Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

654. fundur
31. janúar 2013 kl. 08:15 - 11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá 166. fundi félagsmálaráðs þann 15.01.2013; Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014.
Málsnúmer 201208047
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðstjóri félagsmálasviðs.Jóhann Ólafsson kom á fundinn undir þessum lið kl. 8:26.Á 166. fundi félagsmálaráðs þann 15. janúar 2013 var eftirfarandi bókað:Félagsmálastjóri lagði fram útdrátt úr framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014 um verksvið sveitarfélagsins í þessari áætlun. Sveitarfélagið skal viðhafa aðgerðir hvað varðar A. aðgengismál í sveitarfélaginu,C. Hluti hvað varðar félagslegar vernd/sjálfstætt lífG. Menntun, hvað varðar samfellu milli skólastigaH. Þátttöku í félagslífi barna og ungmenna Félagsmálaráð vísar útdrættinum til bæjarráðs til kynningar. Með fundarboði bæjarráðs fylgdi aðgerðaráætlun vegna aðgengismála í sveitarfélaginu.Eyrún kynnti ofangreinda aðgerðaáætlun.
2.
Frá 166. fundi félagsmálaráðs þann 15.01.2013; Vinnusamningar - AMS.
Málsnúmer 201301022
Á 166. fundi félagsmálaráðs þann 15. janúar 2013 var eftirfarandi bókað:Huga þarf að vinnusamningu fyrir einstaklinga í samfélaginu bæði núna og svo í sumar. Núna bíður einn og jafnvel tveir einstaklingar eftir að komast á slíkan samning. Einnig er hægt að gera vinnusamninga við þá sem eru atvinnulausir og eiga ekki rétt á eða eru búnir með bótarétt sinn hjá Vinnumálastofnun.Félagsmálaráð vísar erindinu til bæjarráðs og óskar eftir að félagsmálastjóri fylgi málinu eftir. Til umræðu ofangreint.Eyrún vék af fundi.
3.
Snjómokstur í sveitarfélaginu; framkvæmd.
Málsnúmer 201301110
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs.Til umræðu framkvæmd á helmingavegamokstri í sveitarfélaginu.Einnig rætt um kostnað sveitarfélagsins vegna snjómoksturs á árinu 2012.
4.
Frá umhverfis- og tæknisviði; Gjaldskrá fyrir Böggvisstaðaskála.
Málsnúmer 201301107
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi tillaga að gjaldskrá fyrir leigu á geymsluhólfum í Böggvisstaðaskála fyrir árið 2013.Einnig fylgdi með drög að formi vegna leigusamninga fyrir leigu á geymsluhólfum í Böggvisstaðaskála.Þorsteinn vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir  samhljóða með 3 atkvæðum gjaldskránna eins og hún liggur fyrir og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
5.
Fré Eyþingi; Skipan í samráðsvettvang um sóknaráætlun Norðurlands eystra.
Málsnúmer 201301111
Tekið fyrir bréf frá Eyþingi, dagsett þann 22. janúar 2013,er varðar skipan í samráðsvettvang um sóknaráætlun Norðurlands eystra.Óskað er eftir 2 fulltrúum frá Dalvíkurbyggð vegna skipan í 20 manna samráðshóp um sóknaráætlun Norðurlands eystra. Litið er á 2013 sem tilraunaár og verður fyrst og fremst horft til þriggja málaflokka í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 22. júní 2012. Þeir eru: Atvinnumál- og nýsköpun, mennta- og menningarmál og markaðsmál. Skipan í samráðshópinn nú tekur mið af þessum áherslum. Fjárveiting sem Eyþing hefur yfir að ráða er kr. 50.595.000.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Svanfríður Jónasdóttir og Jóhann Ólafsson verði fulltrúar Dalvíkurbyggðar.
6.
Frá Greiðri leið; Boðsbréf
Málsnúmer 201301098
Tekið fyrir boðsbréf frá Greiðri leið þar sem fulltrúum Dalvíkurbyggðar er boðið að vera viðstaddur undirritun samnings við ÍAV og MARTI um framkvæmdir við Vaðlaheiðargögn þann 1. febrúar n.k. Athöfnin fer fram í menningarhúsinu Hofi á Akueyri og hefst hún kl. 16:00.
<P>Lagt fram.</P><P></P>
7.
Frá bæjarstjóra og sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Niðurgreiðslur á skólaakstri framhalds- og háskólanema; minnisblað.
Málsnúmer 201210041
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi minnisblað, dagsett þann 28. janúar 2013, frá bæjarstjóra og sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs.Í minnisblaðinu kemur fram sú tillaga að haldið verði áfram með skólaakstur til Ólafsfjarðar á vorönn. Þess verði jafnframt freistað að fá "strætó" til að taka upp ferð frá hausti frá Akureyri kl.7:15.Þá er jafnframt lagt til að mánaðarkort, þriggja mánaða kort og níu mánaða kort verði greidd niður um 30% yfir nemendur 18 ára og eldri í fullu framhalds- og háskólanámi á Akureyri.Markmið með greiðslum Dalvíkurbyggðar vegna skólaaksturs eða niðurgreiðslu á fargjaldi er að gera nemendum kleift að búa heima og að þeir séu sem næst jafnsettir hvort sem þeir kjósa að sækja skóla í Ólafsfirði eða til Akureyrar.Kostnaður við niðurgreiðslur og skólaakstur á árinu 2012 var um 1,8 m kr. (c.a. 1.250 m.kr. niðurgreiðslur og c.a. 550 þ.kr. í skólaakstur). Á áætlun fyrir árið 2013 er 1 m.kr. í niðurgreiðslur. Ætla má að m.v. þá tillögu sem hér er sett fram muni sú upphæð nægja fyrir niðurgreiðslum til Akureyrar. Þá er eftir skólaakstur til Ólafsfjarðar. Ætla má að á vorönn muni hann kosta Dalvíkurbyggð 700 þús. kr.
<P>Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar tillögur og samþykkir kr. 700.000 viðauka vegna deildar 04-81.</P>
8.
Frá Ríkiskaupum;Aðild að rammasamningum Ríkiskaupa 2013.
Málsnúmer 201301045
Tekið fyrir erindi frá Ríkiskaupum, rafpóstur dagsettur þann 14. janúar 2013, þar sem fram kemur að nú sé að því komið að staðfesta aðild sveitarfélaga að rammasamningakerfi Ríkiskaupa 2013.Umsókn um áframahaldandi aðild að rammasamningum þarf að tilkynna til Ríkiskaupa í allra síðasta lagi fyrir 22. febrúar 2013. Berist umboð ekki til Ríkiskaupa innan tilskilins tíma verður litið svo á að sveitarfélagið óski ekki eftir aðild að rammasamningakerfinu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð verði áfram aðili að rammasamningum Ríkiskaupa sbr. fyrri ár.Dalvíkurbyggð hefur þegar undanskilið sig frá rammasamningi vegna þjónustu verktaka í iðnaði.
9.
Frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Ávöxtun og innistæður Dalvíkurbyggðar; viðskiptabanki.
Málsnúmer 201301087
Á 636. fundi bæjarráðs þann 25. september 2012 samþykkti bæjarráð að leggja til að Sparisjóður Svarfdæla verði áfram viðskiptabanki Dalvíkurbyggðar þar til annað verður ákveðið. Bæjarstjórn samþykkti þá tillögu á fundi sínum þann 30. október 2012.Á 587. fundi bæjarráðs voru til umfjöllunar lög um breytingu á lögum nr. 98/1999 um innistæðutryggingar og tryggingarkerfi fyrir fjárfesta, með síðari breytingum. Samkvæmt breytingunni þá minnkar vernd á innistæðum sveitarfélaga við setningu laganna en fram kemur í 4. tl. 15. gr. að innistæður ríkis, sveitarfélaga, stofnana þeirra og fyrirtækja að meiri hluta í eigu opinberra aðila njóta ekki verndar samkvæmt lögunum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá kynningu á  ávöxtum með kaupum á  ríkisskuldabréfum.
10.
Frá innanríkisráðuneytinu; Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar; yfirfarin samþykkt með ábendingum.
Málsnúmer 201210075
Á 243. fundi bæjarstjórnar þann 15. janúar 2013 var samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar tekin til síðari umræðu og hún samþykkt samhljóða. Samþykktin var síðan sent innanríkisráðuneytinu til staðfestingar.Samkvæmt rafpósti dagsettum þann 28. janúar s.l. frá innanríkisráðuneytinu kemur fram að það eru nokkur atriði sem Dalvíkurbyggðar þarf að taka til skoðunar; sumt eru einfaldar athugasemdir, annað þarf að vera skýrara.Á fundi bæjarráðs var farið yfir ábendingar ráðuneytisins.Upplýst var á fundinum að sama dag og bæjarstjórn samþykkti Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar við síðari umræða var birt endurskoðuð auglýsing hvað varðar leiðbeiningar um ritun fundagerða.Bæjarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fóru yfir þær ábendingar sem innanríkisráðuneytið kom með.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með  3 atkvæðum að fela bæjarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að koma með tillögur að breytingum í samræmi við ábendingar ráðuneytisins og þegar fengnar hafa verið skýringar ráðuneytisins á vafaatriðum.
12.
Frá bæjarstjóra; drög að bréfi til velferðarráðherra varðandi almenna heilbrigðisþjónustu við utanverðan Eyjafjörð.
Málsnúmer 201211054
Tekið fyrir drög að bréfi bæjarstjóra Dalvíkurbyggðar og bæjarstjóra Fjallabyggðar til velferðarráðherra hvað varðar almenna heilbrigðisþjónustu við utanverðan Eyjafjörð.Bæjarstjóri gerði grein fyrir innihalds bréfsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela bæjarstjóra að gera tillögu að breytingum á bréfinu í samræmi við umræður á fundinum, í samráði við bæjarstjóra Fjallabyggðar,  þannig að málefni aldraðra fái sinn sess í erindinu eins og lagt var af stað með.
13.
Sala íbúða; til upplýsingar
Málsnúmer 201301128
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti um nokkur mál tengd sölu á íbúðum í eigu sveitarfélagsins.