Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
651. fundur
20. desember 2012
kl.
08:15
-
12:00
í stóra salnum í Bergi
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Heiða Hringsdóttir
Varamaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá fræðslu- og menningarsviði & fjármála- og stjórnsýslusviði; Sameiginlegt skráningarkerfi fyrir tómstundir; minnisblað.
Undir þessum lið komu á fundinn Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi minnisblað, dagsett þann 14. desember 2012, um undirbúning og innleiðingu á sameiginlegu skráningarkerfi og hvatapeningakerfi fyrir frístundir barna og unglinga í Dalvíkurbyggð.Óskað er eftir að bæjarráð taki formlega ákvörðun um hvort vinna eigi áfram að innleiðingu og mun þá kostnðaráætlun verða lögð fram í framhaldinu.Árni vék af fundi.
Bæjarráð felur sviðunum að vinna áfram að þessu verkefni í samræmi við umræður á fundinum.
3.
Frá KILI Stéttarfélagi í almenningsþjónustu; Beiðni um rökstuðning vegna uppsagnar Helgu Írisar Ingólfsdóttur.
Tekið fyrir erindi frá KILI, stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu, dagsett þann 14. desember 2012, þar sem óskað er eftir rökstuðningi vegna uppsagnar Helgu Írisar Ingólfsdóttur, fulltrúa á umhverfis- og tæknisviði Dalvíkurbyggðar, en með bréfi bæjarstjóra dagsett þann 30. nóvember s.l. var Helgu sagt upp störfum hjá Dalvíkurbyggð vegna skipulagsbreytinga.Á fundinum kynnti bæjarstjóri drög að svarbréfi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við svarbréfið.
4.
Frá Húsabakka ehf.; Ósk um frestun á hækkun leigu vegna ástand húsnæðis.
Tekið fyrir bréf dagsett þann 11. desember 2012 frá Húsabakka ehf. þar sem þess er farið á leit við Dalvíkurbyggð að hækkun húsaleigu nú um áramótin verði frestað þangað til að Dalvíkurbyggð er búin að laga húsin að utan; þ.e. skipta um gler í gluggum þar sem þarf, mála og laga sprungur og útlit húsanna.Fram kemur að Ferðaþjónusta Bænda vildi félagið ekki inn í samtökin nú í haust vegna þeirra áhrifa sem ástand og útlit húsanna hefur.Á fjárhagsáætlun 2013 er gert ráð fyrir kr. 3.250.000 vegna viðhalds á Húsabakka ehf. sem viðbrögð við erindi frá félaginu dagsett þann 27. ágúst 2012.
Bæjarráð hafnar beiðni Húsabakka ehf. um að hækkun samkvæmt gildandi samningi taki ekki gildi um áramótin og bendir á að Dalvíkurbyggð er að uppfylla gildandi samning varðandi viðhald húsnæðsins, t.d. með aukafjárveitingu að upphæð kr. 400.000 á þessu ári vegna leka og sem og með kr. 3.250.000 á árinu 2013, sbr. ofangreint. Heiða Hringsdóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
5.
Frá stjórn Dalbæjar; Beiðni um endurskoðun á samningi um bókhalds- og launavinnslu milli Dalbæjar og Dalvíkurbyggðar.
Á 651. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá stjórn Dalbæjar, dagsett þann 26. nóvember 2012, er varðar beiðni um endurskoðun á samningi um bókhalds- og launavinnslu milli Dalbæjar, heimils aldraðra, og Dalvíkurbyggðar, frá 10. janúar 2008.Vísað er til þess að umfang vinnu launafulltrúa ætti að hafa minnkað með tilkomu tímaskráningarkerfis.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi einnig rafpóstur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs til forstöðumanns Dalbæjar, dagsettur þann 21. nóvember 2012, þar sem upplýst er að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2013-2016 var tekin til síðari umræðu í bæjarstjórn 20. nóvember s.l. og hún samþykkt samhljóða. Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir lækkun á þjónustusamningi milli Dalbæjar og Dalvíkurbyggðar vegna bókhalds- og launavinnslu að upphæð kr. 720.000 vegna vinnu og þjónustu launafulltrúa. Áætluð greiðsla skv. samningi Dalbæjar árið 2013 er því kr. 5.730.000 í stað kr. 6.450.000. Bæjarráð vísar í rafpóst sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs frá 21. nóvember s.l. þar sem forstöðumaður Dalbæjar er upplýstur um að búið er að bregðast við munnlegri beiðni um endurskoðun á samningnum á þeim forsendum sem óskað var eftir, þ.e. um endurskoðun vegna vinnu launafulltrúa eftir tilkomu tímaskráningarkerfis.Upplýst var á fundinum að samkvæmt formanni stjórnar Dalbæjar er verið að óska eftir endurskoðun á samningnum, þótt fram sé komið að Dalvíkurbyggð hefur brugðist við munnlegri beiðni um endurskoðun á samningum
Bæjarráð samþykkir að verða við ósk stjórnar Dalbæjar um endurskoðun á gildandi samningi um bókhald- og launavinnslu og óskar eftir fundi með stjórn Dalbæjar. Bæjarráð óskar eftir að stjórn Dalbæjar leggi fram skýrar forsendur frá sér til grundvallar beiðni um endurskoðun og hvaða atriði það eru sem stjórnin vill sjá með öðrum hætti.
6.
Drög að leigusamningi vegna Leikbæjar.
Á 650. fundi bæjarráðs var tekið fyrir erindi frá Laufeyju Eíríksdóttur og Emil Björnssyni, dagsett þann 5. desember 2012, þar sem óskað er eftir að taka á leigu húsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar sem áður hýsti starfsemi Leikbæjar á Árskógsströnd frá næstu áramótum. Bæjarráð samþykkti að ofangreint húsnæði verði leigt tímabundið til bréfritara og felur starfsmanni félagsmálasviðs og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að ganga frá drögum að leigusamningi í samræmi við umræður á fundinum.Bæjarráð samþykkti jafnframt að húseignin verði samt sem áður sett á söluskrá eins og búið var að samþykkja í bæjarstjórn. Á 242. fundi bæjarstjórnar þann 18. desember s.l. var ofangreind afgreiðsla bæjarráð staðfest.Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að leigusamningi við Emil Björnsson vegna útleigu á húseigninni "Leikbæ".
Bæjarráð samþykkir drögin eins og þau liggja fyrir en bendir á að óheimilt er að vera með hunda á skólalóð.
7.
Skíðabraut 15; kauptilboð-til upplýsingar.
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti í hvaða farvegi sala á íbúðinni er.
8.
Húsnæðismál önnur.
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti samantekt yfir leiguverð á íbúðahúsnæði í eigu sveitarfélagsins.
Lagt fram.