Fara í efni

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

650. fundur
13. desember 2012 kl. 08:15 - 12:00
í stóra salnum í Bergi
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir Varaformaður
Björn Snorrason Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Áheyrnarfulltrúi
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Emil Björnssyni og Laufeyju Eiríksdóttur; Ósk um tímabundna leigu á húsnæði, áður Leikbær Árskógsströnd.
Málsnúmer 201212013
Jóhann Ólafsson kom á fundinn undir þessum lið kl. 8:24.Tekið fyrir erindi frá Laufeyju Eíríksdóttur og Emil Björnssyni, dagsett þann 5. desember 2012, þar sem óskað er eftir að taka á leigu húsnæði í eigu Dalvíkurbyggðar sem áður hýsti starfsemi Leikbæjar á Árskógsströnd frá næstu áramótum.
Bæjarráð samþykkir að ofangreint húsnæði verði leigt tímabundið til bréfritara og felur starfsmanni félagsmálasviðs og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að ganga frá drögum að leigusamningi í samræmi við umræður á fundinum.Bæjarráð samþykkir jafnframt að húseignin verði samt sem áður sett á söluskrá eins og búið var að samþykkja í bæjarstjórn.
2.
Frá stjórn Dalbæjar; Beiðni um endurskoðun á samningi um bókhalds- og launavinnslu milli Dalbæjar og Dalvíkurbyggðar.
Málsnúmer 201212017
Tekið fyrir erindi frá stjórn Dalbæjar, dagsett þann 26. nóvember 2012, er varðar beiðni um endurskoðun á samningi um bókhalds- og launavinnslu milli Dalbæjar, heimils aldraðra, og Dalvíkurbyggðar, frá 10. janúar 2008.Vísað er til þess að umfang vinnu launafulltrúa ætti að hafa minnkað með tilkomu tímaskráningarkerfis.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi einnig rafpóstur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs til forstöðumanns Dalbæjar, dagsettur þann 21. nóvember 2012, þar sem upplýst er að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2013-2016 var tekin til síðari umræðu í bæjarstjórn 20. nóvember s.l. og hún samþykkt samhljóða. Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir lækkun á þjónustusamningi milli Dalbæjar og Dalvíkurbyggðar vegna bókhalds- og launavinnslu að upphæð kr. 720.000 vegna vinnu og þjónustu launafulltrúa. Áætluð greiðsla skv. samningi Dalbæjar árið 2013 er því kr. 5.730.000 í stað kr. 6.450.000.
Bæjarráð vísar í rafpóst sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs frá 21. nóvember s.l. þar sem forstöðumaður Dalbæjar er upplýstur um að búið er að bregðast við munnlegri beiðni um endurskoðun á samningnum.
3.
Frá LEX ehf.: Boðsbréf, ráðstefna og kvöldverður.
Málsnúmer 201212015
Tekið fyrir boðsbréf, dagsett þann 6. desember 2012, frá LEX ehf., þar sem LEX býður 1-3 fulltrúum Dalvíkurbyggðar til ráðstefnu á sviði skipulags- og starfsmannaréttar á Icelandair hótel Akureyri föstudaginn 11. janúar n.k. frá kl. 15:30 til kl. 18:00.
Bæjarráð óskar eftir að bæjarstjóri og sviðstjórar kanni hvort þeir hafi tök á að mæta og þiggja boðið fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
4.
Skráningarkerfi og styrkir vegna frístunda barna og unglinga í Dalvíkurbyggð.
Málsnúmer 201212008
Á 649. fundi bæjarráðs þann 6. desember s.l. kom María Björk Ingvadóttir á fund bæjarráðs og kynnti Hús Frítímans og skráningar- og styrktarkerfi vegna frístunda barna og unglinga í sveitarfélaginu Skagafirði.Til umræðu ofangreint.Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti að sviðstjórar fræðslu- og menningarsviðs og fjármála- og stjórnsýslusviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi munu eiga vinnufund á morgun til þess að undirbúa minnisblað til þess að leggja fyrir bæjarráð varðandi hugmyndir að innleiðingu á sambærilegu skráningar- og styrktarkerfi vegna frístunda barna og unglinga í Dalvíkurbyggð.
<P align=left>Bæjarráð leggur áherslu á góðan undirbúning og fyrir liggi sem fyrst hvaða kerfi/hugbúnaður verði notaður.</P>
5.
Frá bæjarstjóra; Starfslýsing sviðstjóra, drög.
Málsnúmer 201212009
Á 649. fundi bæjarráðs þann 6. desember s.l. voru til umfjöllunar drög að starfslýsingu sviðstjóra umhverfis- og tæknisvið sem og hvort leita eigi ráðgjafar ráðningarstofu.Til umræðu voru efnisþættir í ofangreindum drögum að starfslýsingu.
6.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201212020
Bókað í trúnaðarmálabók.
7.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Vinnureglur um leigur; drög.
Málsnúmer 201212021
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti hugmyndir og frumdrög að vinnureglum um leigu á húsnæði og jörðum/landi í eigu Dalvíkurbyggðar.Til umræðu ofangreint.
Bæjarráð felur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna áfram að ofangreindum drögum.
8.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar; endurskoðun í samræmi við ný sveitarstjórnarlög.
Málsnúmer 201210075
Á 649. fundi bæjarráðs þann 6. desember s.l. var áfram unnið að endurskoðun samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi samþykktin eins og hún lítur nú út, eftir fund bæjarráðs frá 6. desember, með ábendingum frá bæjarstjóra og sviðstjórum um þau atriði sem þarf að taka til sérstakrar skoðunar og/eða taka ákvörðun um.Á fundinum var áfram unnið að nýjum samþykktum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa samþykktunum með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
9.
Atvinnumál.
Málsnúmer 201212019
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Guðmundur St. Jónsson, framkvæmdastjóri Norðurstrandar ehf.Til umræðu yfirvofandi gjaldþrot Norðurstrandar en gjaldþrotabeiðni Íslandsbanka er tekin fyrir í dag, fimmtudaginn 13. desember, í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Guðmundur gerði bæjarráði grein fyrir ofangreindu; forsendum sem liggja þarna að baki og væntingum hvað varðar möguleika á endurreisn rekstursins.Guðmundur vék af fundi.
<P>Lagt fram.</P>
10.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Vinnumarkaðsúrræði - atvinnuleysi.
Málsnúmer 201211017
Jóhann Ólafsson vék af fundi undir þessum lið kl. 10:48.Tekið fyrir rafbréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 7. desember 2012, þar sem vísað er í rafbréf frá 15. nóvember s.l. þar sem framkvæmdastjóri sambandsins greindi frá því að sambandið væri þátttakandi í sameiginlegum viðræðum fulltrúa velferðarráðuneytisins, Vinnumálastofnunar, SA, ASÍ og fleiri til að finna leiðir til að bregðast við þeirri þróun sem við blasir vegna þess fjölda atvinnulausra sem þegar hafa misst og munu missa rétt sinn til atvinnuleysisbóta á næsta ári, m.a. sökum þess að bráðabirgðaákvæði laga um fjögurra ára rétt til atvinnuleysisbóta fellur niður við lok þessa árs.Eftir flóknar viðræður liggur fyrir niðurstaða að ráðist verði í atvinnuátakið VINNA og VIRKNI-Átak til atvinnu 2013. Áætlað er að sveitarfélög, ríki og hinn almenni vinnumarkaður bjóði þeim sem fullnýta bótarétt sinn störf. Með rafbréfi sambandsins fylgir eftirfarandi gögn:1. Kynning á átakinu Vinna og Virkni 2013 frá 7. desember 20122. Bréf frá verkefnisstjórn átaksins 3. Flæðirit - atvinnuleitenda4. Flæðirit ráðninga5. Samningsform - samningur milli sveitarfélags og velferðarráðuneytis6. Drög að leiðbeiningum um ferlið Upplýst var á fundinum að búið er að boða sameiginlegan fund Dalvíkurbyggðar, Símey, Einingar-Iðju og Vinnumálastofnunar næsta miðvikudag.
Lagt fram.
11.
Ráðhús Dalvíkur; sala á gangi Einingar-Iðju á 2. hæð og kaup á sameignarhluta á 3. hæð
Málsnúmer 201211009
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að kaupsamningi og afsali a) þar sem Dalvíkurbyggð selur Einingu-Iðju eignarhluta sinn í gangi á 2. hæð. Kaupverðið er kr. 805.620.b) þar sem Eining-Iðja selur eignarhuta sinn í sameign á 3. hæð. Kaupverðið er kr. 514.986.
a)  Bæjarráð samþykkir  drög að kaupsamningi/afsali, með fyrirvara um villur í skjali, sem gert var grein fyrir á fundinum og vísar þessum lið til afgreiðslu bæjarstjórnar.b) Bæjarráð samþykkir drög að kaupsamningi/afsali, með fyrirvara um villur í skjali, sem gert var grein fyrir á fundinum og vísar þessum lið til afgreiðslu bæjarstjórnar.