Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1042. fundur
17. október 2022
kl.
16:15
-
20:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Freyr Antonsson
varaformaður
Felix Rafn Felixson
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026
a) Tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun vegna Eignasjóðs og Eigna- og framkvæmdadeildar.Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Bjarni Daníel Daníelsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs, og Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdardeildar, kl. 16:15.Helga Íris og Bjarni Daníel kynntu tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir deildir er heyra undir Eigna- og framkvæmdadeild og Eignasjóð, málaflokk 31.Farið var yfir eftirfarandi gögn;Tillögu að starfsáætlun.Beiðnir um búnaðarkaup.Fjárhagsramma fyrir deildir undir Eigna- og framkvæmdadeild og Eignasjóð.Áætlun launakostnaðar og stöðugilda 2023 í samanburði við 2022.Fundargerðir umhverfisráðs (1) og umhverfis- og dreifbýlisráðs með umfjöllun um fjárhagsáætlun 2023 (2).Tillögu að viðhaldi Eignasjóðs 2023 með forgangsröðun.Tillögu að framkvæmdum og fjárfestingum Eignasjóðs 2023.Helga Íris vék af fundi kl. 19:00.Felix Rafn vék af fundi kl. 19:04 til annarra starfa og kom aftur inn á fundinn kl. 19:12.b) Tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun framkvæmdasviðs, annað en a) liður hér að ofan.Tillögu að starfsáætlun.Beiðnir um búnaðarkaup.Fjárhagsramma fyrir deildir undir framkvæmdasviði - annað en liður a) hér að ofan.Áætlun launakostnaðar og stöðugilda 2023 í samanburði við 2022.Fundargerðir skipulagsráðs (2) og veitu- og hafnaráðs (4) með umfjöllun um fjárhagsáætlun 2023 Tillögu að viðhaldi Hafnasjóðs, Hitaveitu, Vatnsveitu og Fráveitu með forgangsröðun.Bjarni Daníel vék af fundi kl. 20:01c) Fleira ?
a) Lagt fram til kynningar.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Ákvörðun um næstu fundi.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Ákvörðun um næstu fundi.