febrúar sl.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi jafnframt umsögn SSNE, dagsett þann 17. febrúar sl., um drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (S-3/2026).Á fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 17. febrúar sl. var eftirfarandi bókað um sama mál:"Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar ítrekar mikilvægi þess að áframhaldandi vinna við málið fari fram í nánu samráði við sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra viðeigandi hagaðila, og að tryggt verði að breytingarnar leiði hvorki til kostnaðarauka né þjónustuskerðingar fyrir sveitarfélögin."
Lagt fram til kynningar.
6.
Frá Atvinnuvegaráðuneytinu; Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.
Tekinn fyrir rafpóstur frá SSNE, dagsettur þann 13. febrúar sl., þar sem vakin er athygli á meðfylgjandi umsögn SSNE varðandi ofangreint frumvarp er snýr sérstaklega að Fiskistofu.
Lagt fram til kynningar.
7.
Frá SSNE; fundargerð stjórnar nr. 80 frá 5. febrúar 2026.
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar SSNE nr. 80 frá 5. febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.