Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
653. fundur
24. janúar 2013
kl.
08:15
-
12:00
stóra fundaherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá 243. fundi bæjarstjórnar þann 15. janúar s.l.: Framtíðarnýting á Ungó og Sigtúni og Upplýsingamiðstöð.
Undir þessum lið komu á fund bæjarráðs Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi.Á 34. fundi menningarráðs þann 9. janúar 2013 var eftirfarandi bókað:Undir þessum lið komu Kristján Guðmundsson formaður Leikfélags Dalvíkur og Jenný Heiðarsdóttir.Rætt var um hvaða starfssemi færi vel með starfsemi Leikfélagsins í Ungó. Nú er á fjárhagsáætlun 2013 og þriggja ára áætlun að gera húsnæðið upp að utan og eru aðilar sammála um mikla möguleika Ungó og Sigtúns og að mikilvægt sé að nýta húsnæðið allan ársins hring.Klukkan 08:40 kom Kristín Aðalheiður Símonardóttir og sat fundinn undir þessum lið.Rætt var um möguleika þess að Sögusetur Bakkabræðra yrði í Ungó sem og upplýsingamiðstöð og jafnframt yrði andyri leikhússins stækkað eins og stefnt hefur verið að frá kaupum á Sigtúni. Bæði leikfélagið og Kristín Aðalheiður f.h. Sögusetursins finnst samvinnan afar spennandi og sjá hana ganga upp. Menningarráð óskar eftir því við stjórn Leikfélagsins að það kynni hugmyndir fyrir stjórn og leiti frekari hugmynda. Jafnframt leggur Menningarráð til við bæjarstjórn að leigendum í Sigtúni verði sagt upp leigu á húsnæðinu en þegar hefur leikfélagið hluta hússins í notkun. Frekari umræða um framtíðarnýtingu Ungó/Sigtúns verður haldið áfram á málþingi Menningarráðs um menningarstefnu Dalvíkurbyggðar sem áætlað er að halda í febrúar og ákvörðun um framtíðarnýtingu hússins liggi fyrir í vor. Á 243. fundi bæjarstjórnar þann 15. janúar 2013 samþykkti bæjarstjórn að vísa þessum lið til umfjöllunar í bæjarráði.Á fundinum var gert grein fyrir vinnufundi starfsmanna Dalvíkurbyggðar þann 22. janúar s.l. um upplýsingamiðstöð/var á vegum sveitarfélagsins.Til umræðu ofangreint.Hildur Ösp og Margrét viku af fundi.
2.
Frá Laufeyju Eíríksdóttur; ósk um leigu á húsnæði áður leikskólans Leikbæjar út næsta ár.
Á 650. fundi bæjarráðs þann 13. desember 2012 var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá Laufeyju Eíríksdóttur og Emil Björnssyni, dagsett þann 5. desember 2012, þar sem óskað er eftir að taka á leigu húsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar sem áður hýsti starfsemi Leikbæjar á Árskógsströnd frá næstu áramótum. Bæjarráð samþykkir að ofangreint húsnæði verði leigt tímabundið til bréfritara og felur starfsmanni félagsmálasviðs og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að ganga frá drögum að leigusamningi í samræmi við umræður á fundinum.Bæjarráð samþykkir jafnframt að húseignin verði samt sem áður sett á söluskrá eins og búið var að samþykkja í bæjarstjórn. Á 242. fundi bæjarstjórnar þann 18. desember 2012 var ofangreind afgreiðsla bæjarráðs staðfest.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi erindi frá Laufeyju Eikríksdóttur og Emil Björnssyni, dagsett þann 20. janúar 2013, þar sem bréfritarar óska eftir að fá að vera í Árskógi (Leikbæ) að minnsta kosti út næsta ár, án þess að eiga á hættu að þurfa að flytja vegna sölu á húseigninni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að vegna sérstöðu eignarinnar þá verði "Leikbær" ekki settur á sölu að sinni.
3.
Frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa; Ósk um búnaðarkaup árið 2012 fyrir Íþróttamiðstöðina.
Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, rafbréf dagsett þann 15. janúar 2013, þar sem þess er óskað að fá að kaupa sundlaugaryksugu, áætlaður kostnaður kr. 1.225.857, þannig að kaupin verði hluti af fjárhagsári ársins 2012 en í lok ársins 2012 hóf íþrótta- og æskulýðsfulltrúi að undirbúa möguleg kaup. Vegna betri rekstrarniðurstöðu Íþróttamiðstöðvar en áætlað var þá rúmast kaupin innan ársins 2012.
Bæjarráð veitir íþrótta- og æskulýðsfulltrúa heimild til að færa á milli liða í fjárhagsáætlun 2012 fyrir deild 06-50 til að mæta ofangreindri beiðni um búnaðarkaup.
4.
Frá bæjarstjóra; Ljósleiðarakerfi.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi minnisblað bæjarstjóra til bæjarráðs, dagsett þann 22. janúar 2013, um fund sem fulltrúar Dalvíkurbyggðar áttu með fulltrúum frá Verkfræðistofu Norðurlands þann 22. janúar 2013. Tilgangur fundarins var að kynna þjónustu sem fyrirtæki hefur verið að veita sveitarfélögum varðandi skipulag og hönnun framtíðarfjarskipta innan sveitarfélaganna. Bæjarstjóri gerði grein fyrir ofangreindu fundi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
5.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 27. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2013.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 14. janúar 2013, þar sem fram kemur að 27. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélag verður 15. mars n.k. á Grand hóteli í Reykjavík.Aðalfulltrúar Dalvíkurbyggðar eru Valdís Guðbrandsdóttir og Jóhann Ólafsson og til vara Kristján E. Hjartarson og Björn Snorrason.
Lagt fram.
6.
Vinabæjasamskipti og vinabæjarmót í Hamar 2013.
a) Bæjarstjóri gerði grein fyrir að þær hugmyndir eru uppi varðandi vinabæjasamstarfið að fresta vinabæjamóti í Hamar, sem á að vera í sumar, til ársins 2014 en hafa vinnufund í staðinn á þessu ári.b) Á fundinum afhenti bæjarstjóri góðar gjafir frá vinabæ Dalvíkurbyggðar á Grænlandi; Ittoqqtormiit.
a) Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við ofangreint að hálfu Dalvíkurbyggðar.b) Bæjarráð þakkar góðar gjafir og samþykkir að bók og diskar fari í Bókasafn Dalvíkurbyggðar en mynd verði í fundaherbergi á 3. hæð.
7.
Heiti á fundaherbergjum Dalvíkurbyggðar á 3. hæð Ráðhúss Dalvíkur; tillögur
Jóhann Ólafsson, Svanfríður Inga Jónasdóttir og Guðrún Pálína Jóhannsdóttir viku af fundi vegna vanhæfis.Á fundi bæjarráðs voru lagðar fram og kynntar þær tillögur sem bárust um nöfn á fundaherbergjum á 3. hæð Ráðhúss en vegna breytinga á fundaaðstöðu bæjarskrifstofu þá var ákveðið að nefna fundaherbergin í stað þess að tala um "litla fundaherbergi" og "stóra fundaherbergi".Óskað var eftir tillögum frá starfsmönnum bæjarskrifstofu, stjórnendum, fulltrúum í bæjarstjórn og formönnum nefnda. Tillögur voru sendar til upplýsingarfulltrúa og var frestur til miðnættis 22. janúar 2013.
Bæjarráð samþykkir að stærri fundaherbergi heiti Upsi og minna fundaherbergið heitir Múli.