Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1163. fundur
21. október 2025 kl. 10:00 - 16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Freyr Antonsson varaformaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varamaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 202505063
Framhald umfjöllunar um tillögur stjórnenda og fagráða vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029:1) Minnisblöð.Farið yfir minnisblöð stjórnenda með tillögum að starfs- og fjárhagsáætlun þar sem fram kemur rökstuðningur stjórnenda vegna hækkana á fjárhagsrömmum, lýsing á nýjum og/eða veigamiklum verkefnum, beiðnir um breytingar á fjárhagsrömmum vinnubóka sem færðar eru í vinnuskjal.2) Beiðnir um búnaðarkaup.Farið yfir beiðnir og heildarlista sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslusviðs yfir búnaðarkaup og gerðar breytingar sem færðar eru í vinnuskjal.3) Viðhaldsáætlun.Farið yfir tillögur að viðhaldsáætlun Eignasjóðs, málaflokkur 32 og gerðar breytingar sem færðar eru í vinnuskjal.4) Framkvæmdir og fjárfestingaáætlun.Farið yfir tillögur stjórnenda og fagráða í heildarskjali sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og gerðar breytingar sem færðar eru í vinnuskjal.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa tillögum að starfs- og fjárhagsáætlun 2026 - 2029 til áframhaldandi vinnslu í fjárhagsáætlunarlíkani, með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á fundum byggðaráðs.
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202505046
Frestað