Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
649. fundur
6. desember 2012
kl.
08:15
-
11:30
í stóra salnum í Bergi
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar; endurskoðun í samræmi við ný sveitarstjórnarlög; áframhald vinnu.
Á 648. fundi var áfram unnið að endurskoðun samþykkta Dalvíkurbyggðar samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum.Með fundarboði bæjarráðs fylgdu eftirtalin vinnugögn:Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar; endurskoðun skv. nýjum sveitarstjórnarlögum og fyrirmynd frá innanríkisráðuneytinu.Laun kjörinna fulltrúa og fundaþóknanir.Drög að leiðbeiningum um ritun fundagerða Dalvíkurbyggðar.Á fundinum var áfram unnið að endurskoðun samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar.
2.
Frá bæjarstjóra; drög að starfslýsingu sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs; auglýsing starfs.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að starfslýsingu sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 5. desember 2012.Til umræðu hvernig standa á að auglýsingu á ofangreindu starfi og ráðningarferli.
Bæjarráð samþykkir að leitað verði ráðgjafar ráðningarstofu hvað varðar auglýsingu og ráðningu í ofangreint starf. Bæjarstjóra falið leita til ráðningarstofu í samræmi við umræður á fundinum.
3.
Frítímahús-kynning á "Skagafjarðarleiðinni".
Undir þessum lið komu á fundinn María Björk Ingvadóttir, Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Viktor Már Jónasson, forstöðumaður Víkurrastar, Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Jón Arnar Sverrisson, garðyrkjustjóri.María Björk kynnti Hús Frítímans og skipulag frístundastarfs í sveitarfélaginu Skagafirði.María Björk, Árni, Viktor, Hildur Ösp og Jón Arnar viku af fundi.
<P></P>