Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1013. fundur
20. janúar 2022
kl.
13:00
-
15:29
í fjarfundi
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
varaformaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
formaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Vinnuhópur um brunamál - Slökkviliðsbíll - sameiginlegt útboð
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Vilhelm Anton Hallgrímsson, slökkviliðsstjóri og Bjarni Daníel Daníelsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs, kl. 13 í gegnum TEAMS fund.Á 1011. fundi byggðaráðs þann 6. janúar sl. var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Bjarni Daníel Daníelsson, sviðsstjóri Framkvæmdasviðs og Vilhelm Anton Hallgrímsson, slökkviliðsstjóri, kl. 8:15 í gegnum TEAMS fjarfund.Ofangreindir skipa ásamt sveitarstjóra vinnuhóp um brunamál sveitarfélagsins.Vinnuhópurinn hefur fundað í fjögur skipti. Vinnuhópurinn gerði grein fyrir starfi hópsins og stöðu mála. Kynnt var gróf kostnaðaráætlun fyrir fjóra kosti í húsnæðismálum Slökkviliðsins til framtíðar sem unnið er af Slökkviliðsstjóra.Bjarni Daníel og Villi viku af fundi kl. 08:57.Byggðaráð þakkar vinnuhópnum góða kynningu.Byggðaráð felur vinnuhópnum að fækka kostum í húsnæðismálum úr fjóra í tvo. Slökkviliðsstjóri mun áfram bera undir slökkviliðsmenn í Slökkviliði Dalvíkur hvaða tvo kosti ætti helst að halda áfram að vinna með. Í framhaldinu yrðu áætlanir og kostnaður útfærður nánar."Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar vinnuhópsins um brunamál frá 19. janúar 2022.Slökkviliðsstjóri gerir grein fyrir fyrirhuguðu útboði vegna slökkviliðsbíla og útboðslýsingu. Einnig gerði slökkviliðsstjóri grein fyrir samráði við slökkviliðið um að fækka valkostum í húsnæðismálum úr fjóra í tvo.Villi og Bjarni viku af fundi kl. 13:34.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við þátttöku sveitarfélagsins í ofangreindu útboði vegna kaupa sveitarfélagsins á slökkviliðsbíl, samanber starfs- og fjárhagsáætlun 2022 og samanber 340. fundur sveitarstjórnar frá 23.11.2021.
2.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
3.
Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Á 342. fundi sveitarstjórnar þann 18. janúar sl. var eftirfarandi bókað:"Á 111. fundi veitu- og hafnaráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað: "Á fundi starfsmanna 10. janúar 2022 með forsvarsmönnum Laxós verkefnisins voru kynnt áform um áframhald á verkefninu. Fyrir veitu- og hafnaráði liggur fyrir að taka afstöðu til veitingu á heitu og köldu vatni til verkefnisins og einnig deiliskipulags vegna verkefnisins við hafnasvæðið á Árskógssandi. Fyrirhugað er að halda íbúafund til kynningar á drögum að breytingum á aðalskipulagi og deiliskipulag vegna verkefnisins þann 19. janúar nk. Veitu- og hafnaráð leggur til við sviðsstjóra að leitað verði til verkfræðistofu og fengið álit á möguleikum veitna til afhendingar orku fyrir verkefnið, bæði á heitu og köldu vatni."Til máls tóku: Katrín Sigurjónsdóttir. Þórhalla Karlsdóttir. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu forseta sveitarstjórnar að vísa þessum lið til frekari umfjöllunar í byggðaráði."Íbúafundur (fjarfundur) var haldinn í gær 19. janúar sl. um fyrirhugað seiðaeldi þar sem forsvarsmenn Laxóss ehf. og Dalvíkurbyggð kynntu hugmyndir að breytingum á aðal- og deiliskipulagi og áformaða starfsemi. Einnig voru kynntar módelmyndir/þrívíddarteikningar af svæðinu sem um ræðir sem er lóð sunnan Öldugötu og uppfylling austan ferjubryggju Árskógssandshafnar. Fundurinn var tekinn upp og verður upptakan og gögn aðgengilegt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.Fram kom í máli sveitarstjóra að búið er að lengja frest til að koma með athugasemdir til 6. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.
4.
Öflun heildstæðra upplýsinga um samstarfssamninga - fundur með bæjarráði Fjallabyggðar - umræðuefni
Á 1010. fundi byggðaráðs þann 16. desember sl. var m.a. eftifarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað bæjarlögmanns, dagsett þann 26.11.2021, til Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um ofangreint. Fram kemur m.a. að það liggi beinast við að stofnað verði byggðasamlag um verkefni sem lúta að þjónustu við fatlað fólk sem þá um leið tryggir að búið sé að formfesta samstarf DB og FB hvað varðar þennan málaflokk. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir samráðsfundi með Fjallabyggð um ofangreint málefni ásamt fleiri málefnum sem sveitarfélögin vinna að í sameiningu. Fundurinn verði haldinn sem fyrst á nýju ári."Ofangreindur samráðsfundur er áformaður fimmtudaginn 27. janúar nk. kl. 15:00 á Dalvík. Til umræðu dagská og fyrirkomulag fundarins.
Lagt fram til kynningar.
5.
Frá Landsneti ehf.; Dalvíkurlína 2 - lega jarðstrengs - skipun í samráðshóp.
Á 338. fundi sveitarstjórnar þann 21. september sl. var eftirfarandi bókað:"Á 361. fundi umhverfisráðs þann 3. september sl. var eftirfarandi bókað: "Með tölvupósti, dagsettum 23. ágúst 2021, óskar Kristinn Magnússon hjá Mannvit eftir umsögn um fyrstu hugmyndir um legu Dalvíkurlínu 2 (DA2) frá Hámundarstaðahálsi að tengivirki í Höfðanum. Mannvit vinnur að hönnun á DA2 fyrir Landsnet, sem er 66kV jarðstrengur milli Rangarvalla á Akureyri og tengivirkisins við Dalvík. Meðfylgjandi er loftmynd með hugmynd að legu strengsins. Umhverfisráð fagnar lagningu jarðstrengs og gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða lagnaleið. Umhverfisráð leggur til að hugað verði að því að nýta tækifærið og leggja göngu- og hjólastíg samhliða framkvæmdinni. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Til máls tóku: Jón Ingi Sveinsson. Guðmundur St. Jónsson. Þórhalla Karlsdóttir. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs og gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða lagnaleið."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá Landsneti, dagsettur þann 10. janúar 2022 þar sem óskað er eftir tilnefningu á fulltrúa frá Dalvíkurbyggð í samráðshóp varðandi Dalvíkurlínu og stígagerð.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela skipulags- og tæknifulltrúa (verðandi deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar) að vera fulltrúi Dalvíkurbyggðar í samráðshópnum og að sviðsstjóri framkvæmdasviðs verði til vara.
6.
Gangur á 2. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur; fyrirhuguð sala
Í starfsáætlun Dalvíkurbyggðar með fjárhagsáætlun 2022 þá er gert ráð fyrir að eignarhluti Dalvíkurbyggðar á 2. hæð verði settur á sölu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ofangreindur eignarhluti verði settur á söluskrá sem fyrst og að Hvammur fasteignasala verði fengin til að sjá um ferlið. Leigjendur verði upplýstir um fyrirhugaða sölu.
8.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fundargerðir 2022
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 905 frá 14.01.2022.
Lagt fram til kynningar.