Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

656. fundur
21. febrúar 2013 kl. 08:15 - 12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
1.
Upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar; drög að tillögu.
Málsnúmer 201302067
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi.Með fundarboði fylgdi drög að skilgreiningu fyrir starfsemi upplýsingamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar unnin af upplýsingafulltrúa í samráði við sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóra, sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og forstöðumann bóka- og héraðsskjalasafns.Tilgangurinn er að ramma inn hlutverk upplýsingamiðstöðvarinnar og fyrirkomulag á starfseminni.Einnig fylgdu með drög að kostnaðaráætlun þar sem m.a. er gert ráð fyrir að ráða starfsmann í bókasafnið yfir sumarið til þess að starfa í upplýsingamiðstöðinni þar.Upplýsingafulltrúi kynnti ofangreint.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að heimila upplýsingafulltrúa að vinna áfram að málinu í samræmi við ofangreint.
2.
Frá Markaðsstofu Norðurlands; Endurnýjun á samstarfssamningi við Markaðsstofu Norðurlands.
Málsnúmer 201211003
Á 644. fundi bæjarráðs þann 8. nóvember 2012 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, bréf dagsett þann 30. október 2012, þar sem óskað er eftir endurnýjun á samstarfssamningi Dalvíkurbyggðar við Markaðsstofuna til ársloka 2015. Bæjarráð tekur jákvætt í endurnýjun á samstarfssamningi og óskar eftir að fá ný samningsdrög til skoðunar. Með fundarboði fylgdu samningsdrög. Gildistíminn er frá 1. janúar 2013 og rennur út 31. desember 2015.Samkvæmt 4. gr. samningsins vinnur MN að samræmingu á starfsemi upplýsingamiðstöðva ferðamanna í sveitarfélaginu við starfsemi annarra upplýsingamiðstöðva á Norðurlandi. Félagið verður einnig í samstarfi við upplýsingamiðstöðina í Dalvíkurbyggð um miðlun upplýsinga um bæjarfélagið.Gjald fyrir þjónustu MN miðast við íbúafjölda og er kr. 500,- á hvern íbúa á ári og miðast greiðsla við íbúagjölda 1. desember árið á undan.






Bæjarráð samþykkir samninginn  samhljóða með 3 atkvæðum eins og hann liggur fyrir.
3.
Styrkur til Fiskidagsins mikla 2013.
Málsnúmer 201302060
Árið 2012 var veittur beinn styrkur til Fiskidagsins mikla að upphæð kr. 3.500.000 samkvæmt fjárhagsáætlun.Styrkurinn var hækkaður um kr. 1.500.000 en erindi kom frá framkvæmdastjórn Fiskidagsins mikla við gerð fjárhagsáætlunar 2012 þar sem óskað var eftir hækkun á styrknum.Vegna styrks fyrir árið 2011 var gert sérstakt samkomulag við Fiskidaginn mikla um samstarf um kynningu á Dalvíkurbyggð en þá var styrkurinn hækkaður úr kr. 2.000.000 í kr. 3.800.000.Samkvæmt fjárhagsáætlun 2013 er gert ráð fyrir kr. 3.500.000 í beinan styrk vegna Fiskidagins mikla.Margrét vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að styrkveiting til Fiskidagsins mikla verði framvegis formgerður samningur.
4.
Starfslýsing upplýsingafulltrúa; endurskoðun vegna atvinnumála.
Málsnúmer 201209063
Á 32. fundi atvinnumálanefndar þann 13. febrúar 2013 var tekin fyrir starfslýsing upplýsingafulltrúa með tillögum að breytingum með hliðsjón af ábendingum atvinnumálanefnar.Atvinnumálanefnd samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum starfslýsingu upplýsingafulltrúa fyrir sitt leiti.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi tillaga að starfslýsingu upplýsingafulltrúa en á 637. fundi bæjarráðs þann 4. október 2012 samþykkti bæjarráð að fela sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóra að yfirfara starfslýsingu upplýsingafulltrúa með bókun atvinnumálanefndar til hliðsjónar. Atvinnumálanefnd hafði fjallað um hugmyndir hvað varðar nýtt starf atvinnufulltrúa og fór nefndin þess á leit að ef starf upplýsingafulltrúa yrði hækkað úr 50% í 100% þá myndi starfslýsing upplýsingafulltrúa einnig taka mið af þörfum atvinnumálanefndar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum starfslýsinguna eins og hún liggur fyrir.
5.
Frá stjórn Náttúruseturs á Húsabakka; Þjónustusamningur við Náttúrusetrið um Friðland Svarfdæla.
Málsnúmer 201302033
Tekið fyrir erindi frá stjórn Náttúruseturs á Húsabakka, dagsett þann 21. desember 2012, þar sem Hjörleifur Hjartarson, verkefnastjóri, óskar eftir að gerður verði þjónstusamningur á milli Dalvíkurbyggðar og Náttúrsetursins sem feli m.a. í sér að Náttúrusetrið verði formlegur umsjónaraðili með Friðlandi Svarfdæla og haldi úti fræðslustarfi. Dalvíkurbyggð greiði á móti Náttúrusetrinu árlega kr. 3.000.000 auk tilfallandi efniskostnaðar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela bæjarstjóra að eiga fund með stjórn Náttúruseturins á Húsabakka og í framhaldi að því að hafa samband við Umhverfisstofnun, með vísan í samning á milli  Umhverfisstofnunar og Dalvíkurbyggðar um umsjón og rekstur Friðlands Svarfdæla í Svarfaðardal.
6.
Frá Lánasjóði sveitarfélaga; Aðalfundur 2013.
Málsnúmer 201302063
Tekið fyrir bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dagsett þann 18. febrúar 2013, þar sem boðað er til aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. föstudaginn 15. mars 2013 kl. 16:00.Einnig tekið fyrir bréf dagsett þann 18. febrúar 2013 þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðsins.
<P>Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela bæjarstjóra að fara með umboð Dalvíkurbyggðar á aðalfundinum.</P>
7.
Ávöxtun og innistæður Dalvíkurbyggðar; kynning frá Íslenskum verðbréfum kl. 9:30.
Málsnúmer 201301087
Á 654. fundi bæjarráðs þann 31. janúar 2013 samþykkti bæjarráð að fá kynningu á ávöxtum með kaupum á ríkisskuldabréfum.Í framhaldinu var ákveðið að óska eftir kynningu frá Íslenskum verðbréfum.Undir þessum lið komu á fund bæjarráðs Björn Snær Guðbrandsson, forstöðumaður eignastýringar, og Jón Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri Rekstrarfélags verðbréfasjóða ÍV hf. Björn Snær og Jón Helgi kynntu starfsemi Íslenskra verðbréfa hf. sem og möguleika sveitarfélagsins hvað varðar ávöxtun.Björn Snær og Jón Helgi viku af fundi.
8.
Sala íbúða í eigu sveitarfélagsins; umboð bæjarráðs
Málsnúmer 201302068
Til umræðu umboð bæjarráðs hvað varðar sölu á íbúðum í eigu Dalvíkurbyggðar. Með fundaboði bæjarráðs fylgdu reglur um sölu íbúða í eigu Dalvíkurbyggðar sem endurskoðaðar voru í janúar 2012 og staðfestar á fundi bæjarstjórnar þann 24.janúar 2012.Samkvæmt Samþykktum um stjórn Dalvíkurbyggðar,56. gr. tekur sveitarstjórn ákvörðun um sölu eigna sveitarfélagsins, enda hefur sá háttur verið hafður á að bæjarstjórn hefur staðfest kauptilboð og sölu á íbúðum í eigu Dalvíkurbyggðar.Á fundinum var rætt um hvort mögulegt sé að bæjarstjórn veiti bæjarráði tímabundna fullnaðarheimild til að selja íbúðir í eigu Dalvíkurbyggðar.
9.
Skógarhólar 29 B; kauptilboð.
Málsnúmer 201203075
Á fundinum var kynnt kauptilboð frá Þórdís Hjálmarsdóttur, dagsett þann 11.febrúar 2013, í fasteignina við Skógarhóla 29 B að upphæð kr. 11.300.000.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum kauptilboðið og söluna á eigninni.
10.
Frá innanríkisráðuneytinu; Samþykkt um stjórn bæjarstjórnar.
Málsnúmer 201210075
Tekið fyrir bréf frá innanríkisráðuneytinu, dagsett þann 15. febrúar 2013, þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur staðfest meðfylgjandi samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar. Samþykktin hefur verið send til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Lagt fram.