Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1075. fundur
27. júlí 2023 kl. 13:15 - 16:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir varamaður
Freyr Antonsson varaformaður
Felix Rafn Felixson aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
100 ára afmæli Tunguréttar
Málsnúmer 202307070
Á fundinn komu Jón Þórarinsson og Atli Þór Friðriksson og kynntu hátíðardagskrá á 100 ára afmæli Tunguréttar, sem haldið verður upp á þann 26.ágúst nk. kl. 14.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita kr. 275.000.- til veitinga í afmælisveisluna, sem færist á deild 21500 - 4960.
2.
Erindi vegna fjárhagsáætlunar 2024 og þriggja ára áætlunar 2025-2027; Golfklúbburinn Hamar
Málsnúmer 202307049
Tekið fyrir erindi frá Golfklúbbnum Hamri með óskum um styrk til framkvæmda á Arnarholtsvelli á árunum 2024 - 2027.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs til skoðunar vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2024.
3.
Selárlandið til uppbyggingar
Málsnúmer 202306065
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að auglýsa hluta úr Selárlandinu sem þróunarsvæði og felur sveitarstjóra að vinna að minnisblaði fyrir byggðaráð.
4.
Ársreikningur Dalbæjar 2022
Málsnúmer 202307059
Lagður fram til kynningar ársreikningur Dalbæjar fyrir árið 2022.
Lagt fram til kynningar.
5.
Tímabundið bann við lagningu ökutækja; Fiskidagurinn mikli 2023
Málsnúmer 202307063
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum eftirfarandi auglýsingu um tímabundið bann við lagningu ökutækja, laugardaginn 12.ágúst nk. á Fiskidaginn mikla.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur, í samræmi við heimild í 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/20019 og að fengnu samþykki lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, ákveðið eftirfarandi:

Á tímabilinu frá kl. 08:00 laugardaginn 12. ágúst 2023 og til kl. 08:00 sunnudaginn 13. ágúst 2023 verður bannað að leggja ökutækjum við Skíðabraut, Mímisveg, Böggvisbraut, Karlsrauðatorg og Gunnarsbraut á Dalvík.
6.
Framkvæmdasvið, ráðningarmál
Málsnúmer 202307069
Sveitarstjóri óskar eftir heimild byggðaráðs til þess að auglýsa eftir skipulagsfulltrúa og veitustjóra, þessar tvær stöður ásamt deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar munu mynda stjórnendateymi framkvæmdasviðs með sveitarstjóra sem yfirmann.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu sveitarstjóra að breytingum á stjórnun framkvæmdasviðs og heimilar að auglýst verði eftir skipulagsfulltrúa og veitustjóra.
7.
Kvörtun vegna starfsemi hausaþurrkunar Samherja frá Kristjáni Vigfússyni.
Málsnúmer 202208083
Byggðaráð áréttar að kvartanir vegna lyktar skal komið á framfæri við útgefanda starfsleyfis sem er Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
8.
Löggæslumyndavélar, bæjarhlið
Málsnúmer 202307071
Sveitarstjóri kynnir innihald meðfylgjandi minnisblaðs um fyrirhugaða uppsetningu löggæslumyndavéla á Dalvík.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna að viljayfirlýsingu með lögreglunni og útbúa viðauka við fjárhagsáætlun 2023. Jafnframt er sveitarstjóra falið að kanna hvort möguleiki er á að settar verði upp hraðamyndavélar samhliða uppsetningu. Þegar þessi gögn liggja fyrir verður málið tekið aftur fyrir í byggðaráði til afgreiðslu.