Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1043. fundur
19. október 2022 kl. 14:15 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Freyr Antonsson varaformaður
Felix Rafn Felixson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026
Málsnúmer 202204134
a) Fjármála- og stjórnsýslusviðSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir tillögum að starfs- og fjárhagsáætlun .Á fundinum var farið yfir eftirfarandi gögn:Tillaga að starfsáætlun fjármála- og stjórnsýslusviðs.Minnisblað um leigufjárhæðir vegna málaflokks 57;Félagslegar íbúðir.Minnisblað um gæðastjórnunarkerfi.Minnisblað um heimasíðu.Minnisblað um innri vef/ mælaborð stjórnenda.Beiðni um búnaðarkaup.Fjárhagsramma fjármála- og stjórnsýslusviðs - drög.b) AnnaðSveitarstjóri vék af fundi kl. 16:45 til annarra starfa.
Lagt fram til kynningar.
2.
Fjárhagsáætlun 2023; tillaga um eyrnamerkta fjármuni - starfsfólk- starfsánægja
Málsnúmer 202206075
Á 1030. fundi byggðaráðs þann 23. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Valdísi Guðbrandsdóttur, starfsmanni við Dalvíkurskóla, móttekið 19. júní sl., þar sem Valdís óskar eftir að tekið verði til umræðu að setja inn í fjárhagsáætlun 2023 lið fyrir hverja deild/stofnun sveitarfélagsins sem hljóðar upp á kr. 10.000 á hvern starfsmann, sama í hvaða starfshlutfalli hann er, til þess stjórnendur geti gert eitthvað fyrir starfsfólkið sitt til að auka starfsánægju og starfsanda.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að hafa erindið til hliðsjónar vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026."
Byggðaráð þakkar Valdísi fyrir erindið.
Byggðaráð sér sér ekki fært að fara þá leið sem bréfritari leggur til. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir um 6,0 m.kr. vegna miðlægra mannauðstengdra verkefna.