Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
655. fundur
7. febrúar 2013
kl.
08:15
-
12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá nefndasviði Alþingis; Frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 449. mál um heimild til rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár.
Tekið fyrir erindi frá nefndasviði Alþingis, rafpóstur dagsettur þann 4. febrúar 2013, þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn um frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 449. mál. Um er að ræða mál um heimild til rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár.Óskað er umsagnar fyrir 18. febrúar n.k.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela bæjarstjóra að senda umsögn.
2.
Frá Eyþingi; Aukafundur Eyþings 12. febrúar n.k.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Eyþingi, dagettur þann 1. febrúar 2013, þar sem fram kemur að aukafundur Eyþings verður haldinn í Hofi Akureyri þriðjudaginn 12. febrúar n.k. kl. 13:00. Um er að ræða framhald af fundi um sóknaráætlun frá 4. febrúar s.l.
Lagt fram.
3.
Frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu; Styrkveiting vegna verkefnisins "Umhverfis- og útivist í Dalvíkurbyggð".
Tekið fyrir bréf frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett þann 25. janúar 2013, þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur staðfest tillögur stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um fyrri úthlutun sjóðsins á árinu 2013. Samþykkt var að veita Dalvíkurbyggð styrk að upphæð kr. 500.000,- vegna verkefnsins "Umhverfis- og útivist í Dalvíkurbyggð".
Lagt fram.
4.
Frá UT-teymi Dalvíkurbyggðar; Kaup á tölvubúnaði skv. fjárhagsáætlun 2013; verðfyrirspurn.
Tekin fyrir niðurstöður úr verðfyrirspurn vegna innkaupa á tölvubúnaði fyrir stofnanir og starfsmenn Dalvíkurbyggðar skv. heimild í fjárhagsáætlun 2013.Lagt er til að tölvubúnaður fyrir árið 2013 verði keyptur af Netkerfi og tölvur.Einnig tekið fyrir samanburður á tillögu í samanburði við heimildir stofnana í fjárhagsáætlun 2013.
a) Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum þá tillögu að gengið verði til samninga við Netkerfi og tölvur, söluaðila Opinna kerfa.b) Bæjarráð samþykkir þá tillögu sem kynnt var á fundinum um kaup á tölvubúnaði skv. fjárhagsáætlun 2013. Kaup á tölvum fyrir kjörna fulltrúa til notkunar á fundum verði 3 fartölvur og 4 spjaldtölvur og samtals verði upphæðin kr. 800.000 með þráðlausum punkti sbr. fjárhagsáætlun 2013.
5.
Frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Samningur við Inexchange vegna RSM.
Á fundinum voru kynnt samningsdrög við Inexchange vegna móttöku og sendinga á rafrænum reikningum.
Bæjarráð samþykkir samninginn eins og hann liggur fyrir.
 
6.
Frá Varasjóði húsnæðislána; Úthlutun viðbótarframlags vegna sölu félagslegra íbúða-viðbót.
Tekið fyrir bréf frá Varasjóði húsnæðismála, ódagsett, þar sem fram kemur að Dalvíkurbyggð fær viðbótarframlag vegna sölu á eignum árið 2012, kr. 1.181.877. Heildarframlag Varasjóðs árið 2012 er því kr. 4.761.278.
Lagt fram.
7.
Kauptilboð í Öldugötu 23.
Tekið fyrir kauptilboð dagsett þann 31. janúar 2013, (gagntilboð Dalvíkurbyggðar), vegna Öldugötu 23, fastanúmer 215-6663, frá Sævari Pálssyni að upphæð kr. 8.400.000.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint kauptilboð og söluna á eigninni.
8.
Samstarf við Fjallabyggð vegna málefna aldraðra og fleira.
Á 654. fundi bæjarráðs þann 31. janúar 2012 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir drög að bréfi bæjarstjóra Dalvíkurbyggðar og bæjarstjóra Fjallabyggðar til velferðarráðherra hvað varðar almenna heilbrigðisþjónustu við utanverðan Eyjafjörð.Bæjarstjóri gerði grein fyrir innihaldi bréfsins. Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela bæjarstjóra að gera tillögu að breytingum á bréfinu í samræmi við umræður á fundinum, í samráði við bæjarstjóra Fjallabyggðar, þannig að málefni aldraðra fái sinn sess í erindinu eins og lagt var af stað með. Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundum sem haldnir hafa verið um ofangreint mál.Á fundinum voru kynnt ný drög að bréfi til velferðarráðherra frá bæjarstjórum Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum þau drög að bréfi sem liggur fyrir.
9.
Frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, leikskólastjóra Krílakots, skólastjóra Dalvíkurskóla og skólastjóra Árskógarskóla; Umsjón með fasteignum sveitarfélagsins.
Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, leikskólastjóra Krílakots, skólastjóra Dalvíkurskóla og skólastjóra Árskógarskóla, dagsett þann 30. janúar 2013, þar sem fram kemur ósk um frekari stuðning við daglegan rekstur á fasteignum þar sem stjórnendur noti mikið af vinnutíma í að ganga í létt viðhald og ýmislegt því tengdu.Formaður bæjarráðs og bæjarstjóri gerðu grein fyrir fundi í vikunni með ofangreindum stjórnendum, sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs, umsjónarmanni fasteigna og sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs þar sem farið var yfir ofangreint erindi og mál því tengdu.Fram kom á fundi bæjarráðs að við endurskipulagningu á umhverfis- og tæknisviði verði tekið tillit til ofangreinds erindis og þess sem kom fram á fundinum með stjórnendum og umsjónarmanni fasteigna.
<P></P>
11.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar; ábendingar frá innanríkisráðuneytinu um breytingar.
Á 654. fundi bæjarráðs þann 31. janúar 2013 samþykkti bæjarráð samhljóða með 3 atkvæðum að fela bæjarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að koma með tillögur að breytingum í samræmi við ábendingar ráðuneytisins og þegar fengnar hafa verið skýringar ráðuneytisins á vafaatriðum.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar með breytingum sem gerðar hafa verið í samræmi við leiðbeiningar innanríkisráðuneytisins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar eins og hún liggur fyrir og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
12.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 803. fundur stjórnar frá 25. janúar 2013.
Til kynningar.