Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

652. fundur
10. janúar 2013 kl. 08:15 - 08:15
stóra fundaherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
1.
Heimsókn frá Capacent.
Málsnúmer 201301011
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Gunnar Haugen, framkvæmdastjóri Capacent Ráðningar, og Sigríður Ólafsdóttir, rekstrarstjóri Capacent á Akureyri.Gunnar og Sigríður kynntu þjónustu Capacent hvað varðar ráðningar.Gunnar og Sigríður viku af fundi.
2.
Lýðræðisstefna Dalvíkurbyggðar, drög.
Málsnúmer 201208009
Björn Snorrason kom á fundinn undir þessum lið kl. 9:00.Á 634. fundi bæjarráðs þann 6. september 2012 var eftirfarandi bókað:Tekin fyrir drög að Lýðræðisstefnu Dalvíkurbyggðar sem er stefna Dalvíkurbyggðar um upplýsingagjöf og samráð við íbúa sbr. X. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.Á fundinum voru ofangreind drög tekin til umræðu og nokkrar breytingar gerðar á fundinum. Bæjarráð samþykkir að vísa drögunum til umsagnar stjórnsýslunefndar eins og þau liggja nú fyrir. Lýðræðisstefna var til umfjöllunar á fundi stjórnsýslunefndar þann 13. september 2012.Með fundarboði fylgdu drög að Lýðræðisstefnu Dalvíkurbyggðar eins og hún liggur nú fyrir.
Bæjarráð samþykkir Lýðræðisstefnu Dalvíkurbyggðar eins og hún liggur nú fyrir og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
3.
Frá 242. fundi bæjarstjórnar þann 18. desember s.l.: Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar.
Málsnúmer 201210075
Á 242. fundi bæjarstjórnar þann 18. desember 2012 var Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Bæjarstjórn samþykki að vísa samþykktinni til bæjarráðs á milli umræðna í bæjarstjórn.Á fundinum var farið yfir þau atriði sem stóðu út af þar sem beðið var eftir svörum hvað þau atriði varðar, m.a. frá innanríkisráðuneytinu.Á fundi bæjarráðs var farið yfir ofangreint og gerðar nokkrar breytingar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar til síðari umræðu í bæjarstjórn með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum.
4.
Frá forsætisráðuneytinu; Ný upplýsingalög.
Málsnúmer 201301012
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu ný upplýsingalög sem tóku gildi þann 21. desember 2012.Í frétt af heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga um lögin kemur m.a. fram að breytt lög munu hafa íþyngjandi áhrif á stjórnsýslu sveitarfélaga sem mun útheimta viðbótarvinnu í stjórnsýslu sveitarfélaga.Sveitarfélögum verðu einnig skylt að hafa meira frumkvæði að birtingu upplýsinga með rafrænum hætti, m.a. þannig að skrár yfir mál og listar yfir málsgögn verði aðgengilegir á vefnum.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi einnig afrit af umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um lögin, dagsett þann 21. nóvember 2012. Upplýst var að vinnufundur innanhúss verður 14. janúar n.k. um nýju upplýsingalögin þar sem markmiðið er að byrja að kortleggja hvernig Dalvíkurbyggð þarf að bregðast við.
Til umræðu og lagt fram.
5.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Vinnureglur Dalvíkurbyggðar um leigu.
Málsnúmer 201212021
Á 620. fundi bæjarráðs þann 13. desember 2012 voru drög að ofangreindum vinnureglum til umfjöllunar og eftirfarandi bókað:Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti hugmyndir og frumdrög að vinnureglum um leigu á húsnæði og jörðum/landi í eigu Dalvíkurbyggðar.Til umræðu ofangreint.Bæjarráð felur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna áfram að ofangreindum drögum.Drögin hafa verið sent framkvæmdastjórn til skoðunar.Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að reglunum eins og þær líta nú út.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar reglur og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Frá Sparisjóði Svarfdæla,varðar kaup Dalvíkurbyggðar á geymslu í kjallara Ráðhúss Dalvíkur.
Málsnúmer 201112006
Tekið fyrir rafbréf frá Sparisjóði Svarfdæla, dagsett þann 20. desember 2012, þar sem sparisjóðsstjóri óskar eftir þvði að Dalvíkurbyggð kaupi 16,1m2 eldtrausta geymslu í kjallara Ráðhúss, sem Dalvíkurbyggð hefur haft endurgjaldslaust afnot af. Geymslan hefur verið skoðuð og verðmetin í samráði við bæjartæknifræðing Dalvíkurbyggðar og var það að samkomulagi að ásættanlegt verð væri kr. 850.000 fyrir geymsluna. Fram kemur jafnframt í erindinu að ekki verður farið neðar í verði og er þess óskað að samkomulag náist á þessum kjörum. Einnig er þess óskað að kaupin miðist við áramót.
Bæjarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð kaupi umrædda geymslu í kjallara á kr. 850.000.Ekki er hægt að verða við því að kaupin miðist við síðustu áramót.Varðandi fjármögnun kaupanna þá leggur bæjarráð til að skorið verður niður í fjárfestingum og framkvæmdum í málaflokki 32 á móti.