Bæjarráð Dalvíkurbyggðar
648. fundur
29. nóvember 2012
kl.
08:15
-
12:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Formaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varaformaður
Björn Snorrason
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Áheyrnarfulltrúi
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Bæjarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá 240. fundi bæjarstjórnar þann 30. október 2012; Birting reikninga á heimsíðu; tillaga Björns Snorrasonar.
Á 240. fundi bæjarstjórnar þann 30. október s.l. samþykkti bæjarstjórn að vísa eftirfarandi tillögu Björn Snorrasonar til umfjöllunar í bæjarráði:Ég vil leggja til í framhaldi af staðfestingu siðareglna kjörinna fulltrúa og hugsanlegum kaupum á kerfi Maritech til að miðla reikningum rafrænt að Dalvíkurbyggð marki sér þá stefnu að allir greiddir reikningar sveitarfélagsins séu birtir á vefsíðu sveitarfélagsins. Aðskilja skal og birta sérstaklega þá reikninga sem greiddir eru og koma frá starfsfólki sveitarfélagsins, kjörnum fulltrúum þess, nefndarmönnum og aðilum þeim tengdum.Með fundarboði bæjarráðs fylgdi umsögn frá KPMG þar sem fram kemur m.a. að líkur eru á að birting á öllum greiddum reikningum án samþykkis allra þeirra sem gefa út reikningana brjóti gegn þeim reglum sem settar eru í upplýsingalögum.Ofangreint til umræðu á fundinum.
Lagt fram.
2.
Samstarf Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um heilsugæslu og málefni aldraðra. Minnisblað.
Tekið fyrir minnisblað frá bæjarstjórum Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar, þar sem gert er grein fyrir fundi bæjarstjóra, formanns bæjarráðs í Dalvíkurbyggðar og forseta bæjarstjórnar í Fjallabyggð þann 23. október 2012 um málefni heilsugæslu á Tröllaskaga og möguleika á samstarfi hvað varðar heilsugæslu og málefni aldraðra.Ofangreint minnisblað rætt og í tengslum við 2.lið hér að ofan.
Lagt fram.
3.
Kauptilboð í Skíðabraut 15, íbúð 0202.
Tekið fyrir gagntilboð í Skíðabraut 15 frá Þorsteini Benediktssyni, kt. 221252-5359, dagsett þann 23.11.2012 að upphæð kr. 10.800.000.
Bæjarráð samþykkir ofangreint gagntilboð og söluna á íbúðinni. Á 241. fundi bæjarstjórnar þann 20. nóvember s.l samþykkti bæjarstjórn fullnaðarheimild til bæjarráðs að afgreiða tilboð í ofangreinda eign og söluna á henni.
4.
Kauptilboð í Skógarhóla 29 B.
Tekið fyrir gagntilboð í íbúðina við Skógarhóla 29 B frá Þórdísi Hjálmarsdóttur, kt. 060250-3839, dagsett þann 28.11.2012 að upphæð kr. 11.300.000.
Bæjarráð samþykkir ofangreint gagntilboð og söluna á íbúðinni með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.
5.
Frá Moltu ehf.; Aðgerðir vegna langtímaskulda-beiðni um fund.
Undir þessum lið komu á fundinn Eiður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Moltu ehf., Sigmundur Ófeigsson, stjórnarformaður, og Eiríkur Hauksson, stjórnarmaðurTil umræðu tillögur um aðgerðir vegna skuldavanda Moltu. Ofangreindir kynntu fyrir bæjarráði niðurstöður vinnuhóps um aðgerðir til að taka á skuldavanda Moltu ehf. Eiður, Sigmundur og Eiríkur viku af fundi.
6.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar; endurskoðun í samræmi við ný sveitarstjórnarlög.
Á 647. fundi bæjarráðs þann 22. nóvember s.l. var unnið að endurskoðun samþykka sveitarfélagsins, fram að VI. kafla.Með fundiboði fylgdi fyrirmynd innanríkisráðuneytisins að samþykktum sveitarfélaga með þeim breytingum fyrir Dalvíkurbyggð sem ræddar voru á síðasta fundi.Á fundinum var áfram unnið að endurskoðun samþykkta Dalvíkurbyggðar samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum.