Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

657. fundur
22. febrúar 2013 kl. 11:30 - 12:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
1.
Ráðning í starf sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs; tillaga.
Málsnúmer 201212009
Umsóknarfrestur um starf sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs var til og með 20. janúar 2013.Alls bárust 26 umsóknir um starfið.Hagvangur, ráðningarstofa, var fengin til þess að vera Dalvíkurbyggð innan handar í ráðningarferlinu.Formaður bæjarráðs og bæjarstjóri gerðu grein fyrir úrvinnslu umsókna.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við bæjarstjórn að Börkur Þór Ottósson, byggingafræðingur,  verði ráðinn í starf sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs.
2.
Umsögn bæjarráðs Dalvíkurbyggðar um frumvarp til breytingar á stjórn fiskveiða, mál nr. 570.
Málsnúmer 201204009
Tekið fyrir frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, 570.mál. Óskað er umsagnar í síðasta lagi 24. febrúar n.k.Kristján E. Hjartarson, formaður, vék af fundi undir þessum lið til annarra starfa og Valdís Guðbrandsdóttir, varaformaður, tók við fundarstjórn.Með fundarboði fylgdi tillaga að umsögn frá bæjarstjóra, dagsett þann 22. febrúar 2013, þar sem fram kemur m.a. að ítrekaðar eru fyrri umsagnir hvað varðar mál nr. 657, frumvarp til breytingar á stjórn fiskveiða, og nr. 658, frumvarp til laga um veiðigjöld, sbr. bréf dagsett þann 20. apríl 2012.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda tillögu bæjarstjóra að umsögn um 570. mál.